Ljósmæðrablaðið

Árgangur

Ljósmæðrablaðið - 01.11.1943, Blaðsíða 3

Ljósmæðrablaðið - 01.11.1943, Blaðsíða 3
Ljósmæðrablaðið VI. 1943. Lögskipaðar Ijósmœður í Reykjavík. Þann 1. okt. s. 1. lét frk. Þuríður Bárðardóttir af embætti sem lögskipuð ljósmóðir í Reykjavík eftir 38 ára óslitið starf. I tilefni þess birtist í heimilisblaðinu „Vikan“ grein um lögskipaðar ljósmæður í Reykjavík. Leyfir Ljós- mæðrablaðið sér að birta þá grein, þar sem hér er um að ræða fróðlegar heimildir fyrir stéttina. Maðurinn kemst ekki hljálparlaust í heiminn og er al- gerlega háður umhyggju annara fyrstu hérvistarár sín og móðirin leggur líf sitt í hættu við hverja fæðingu, svo að það ætti að vera öllum mönnum ljóst, hve ábyrgðar- mikið starf ljósmæðranna er. Enda hafa margir foreldrar metið það vel og að verðleikum, en kjör og aðbúnaður þessara þörfu hjálparkvenna sjaldan verið eins og þurft hefði við hina þjóðnýtu vinnu þeirra. I „Skipun heilbrigðismála á íslandi“, sem Vilmundur Jónsson landlæknir hefir samið, segir frá því, að árið 1749 hafi verið útgefin á prenti fyrsta kennslubók í ljósmóð- urfræði á íslenzku. Voru það biskuparnir á Hólum og í Skálholti, sem stóðu að útgáfunni. I kaflanum „Tímamót í heilbrigðismálasögu íslands“ segir m. a.: „Hér er fyrst og fremst að greina ráðstafanir til að sjá íslenzkum lækna- efnum fyrir fræðslu (1760) og ljósmæðrum fyrir nokkurri

x

Ljósmæðrablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.