Ljósmæðrablaðið

Volume

Ljósmæðrablaðið - 01.11.1943, Page 7

Ljósmæðrablaðið - 01.11.1943, Page 7
LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ 65 skal nú vikið að hinum lögskipuðu ljósmæðrum í Reykja- vík og sagt frá hverjar þær voru, eftir því sem unnt er, en það er víst, að hér ’geta ekki öll kurl komið til grafar vegna skorts á heimildum. I Árbókum Reykjavíkur stendur þessi klausa við árið 1840: „Kannsellíið mælir svo fyrir, samkvæmt tillögu stiftamtmanns, að eftirleiðis skuli vera tvær útlærðar yfirsetukonur í Reykjavík, og skuli þeim greidd laun úr jarðabókarsjóði, 40 ríkis- dalir á ári hvorri þeirra. Áður hafði verið hér aðeins ein útlærð yfirsetukona.“ Árið 1803 er send til Reykjavíkur, að tilhlutun ,,rentukamers“, dönsk yfir- setukona. Hét hún Johanne Marie Wielund. Skyldi hún setjast að í kaupstaðnum °g fá 60 rikisdali í árslaun. Hún giftist síðar sænskum beyki, er var í bænum, Malmquist að nafni. Sænsk kona, Elisabeth Möller, var löggilt ljósmóðir í baanum, að líkindum ekki löngu eftir 1815. Hún var gift óönskum lögregluþjóni, Lars Möller, og bjuggu þau í litlu húsi vestur af,,svenska húsinu“ svonefnda í Austurstræti nr. 20 og var húsið því kallað ,,nærkonuhús“. Um 1840 gerðist Ragnheiður Ólafsdóttir (frá Seli Stein- grimssonar) ljósmóðir í bænum. Hún var annáluð fríð- leikskona og gift Þorsteini trésmið Bjarnasyni, ættuðum frá Flekkudal í Kjós. HÍann varð lögregluþjónn 1837 og reisti sér timburhús, sem nefndist Brunnhús, við Suður- götu. Ragnheiður fékk lausn frá ljósmóðurstarfinu 1849.

x

Ljósmæðrablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.