Ljósmæðrablaðið

Årgang

Ljósmæðrablaðið - 01.11.1943, Side 11

Ljósmæðrablaðið - 01.11.1943, Side 11
LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ 69 óslitið síðan. Þuríður var kennari Ljósmæðraskólans í Reykjavík 1905—1931 og prófdómari við sama skóla, sem nú ber nafnið Ljósmæðraskóli Islands, frá 1931. Hún hefir verið mjög athafnasöm í félagsmálum ljósmæðra, formaður Ljósmæðrafélags Islands frá stofnun þess, árið 1919, og ritstjóri Ljósmæðrablaðsins frá upphafi. Árið 1938 var Þuríður sæmd riddarakrossi Fálkaorðunnar. I janúar síðastliðnum sendu stjórnir Ljósmæðrafélags Rvíkur og Ljósmæðrafélags Islands bæjarstjórn Reykja- víkur bréf, þar sem með skýrum rökum var sýnd nauð- syn þess að setja á stofn mæðraheimili í Reykjavík, „sakir þeirra átakanlegu erfiðleika, sem umkomulausar mæður hafa við að stríða.“ Bærinn stofnaði heimilið í sumar og 15. júní kom fyrsta stúlkan þangað. Þuríður Bárðardótt- ir er húsmóðir heimilisins, og er það í Tjarnargötu 16, en Árni Pétursson er læknir þess. Dvelja stúlkurnar á heim- ilinu 2—4 vikur fyrir fæðingu, ala síðan börn sín á fæð- ingardeild Landsspítalans og eru svo á mæðraheimilinu 1—2 mánuði á eftir. Er hinn mesti myndarbragur á heim- ilinu og þessi nýbreytni til mikils sóma fyrir alla þá, sem að henni hafa stuðlað. Þórunn Björnsdóttir, Þórdís J. Carlquist og Þuríður Bárðardóttir hafa allar haft verklega ljósmæðrakennslu á hendi, en hún var eingöngu falin í því, að ljósmæðraefnin fengu að ganga með hinum lögskipuðu ljósmæðrum við fæðingu og hjúkrun sængurkvenna í Reykjavík, þangað til fæðingardeild Landsspítalans tók til starfa seint á árinu 1930. Lögskipuðu ljósmæðurnar voru fastsettir kennarar í verklegri kennslu frá 1912 og enn fá nemendur fæðing- ardeildar Landsspítalans að nokkru að fylgja einni ljós- nióður í bænum, Þórdísi J. Carlquist. Núverandi stjórn Ljósmæðrafélags Islands skipa: For- maður Þuríður Bárðardóttir, gjaldkeri Sigríður Sigfús- dóttir, ritari Jóhanna Friðriksdóttir.

x

Ljósmæðrablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.