Ljósmæðrablaðið - 01.07.1945, Blaðsíða 4
38
LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ
návist hennar datt mér oft í hug sagnir fornsagnanna af
hinum drengskaparmiklu og skörulegu kvenhetjum þeirra
tíma, að á þeirra bekk sómdi hún sér vel. Hún var í einu
og öllu svo, að ég býst ekki við að ég kynnist annarri eins
konu á lífsleiðinni. Tel ég að ég geri engri þeirra merku
kvenna, er ég hefi kynnst, rangt til með þeim ummælum.
Hún var ljósmóðir í Helgafellssveit 43 ár og sat auk
þess yfir nokkrum konum í Stykkishólmshreppi en ekki
er mér kunnugt hversu mörgum börnum hún hefir tekið
á móti. Veit ég ekki til annars en að Guð og gæfan hafi
ætíð verið í verki með henni þar sem annarsstaðar.
Trúkona var hún mikil enda skilst mér að engin kona,
geti verið mikil kona, góð móðir og fósturmóðir ef hún á
ekki hreina og heilsteyjita trú, en það held ég að öllum
er hana þekktu, komi saman um að hún hafi haft.
Vegna þess að heimili hennar var fyrirmyndarheimili hið
mesta var ætíð mjög gestkvæmt á því, sumar og vetur,
svo að hvíldartímar hennar voru fáir og smáir. Hún var
mikil fjör- og dugnaðar kona, svo að henni féll aldrei verk
úr hendi, en fyrir það var hún orðin útslitin fyrir aldur
fram.
Fyrir nokkrum árum fór að bera á heilsubilun sem
ágerðist, þótt hún léti það aldrei aftra sér frá því, að
standa ætíð í stöðu sinni með sama sóma og áður. Nú um
jólin fór hún til lækninga til Stykkishólms, en komst ekki
á fætur aftur. Hún dó 6. janúar og vantaði þá 1 viku til
að fylla 70 ára aldur.
Til marks um hinar miklu vinsældir hennar, má geta
þess, að skömmu eftir fráfall hennar, hófu nokkrar konur
í sveitinni f jársöfnun til minningarsjóðs er bæri nafn henn-
ar. I hennar fámennu sveit safnaðist á fáum dögum hátt
á fimmta þúsund krónur. Vinur.
Prú Þórleif Sigurðardóttir var félagi í Ljósmæörafélagi Islands
frá upphafi, og eru þessi minningarorð (nokkuð stytt), að fengnu
leyfi, tekin. úr Morgunblaðinu.