Ljósmæðrablaðið - 01.07.1945, Blaðsíða 5
LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ
39
Heilsuvernd á íslandi.
Eftir Vilmund Jónsson landlæknir.
Landlæknii- hefir samið ágæta ritgerð fyrir tímaritið „Heilbrigt
lif", er hann nefnir „Heilsuvernd á Islandi".
Hefir hann og ritstjóri tímaritsins leyft Ljósmæðrablaðinu að
birta þessa kafla úr téðri ritgerð.
Mæðra- og ungbarnavernd.
Auk fæðingarhjálpar almennra lækna og ljósmæðra og
starfsemi þeirra, sem lýtur að því að athuga heilsufar
barnshafandi kvenna með tilliti til þungunarinnar og
barnsburðarins og veita þeim leiðbeiningar þar að lútandi,
sem fleirum og fleirum konum lærist að hagnýta sér, hef-
ur heilsuverndarstöðin í Reykjavík nú um alllangt árabil
haldið uppi ókeypis þess háttar leiðbeiningarstarfsemi,
svo og varðandi meðferð ungbarna. Á fæðingardeild
Landspitalans var frá upphafi haft eftirlit með þeim
barnshafandi konum, sem ætluðu sér að ala börn sín á
deildinni. En nýlega hefur heilsuverndarstöð Rvíkur tekið
þetta eftirlit að sér og létt því af Landspítalanum. Síðast
liðin tvö ár hefur ungbarnaverndarstarf stöðvarinnar að
opinberri tilhlutan verið mjög aukið, og er nú að því
keppt, að stöðin fylgist með þrifum og framförum allra
ungbarna bæjarins innan eins árs aldurs og leiðbeini um
eldi þeirra og alla hirðu. Á vegum heilbrigðisstjórnarinn-
ar er gefið út leiðbeiningarit um meðferð ungbarna, er
ljósmæður um land allt fá öllum sængurkonum í hendur,
en þær munu flestar færa sér kostgæfilega í nyt. Á heilsu-
verndarstöðvum utan Reykjavíkur mun enn lítið eða ekki
hafa verið sinnt mæðra- og ungbarnavernd nema helzt á
ísafirði, og stendur það til bóta.