Ljósmæðrablaðið - 01.07.1945, Blaðsíða 8
42
LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ
Ætla sumir, að henni beri að eiga frumkvæði að aðgerð-
unum, í stað þess, sem er, að hennar hlutverk er að girða
fyrir misbeiting þeirra. Löggjafar þessarar mun ekki sjá
mikinn stað fyrr en foreldrum og öðrum aðstandendum
vanmetafólks skilst gildi hennar, en barnaverndarnefndir
og kennarar ættu hér að vera sjálfkjörnir leiðbeinendur.
Auk þess sem hjúskapur er í sóttvarnar skyni meinað-
ur fólki, sem haldið er smitandi kynsjúkdómi, berklaveiki
eða holdsveiki, nær slíkt bann einnig til fávita, geðveikra
manna og flogaveikra, og mun það bann sett til höfuðs
spillingu kynstofnsins. En lítils árangurs er að vænta af
slíkum ráðstöfunum í landi, þar sem allt að því fjórða
hvert barn fæðist utan hjúskapar.
Aðalfundur
(Útdráttur úr fundargerð).
Aðalfundur Ljósmæðrafélags Islands var settur 21. júní
1945 í Oddfellowhúsinu í Reykjavík. Á fundinum voru
mættar 30 ljósmæður og margar þeirra langt að komnar.
Frú Sigríour Sigfúsdóttir ljósmóðir setti fundinn í fjær-
veru formanns og stýrði hún fundinum. Fundarstjóri
minntist látinnar ljósmóður, Þorleifar Sigurðardóttur á
Kóngsbakka, og risu fundarkonur úr sætum. Ritari las
þá fundargjörð síðasta aðalfundar, og var hún samþykkt
athugasemdalaust. Gjaldkeri lagði fram endurskoðaða
reikninga félagsins, skýrði frá hag þess og kostnaði við
iitgáfu blaðsins og frá eignum sjúkrasjóðs. Fundarstjóri
skýrði því næst frá störfum stjórnarinnar á árinu; var