Ljósmæðrablaðið - 01.07.1945, Blaðsíða 12
46
LJ ÓSMÆÐR ABLAÐIÐ
5. Að endingu segir frk. Þuríður Bárðardóttir: „Af
reynslu minni þann stutta tíma, sem ég hefi verið hús-
móðir Mæðraheimilis Reykjavíkur, álít ég það mikið þjóð-
þrifamál, að ættleiðingar barna verði numdar úr íslenzk-
um lögum, en í þess stað verði börnum þeim, sem ekki geta
verið hjá mæðrum sínum, komið fyrir hjá góðu fólki, sem
fósturbörnum, og mætti þegar tækifæri gæfist, skýra þetta
mál frá mörgum hliðum.“
Talsverðar umræður urðu um þetta atriði, og töldu •
fundarkonur það bæði viðkvæmt og vandasamt til úrræða.
Var engin sérstök ákvörðun tekin í því.
Fleira var ekki til umræðu undir frjálsum umræðum.
Að lokum mælti fundarstjóri nokkur orð til fundarkvenna,
þakkaði mjög velsóttann og ánægjulegann fund og sagði
fundi slitið.
Var þá komið fast að miðnætti, settust fundarkonur að
kaffiborði, sem fram hafði verið sett, og var þar margt
rætt á víð og dreif.
Lög um Hjúkrunarkvennaskóla íslands.
Ríkið heldur uppi heimavistarskóla fyrir hjúkrunar-
nema, undir stjórn 5 manna skólanefndar. Formaður er
landlæknir. Hina 4 skipar ráðherra, sem sé: yfirhjúkrun-
arkonu Landspítalans; einn eftir tillögu Fél. ísl. hjúkrun-
arkvenna; einn eftir till. sjúkrahúsa utan Reykjavíkur;
loks skal einn vera sérfróður um skóla- og uppeldismál.
Sérmenntuð skólastýra veitir skólanum forstöðu, en að-
alkennarar skulu vera yfirhjúkrunarkona og aðstoðar-
læknar Landspítalans. — Námstími er 3 ár, auk 8—12
vikna forskóla. Skólavistin er ókeypis, og kaup greiðist
nemunum fyrir hjúkrunarstörf.
Svo er til ætlazt, að komið verði á almennu framhalds-