Ljósmæðrablaðið - 01.07.1948, Blaðsíða 5
LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ
39
ávinningur Ljósmæðrafélagi Islands gæti orðið að því
að ganga í Bandalag starfsmanna ríkis og bæja, og beita
sér fyrir, að gengið verið í það, ef hún álítur að það
verði ljósmæðrum til hagsbóta.“
Þetta mál var svo tímafrekt, að setzt var að kaffi-
drykkju í miðjum umræðunum, og var margt rætt um
félagsmál og starfið í heild, meðan á því stóð.
Að síðustu kvaddi gjaldkeri sér hljóðs og sagði fjár-
hag félagsins svo erfiðan hin síðari ár, m. a. vegna auk-
ins kostnaðar við útgáfu Ljósmæðrablaðsins, að óhjá-
kvæmilegt væri, að hækka árgjald félagsins. Tóku fund-
arkonur því mjög vel, og vildu jafnvel sumar hækkun
u«i helming. Niðurstaðan varð sú, að fundurinn samþykkti
hækkun um kr. 10.00 — tíu krónur —, svo að nú er árs-
tillagið og blaðið kr. 25.00, og er það þó ekki meira en
rífleg vísitöluhækkun frá 7 króna árgjaldinu.
Var nú dagur að kvöldi kominn. Þakkaði formaður
fundarkonum komuna og sagði fundi slitið.
S t j ó r n i n.
Gjaldið öllum það, sem skylt er.
Fyrir nokkur barst stjórn Ljósmæðrafél. Islands bréf
frá landlækni, þar sem hann mælist til, að Ljósmæðrablað-
ið flytji ljósmæðrum landsins tilmæli sín um að vanda sem
allra bezt til tilkynninga sinna og annara skýrslugerða,
og að þær tilkynningar og skýrslur séu sendar á réttum
tíma.
Ástæðan fyrir þessu er bréf frá hagstofustjóra til land-
læknis, þar sem kvartað er mjög um afgreiðslu ljósmæðra -