Ljósmæðrablaðið - 01.07.1948, Blaðsíða 13
LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ
47
og fluttist suður á Miðnes fyrir 60 árum og hefur átt þar
heima síðan, lengst af í Syðstakoti.
Þorbjörg lærði ljósmóðurfræði 1907 og starfaði síðan
sem ljósmóðir í Miðneshreppi í 31 ár. Hún var sérstak-
lega heppin ljósmóðir og sýndi í því sem öðru, sérstak-
an kjark og dugnað, enda mjög vinsæl og vel látin. Munu
vinir hennar og sveitungar senda henni hlýjar kveðjur á
áttræðisafmælinu.
(Grein í Morgunbl. 2. júní, nokkuð atytt).
Ljósmœðraskóli Islands
Námsárið hefst 1. október næstkomandi. Nemend-
ur skulu ekki vera yngri en 20 ára og ekki eldri en
30 ára, heilsuhraustir (heilbrigðisástand verður nán-
ar athugað í Landspítalanum). Konur, sem lokið
hafa héraðsskólaprófi eða gagnfræðaprófi ganga
fyrir öðrum. Eiginhandarumsókn sendist stjórn
skólans á Landspítalanum fyrir 1. september. Um-
sókninni fylgi aldursvottorð, heilbrigðisvottorð og
prófvottorð frá skóla, ef fyrir hendi er.
Umsækjendur, sem hafa skuldbundið sig til að
gegna ljósmóðurumdæmi að námi loknu, skulu senda
vottorð um það frá viðkomandi oddvita.
Landspítalanum, 1. júlí 1948.
. ,, Guðm. Thoroddsen.
Ath.
Umsækjendur ljósmæðraskólans eru beðnir að
skrifa á umsóknina greinilegt heimilisfang, og hver
sé næsta símastöð við heimili þeirra. Gott væri ef
þær gætu haft með sér eitthvað af rúmfötum.