Ljósmæðrablaðið - 01.07.1948, Blaðsíða 7
LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ
41
með kröfur sínar í þessu efni og gera sig ánægða með
að við skilum skýrslum okkar í lok hvers mánaðar; ætti
það ekki að vera ofraun nokkurri ljósmóður, hvað mikið
sem hún hefir að gera, því að ekki mun taka öllu meira
en 3 til 4 mínútur að skrifa hverja tilkynningu, aðeins
skrifa hverja eina strax við fyrstu hentugleika, en ekki
geyma það eftir þeirri næstu. — Nú eru heilsuverndarstöðv-
arnar að verða milliliður milli Ijósmæðra og presta í þessu,
ekki munu þær þó eiga sök á vanskilunum.
Jóhanna Friðriksdóttir.
Frá Kvinnokliniken í Lundi.
Þverlega barns
vegna fullrar þvagblöðru.
Eftir Sven Sjöstedt.
Þýtt úr „Jordemoderen" af Skúla Bogasyni lækni.
Orsakir þverlegu eru oftast sem hér greinir:
1) Barnið (fóstrið) er mjög hreyfanlegt.
2) Legið er vanskapað.
3) Einhver hindrun aftrar höfði barnsins frá efra
grindaropinu.
Ófullburða börn eru töluvert hreyfanlegri en fullburða
börn og liggja því oftar í þverlegu en þau. Ef of mikið leg-
vatn er fyrir hendi, þá hefur barnið meira svigrúm en
þegar legvatnið er mátulegt. Svipuðu máli gegnir um seinni