Ljósmæðrablaðið

Årgang

Ljósmæðrablaðið - 01.03.1949, Side 6

Ljósmæðrablaðið - 01.03.1949, Side 6
16 LJÖSMÆÐRABLAÐIÐ við heilsuverndarstöðina í hverju hverfi. Auk þess væru almennar hjúkrunarkonur til heimahjúkrunar. LJÖSMÆÐUR. Rétt væri að banna, eins fljótt og unnt er, að ljósmæður sinni fleiri en 60 konum árlega. Eftirlit með ljósmæðrum og tækjum þeirra verði aukið og komið á námskeiðum, sem þær geti sótt á fimm ára fresti, eða svo. Nauðsynlegt er, að hinar almennu ljósmæður hafi sam- band við heilsuverndarstöðina, en auk þess starfi svo fast- ráðnar ljósmæður við stöðina í hverju hverfi. Það væri siðferðisleg skylda bæjaryfirvaldanna, að gera allt sem í þeirra valdi stæði til að útvega ljósmæður, jafnvel kosta valdar stúlkur á skóla, tryggja þeim at- vinnu á eftir o. s. frv.; ef bæjaryfirvöldin vanræktu þessa skyldu ættu heilbrigðisyfirvöld landsins að skerast í leikinn. KOSTNAÐUR. Athugandi væri, hvort ekki væri rétt, að ríkissjóður og bæjarsjóður skipti með sér kostnaðinum við ofan nefndar starfsgreinar að hálfu. Heilsuverndaifjtöðvar. Heilsuverndarstöðvar verði 5 í bænum, ein fyrir hvert 10 þús. manna hverfi. Bærinn byggir stöðvarnar á eigin kostnað, og rekur þær, en reksturinn, hvað mannahald snertir, verði greiddur að hálfu úr ríkissjóði. Sameiginleg stjórn stöðvanna verði á hendi heilbrigðisnefndar og héraðslæknis. Einstökum stöðvum verði stjórnað af for- stöðukonu, sem sé heilsuverndarhjúkrunarkona, að menntun. 1. Eftirlit með barnshafandi konum, og konum með börn á brjósti, þar í innifalið tannlækningar. 2. Eftirlit með smábörnum, á fyrsta og öðru ári.

x

Ljósmæðrablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.