Ljósmæðrablaðið

Árgangur

Ljósmæðrablaðið - 01.03.1949, Blaðsíða 8

Ljósmæðrablaðið - 01.03.1949, Blaðsíða 8
18 LJÖSMÆÐRABLAÐIÐ ir eru, á almennum sjúkrahúsum, og þyrfti auðvitað að athugast gaumgæfilega, hvernig þeim rúmum yrði bezt varið, og yrði í því sambandi að endurskipuleggja þau rúm, sem fyrir eru. Á meðan eftir þessu yrði beðið, væri nauðsynlegt að samræma rekstur þeirra sjúkrahúsa, sem fyrir eru í bæn- um, svo að rúmin nýttust betur, og þyrfti ein skrifstofa að vita um öll auð rúm á hverjum tíma. Ef miðað væri við, að Reykjavík þyrfti að láta í té sjúkrarúm fyrir 80 þús íbúa, væri hæfilegt, að þeim yrði þannig skipt: Alm. lyflækningar ........ 150 rúm Alm. handlækningar _________ 150 — beinbrot og ,,orthopædi“ innifalið. Barnaspítali ............ 65 — Fæðingarheimili ............. 65 — Kvensjúkdómar ........... 20 — Háls-, nef- og eyrnasjúkd.. 20 — Alls 445 rúm Það er siðferðileg skylda bæjaryfirvaldanna að byggja sjúkrahús, svo að þörfinni sé fullnægt í bænum, enda koma ríflegir styrkir á móti frá ríkinu. Veika liliðin á þessu máli er reksturinn, og mætti teljast sjálfsagt, að Tryggingastofnunin héldi bæjarfélögin skaðlaus af rekstri sjúkrahúsa, ef hún ekki vildi reka þau sjálf. Sérfræðingar. Athuga þarf þörfina fyrir sérfræðinga og skapa þeim aðstöðu til starfa á sjúkrahúsum og lækningastöðvum. Til mála gæti komið, að hvetja menn eða styrkja til að nema sérgreinar, sem enn vantar menn í, enda fái þeir, að afloknu námi, aðstöðu til starfa.

x

Ljósmæðrablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.