Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 22.12.1921, Side 29
T í M A R I T V. F. í. 1 9 2 1.
Líffryggingapf jelagíð
flndvaka Ij.f.
Kjristianiu, Noregi.
Venjulegar líftryggingar, barnatryggingar og lífrentur.
tslandsdeildin: Löggilt af Stjórnarráði íslands í desember 1919.
Ábyrgðarskjölin á íslensku. Varnarþing í Reykjavík. Iðgjöldin lögð inn í Landsbankann.
,ANDVAKA‘ hefir frjálslegri tryggingarskilyrði og ákvæði en flest önnur líftryggingarfélög.
.ANDVAKA' setur öllum sömu iðgjöld! (Sjómenn t. d. greiða engin aukagjöld).
,ANDVAKA‘ veitir líftryggingar, er eigi geta glatast nje gengið úr gildi.
,ANDVAKA‘ veitir bindindismönnum sjerstök hlunnindi. Ættu því bindindismenn og bannvinir að
skifta við það fjelag, er styður málsþið þeirra.
,ANDVÖKU‘ má með fullum rjetti telja líftryggingarfjelag ungmennafjelaga, kennara og bænda í Nor-
egi. Enda eru ýmsir stofnendur fjelagsins og stjórnendur og mikill fjöldi bestu starfs-
manna þess úr þeim flokkum.
.ANDVAKA' veitir „örkumlatryggingar“ gegn mjög vægu aukagjaldi, og er því vel við hæfi al-
þýðumanna!
Sjómenn og verkamenn, listamenn - og íþróttamenn, iðnaðarmenn og kaupsýslurpenn, rosknir
menn og börn, bændur og búalið, karlar og konur hafa þegar líftrygt sig í „Andvöku“.
Skólanemendur, sem láns þurfa sér til mentunar, geta tæplega aflað sér betri tryggingar en
góðrar lífsábyrgðar í „Andvöku“.
Helgi Valtýsson, forstjóri Islandsdeildar. Heima: Qrund við Sauðagerði. Pósth. 533, Reykjavík.
Gunnar Egilson
vátryggingarskrifstofa
Hafnarstræti 15"
Sjó- & Stríðs-
Eruna-
Slysa-
Ferða-
Líf-
tryggingar
\
Simnefni: Shipbroker. -- Talsimi 608.