Ljósmæðrablaðið

Årgang

Ljósmæðrablaðið - 01.03.1957, Side 5

Ljósmæðrablaðið - 01.03.1957, Side 5
LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ 15 hennar, og víst er um það, að einkenni eins og sama sjúkdóms geta birzt með ólíkum hætti, eftir því hvort um karl eða konu er að ræða. Yfirleitt eru einkennin gleggri hjá konum, líflegri, eða eigum við að segja blóm- legri. Tímabundnar sveiflur geðsjúkdóma eru einnig greinilegri, þegar konur eiga í hlut. Við vitum, að tíðir og undirbúningur þeirra orka á heilbrigðar konur á sérstakan hátt. Þær reiðast frekar af smámunum, er grátgjarnara, eru fyrtnari en ella eða jafnvel miður sín og fá hræðsluköst að ástæðulausu. Þær eru viðkvæmari en þæi’ eiga annars að sér að vera og stundum örari í skapi. Viðbrögð hverrar einstakrar konu við tíðum eru háð líkamlegu og andlegu ástandi hennar. Það mun verða of- langt mál að flytja hér fullnægjandi fræðslu um nýrri rannsóknir á þessu efni, en til nokkurrar leiðbeiningar mætti verða það, sem hér fer á eftir: Þó að um sama sjúkdóm sé að ræða, þá er þó hver einstaklingur sérstæð persóna, sem tekur örlögum sín- um á sinn sérstaka hátt og bregzt við sjúkdómum og öðrum erfiðleikum eftir því, sem hann er maður til. Mönnum hefur lærzt að skipta fólki í hópa eftir líkams- skapnaði og vaxtarlagi þess. Það hefur komið í ljós, að menn, sem eru líkir á vöxt, eru einnig oftar en hitt svipaðir að andlegri gerð. Litlir, hálsstuttir og kubbslegir menn, riðvaxnir menn, eru að jafnaði opinskárri, fjörugri og mannblendnari en hinir háu, grannvöxnu eða renglu- vöxnu menn. Mitt á milli þessara hópa eru kraftalegu vöxnu mennirnir, sterkbyggðir menn, vöðvastæltir og herðabreiðir. Sálarástand riövaxins manns tekur miklum sveiflu- breytingum. Hann er glaður og bjartsýnn, þegar vel gengur, en dapur og þunglyndur þegar á móti blæs. Hann er fljótur að bregða við, opinskár í tali og röskur að af- greiða hvert mál. Menn þessir hafa hringhuga (zyklo-

x

Ljósmæðrablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.