Ljósmæðrablaðið - 01.03.1957, Side 13
LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ
23
slíka meðferð. Hana má viðhafa fram á 9. mánuð með-
göngutímans.
Um nýtízku sálarlækningar er það oft að segja, að
erfitt er að koma þeim við útum sveitir og þá einkum
vegna víðáttu landsins. — Þar að auki er hér hörgull
geðveikralækna.
En þetta, sem ég hef bent á: að setja á laggirnar
nefnd, sem leitar uppi og hjálpar þeim barnshafandi kon-
um, sem líta á allt það, er þeirra bíður í því sambandi
sem yfirvofandi ógæfu, það er geðheilsuvernd, sem vert
er um að tala.
Aðalfundur
Ljósmæðrafélags íslands verður haldinn þ. 4. júní n. k.
kl. 13,30 í Tjarnarkaffi í Reykjavík. Venjuleg aðalfundar-
störf. Rætt um breytingar á lögum félagsins.
STJÖRNIN
Hjálp í viðlögum.
Fyrir nokkru var á það minnst hér í blaðinu vegna end-
urtekinna óska sem félaginu hafa borist, að einhverjar
ljósmæður í Reykjavík eða Hafnarfirði gæfu sig fram
sem einskonar hjálp í viðlögum ef á þyrfti að halda í for-
föllum annara ljósmæðra t. d. næturvakt á sjúkrahúsum
(fæðingardeildum), leysa af i sumarleyfum eða öðrum for-
föllum ef á þyrfti að halda. Nú hefur frú María Jónsson
ljósmóðir í Skipasundi 75, sími 4367, Reykjavík, gefið kost
á því að til hennar megi leita í þessum erindum. Gott væri
ef fleiri vildu gefa sig fram. Upplýsingar í síma: 7537.