Freyr - 01.05.1905, Qupperneq 8
40
FREYR.
Sýningin i>iö Varmá.
Búnaðarfélag Mosfellssveitar og Kjalarness-
hrepps hélt sýningu á eyrinni við Varmá i
Mosfellssveit við þjóðveginn 19. júní.
Verðlaunaféð var 300 kr., 150 kr. fráLands-
búuaðarfélaginu og hitt frá búnaðarfélagi Kjal-
arness og Mosfellssveitar. Af því að verðlauna-
féð var tiltölulega mikið borið saman við skepnu-
fjölda, voru verðlaun höfð með hæsta móti,
svipuð og á Þverársýningunni.
Sýningarsvæðið var afgirt og lagiega út-
búið. — Sýningin byrjaði kl. 2 e. m. og stóð
til kl. 8. Veður var ágætt og fólk mjög margt
500— 600. Af skepnum komu : 8 naut, 19 kýr,
2 graðfolar, 17 hryssur, 7 hrútar og rúmar 80
ær. • Sú nýjúng var á þessari sýningu, að á
verðlaunaskepnurnar voru hengd bréfspjöld, þar
sem prentað var á nafn sýningaritmar, sýning-
ardagur og verðlaunaflokkur, og ritað neðan-
undir nafn og heimili eiganda. Þetta er al-
siða erlendis og gjört til þess að fólk eigi hægra
með að átta sig á verðlaunaútbýtingunni.
Skepnurnar á Varmársýnitigunni voru með
jafnlakasta móti, engin skepna reglulega falleg
nema nautið frá Viðey. Nokkur fleiri af naut-
unum voru og rétt lagleg. Eitt frá Elliðakoti
3 ára var mjög stórt og föngulegt, en fremur
af holdakyni. Engin af kúnum var vel falleg.
Hvorugur graðfolanna var líklegur til kynbóta.
Sá rauði frá Esjubergi er að vísu fremur lag-
legur en lítill og útskeifur á framfótuin. Hryss-
urnar suraar voru fremur laglegar, sérstaklega
ein jarpsokkótt fráLambhaga. Sauðféð var jafn-
skást enda tiltölulega mest af því; nokkrirbeztu
hrútarnir höfðu þó sloppið á fjall til skaða fýr-
ir sýninguna.
Eyrstu verðlaun hlutu: Eggert Briein Við-
ey fyrir rautt naut 2 ára (15 kr.), SturlaJóns-
son Brautarholti fyrir bleikskjöldótta kú 10 v.
(10 kr.), Gruðm. Kolbeinsson Esjubergi fyrir
gráskjöldótta kú 8 v. (10 kr.), Kári Loptsson
Lambhaga fyrir jarpsokkótta hryssu 10 v. (10
kr. i, Guðm. Magnússon Elliðakoti fyrir svart-
an lirút 3 v. (6 kr.) og Kristján á Álafossi og
Jón á Mosfelli fyrir ær, 5 kr. hvor.
Sýningin við bndirfellsrétt.
Hún var haldin 29. jútií fyrir Áshrepp í
Vatnsdal. — Verðlaunaféð var 200 kr., 100 kr.
frá Bf. ísl. og 100 kr. frá búnaðarfélagi Ás-
hrepps. Hæð verðlauna var svipuð og á Mýr-
dalssýningunni en sýningarkostnaðurinn mun
hærri, 40 kr.; á nautgripi kom 84 kr., á hross
48 kr. og á sauðfé 28 kr. — Skráð var til sýn-
ingarinnar: 3 graðfolar, 16 hryssur, 4 naut, 29
kýr, 5 hrútar og 23 ær. Af skepnum þeim,
sem skráðar voru til sýningarinnar, komu eigi
3 af hrútunum — höfðu sloppið á fjall —, aftur
komu talsvert fleiri hryssur, og mikið fleiri ær
— um 50.
Sýningin byrjaði laust fyrir hádegi og stóð 5
stundir. Veður var ágætt, fólk um eða yfir 100.
Hrossin á þessari sýningu voru yfirleitt mun
stærri en á nokkurri annari sýningu, erjegbefi
verið á hér heima. Tvær hryssur voru fast að
54” á hæð, og eigi allfáar 52”—53”. Kropp-
byggingin var yfirleitt sterkleg og samsvaraði
sér vel, fætur mikið lakari, framtótarleggirnir
á mörgum of mjóir og framfætur útskeifir, hóf-
ar á suinum hvergi nærri góðir. Folana var
ekkert sérlegt við, enda ekki útbýtt fyrstu verð-
launum fyrir þá. — Kýrnar voru stórar, en
yfirleitt nokkuð grófgerðar og eftir útliti að
dæma fremur lagnar til holda en mjólkur. Eng-
in þeirra var verulega gæðaleg. Af nautunum
var aðeins eitt fallegt, nautið frá Þóroddstungu,
hin voru naumast verðlauna verð, endaöllung.
Af hrútum komu aðeins 2, hvorugur fallegur
og áleit dómnefndin þá ekki verðlauna verða.
Ærnar voru þar á móti yfirfeitt mjög fallegar,
enda mun sauðfé óvíða vera eins vænt hér á
landi og á sumum bæjum í Yatnsdal.
Eyrstu verlaun hlutu: Jón Hannesson Þór-
oddstungu fyrir svart naut l'/„ árs (12 kr.) og
rauðflekkótta kú 8 vetra (10_kr.), Stefán Magn-
ússon Elögu fyrstu verðlaun fyrir gulflekkótta
kú 10 vetra (10 kr.), Hallgrímur Hallgrímsson
Hvammi fyrir gráa hryssu 12 vetra 5272” (10
kr.) og Björn Sigfússon Kornsá og Kristján
Blöndal Gilstöðum fyrir ær 3 kr. hvor.
Sýningin á Sauðárkrök.
Skagfirðingar héldu sýningu á Sauðárkrók
4. júlí í sambandi við aðalfund Ræktunarfélags
Norðurlands. Búnaðarfélagið styrkti sýninguna
með 150 kr. móts við jafnmikla upphæð, er