Ljósmæðrablaðið

Árgangur

Ljósmæðrablaðið - 01.01.1969, Blaðsíða 4

Ljósmæðrablaðið - 01.01.1969, Blaðsíða 4
4 LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ Þegar ritstjóri Ljósmæðrablaðsins, frú Jóhanna Jóhannsdóttir, bað mig um að segja lesendum blaðsins frá dvöl minni á erlendri grund sex mánuði ársins 1968, runnu á mig tvær grímur. Margt bar til þessa m. a. það, að ég vissi, að erfitt yrði í stuttu máli að segja frá því, sem við hafði borið þessa viðburðarríku mánuði. En þar sem ég hefi alltaf litið svo á, að Ljósmæðrablaðið ætti að vera „rödd“ ljósmæðranna sjálfra, ásamt öðru fleiru, gat ég auðvítað ekki neitað þessari beiðni, en í staðinn þakkað fyrir. Auk þessa er ég í þakkarskuld við Ljósmæðrafélag Islands, sem veitti mér sex þúsund króna styrk til þess- arar námsferðar og finnst mér ég bezt geta greitt hana og þakkað með því að deila með ljósmæðrum landsins því, sem ég fékk að njóta að svo miklu leyti, sem það er hægt í örstuttri blaðagrein. Ég flaug frá Reykjavík í blíðskaparveðri 31. janúar 1968 og var komin til Lundúnaflugvallar eftir nákvæm- lega 2 klukkustunda og 10 mínútna flug. í Englandi sótti ég síðan námskeið í uppeldis- og sálarfræði auk uppá- haldsgreinar minnar psychoprophylactic (Psyco—hugur. Prophylactic=undirbúningur). Þegar ég svo yfirgaf Eng- land eftir 4 mánaða dvöl og lagði leið mína til Frakklands, hafði ég auk þess, sem að framan greinir, kynnzt nýjung- um í fæðingarhjálp og skipulagningu fæðingarstofnana. Lengst dvaldi ég á Charing Cross Hospital og Mile End Hospital, London. Cheltenham Maternity Hospital, Chelt- enham, Gloicestershire. Barking Hospital, Barking og St. Mary’s Hospital, Portsmouth, auk annarra og fleiri stofn- ana fyrir styttri tíma. Mig hafði lengi langað til að heimsækja stofnun hins ágæta manns Dr. F. Lamage í París. Og nú, þegar ég hafði þetta alveg við bæjardyrnar, ef svo mætti segja, kom allt í einu babb í bátinn. Stúdentaóeirðir, verkföll. Allt í hers- höndum í hinni fögru, frægu borg við Signu. Hvað átti ég nú að gera? Ég var ekki ánægð með að gefast upp. En

x

Ljósmæðrablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.