Ljósmæðrablaðið - 01.01.1969, Qupperneq 15
LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ
15
20. Óttist þér að líffæri yðar kunni að verða tekin áður
en þér eruð alveg skilinn við?
21. Teljið þér að ætið sé lífsvon meðan maður er á lífi?
22. Teljið þér að allar læknisfræðilegar tilraunir vorra
daga séu siðferðilega réttlætanlegar ?
24. Getið þér hugsað yður að lifa áfram með líffæri úr
ýmsum mönnum?
25. Getið þér hugsað yður að lifa með líffæri úr dýri?
26. Ef þér væruð í lífshættu, væri yður þá sama úr hverj-
um líffærið væri, sem gæti bjargað yður?
27. Gætuð þér hugsað yður að lifa með hjarta úr hengd-
um morðingja?
28. Mynduð þér samþykkja líffæraflutning jafnvel þótt
batavon væri mjög lítil?
29. Mynduð þér vilja leyfa á yður læknisfræðilegar til-
raunir, jafnvel þótt þær myndu ekki bjarga sjálfum
yður heldur ,,aðeins“ komandi kynslóðum?
Jöhanna Jóhannsdóttir
^ungnakrabbi.
Hver 17. Dani, sem dejn- á þessu ári andast úr lungna-
krabba, segja opinberar skýrslur í Kaupmannahöfn.
^rófessor Tyge Söndergaard, sem vinnur að krabbameins-
vÖrnum í Danmörku, lætur eftir sér hafa að þeir, sem
byrji að reykja ungir, geti reiknað með 10% líkum þess
að deyja úr lungnakrabba.
Af 1000 lungnakrabbasjúklingum eru 800 karlmenn og
2°0 konur. Prófessor Söndergaard segir, að ekki sé hægt
að skera fjórðung þessara sjúklinga, þar sem meinið vaxi
Ur lunga inn í hjarta. Þessir sjúklingar lifa í mesta lagi
Utn tvö ár þótt geislameðferð sé beitt.
flestir af þeim, sem skornir eru, missa annað lungað.
Ver 10. sjúklingur deyr á sjúkrahúsi í sambandi við
s íkar skurðaðgerðir. J. J.