Ljósmæðrablaðið - 01.01.1969, Síða 16
16
LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ
Öryggisnœlur.
Upp á flestu er tekið í sölumennsku. Ameríkanar fram-
leiða nú öryggisnælur, sem ætlaðar eru til átu fyrir smá-
börn. Er þeim hælt á hvert reipi, sagðar bragðgóðar og
fullar af fjörefnum. Þótt nógu varhugavert megi teljast,
að örva börn til þess að gleypa öryggisnælur — ef óætar
skyldu einnig verða á vegi þeirra, er þó engu síður
ástæða til þess að brýna fyrir mæðrum að gefa ekki
börnum sínum of mikið af fjörefnum a. m. k. A-og D
fjörefnum, þar sem nú er sannað af of mikið magn þess-
ara efna getur verið skaðlegt. Ofnotkun á A-fjörefni
getur valdið ógleði, sljóleika, höfuðverk og svima. Ef of
mikið magn er tekið í lengri tíma getur komið í ljós
lystarleysi, hárlos, sprungur í munnvirkjum og jafnvel
vaxtarskekkjur í beinum. Ofnotkun D-fjörefnis getur
haft svipaðar almennar verkanir, og er auk þess talið, að
ef vanfærar konur neyta þess í miklu óhófi geti börn þeirra
fæðst með of mikið kalk í beinum og líffærum og verið
andlega vanþroska. Stærri börn og fullorðið fólk getur
þó án nokkurrar áhættu tekið eina blandaða fjörefna-
töflu daglega.
Þýtt og endursagt J. J.