Freyr

Volume

Freyr - 01.04.1909, Page 2

Freyr - 01.04.1909, Page 2
50 FREYK ur gefinn og gerðar séu, þótt ekki væru nema smávægilegar tilrauuir í þessu efni, en fiinsvegar er hægt að gera ýmsar atfiuganir fiér að lútandi í sjálfri náttúruuni, svo að unt er að gera sér allákveðnar skoðanir á málinu, ef menn aðeins gefa gaum náttúrunni og þeim bendingum og upplýsingum, er fiún gefur í þessu eíni. Náttúrlegar áveitur eins og Safamýri, sveit- ir eins og Olfusið, fiinir algengu flóar og keldu- drög benda til þess, að vatn eigi að vætla um og flóa yfir sem mestan filuta árs, þar sem jörð er svo votlend að þar gróa ekki nema votlendisstarir og önnur fiálfgrös. Á slíkum stöðum bendir náttúran til þess að störin og brokið spretti þeim mun betur sem vatnið liggur lengur á, og því eigi ekki að hleypa vatninu af nema um sláttinn, ekki vegna gras- vaxtarins heldur vegna heyskaparins til þess að fara megi um áveitusvæðið þurrum fótum. Náttúran bendir ennfremur á, að vatnið má ekki vera of djúpt og að það má ekki vera dautt vatn (fúlt vatD), því að þá tekur fyrir gróðurinn eins og rotbiettir víða sýna ljóslega. Aðalatriðið til þess að votengisáveita spretti sem bezt virðist vera þetta: 1. að vatnið sé látið liggja á sem mestan filuta árs og að því sé ekki fileypt af fyr en um eða undir slátt. 2. að vatnið sé ekki dýpra en svo að jurtirn- ar nái að spretta upp úr því. 3. að vatnið endurnýist, svo að það sé ferkst og færi jörðunni sem mest súrefni m. m. Samkvæmt reynslu manna eru fiálfgrösin fiér á landi, þar sem þau á annað borð spretta vel, sérlega gott fóður; má því ófiætt telja á- litamál fivort rétt sé að verja miklu fé til þurk- uuar til þess að geta aflað valllendisheys f stað stargresis og annara votlendisgrasa, eins og ráðgert er um Elóaáveituna. En eg tel ínjög efasamt að sú tilfiögun, sem gert er ráð fyrir á fienni, sé hvarvetna á áveitusvæðinu skyn- samleg.1) Hér á landi er engin reynsla, svo eg viti,. fengin fyjir eiginlegri valllendisáveitu, nema á fiarðvelli, sem jafnframt er borið á. Eg þekki ekki að fiún sé notuð fiér á landi og mun það einkum stafa af því, að víðast þar sem gerðar hafa verið áyeitur, mun vera mjög kostnaðar- samt að þurka svo vel sem þörf er á fyrir valllendisgróður, sem veitt er á. Og fivergi fiefi eg orðið var við þau skilyrði fyrir fiendi í náttúrunni, að eg fyrir mitt leyti geti gert mér ákveðna fiugmynd ura fivernig eiginleg valllendisáveita gefist fiér á landi, þegar á alt er litið. £>ar sem um mýrar og annað votlendi er að ræða, hygg eg óvarlegt að ráðast í þann þurkunarkostnað, er valllendisáveita hefir í för með sér, og að varlegra sé að svo stöddu að ráðast ekki nema í votengisáveitu, er fiefir lít- inn annau kostnað i för með sér en þörf er á til áveitunnar sjálfrar, með því að ekki þarf þá að kosta til þurkunar nema að litlu leyti og víða jafnvel alls ekki neinu. Til þess að gera sér sem hægast fyrir við fieyskapinn, er æskilegt að vatninu verði fileypt af og fara megi þurrura fótum um á- veitulöndin. Kæmi það í ljós við tilraunir, að valllend- isáveita gæfi meira af sér í fireinan arð en vot- engisáveita, raætti altaf breyta votengisáveitu >) Að því er snertir Flöaáveituna er naum- ast gerandi ráð fyrir sparnaði á hinum áætlaða kostnaði við bana, þótt gert væri ráð fyrir vot- engisáveitu, því að þeir afveitu eða þurkunarskurðir, sem gert er ráð fyrir, mundu að mestu leyti nauðsyn- legir alt að einu til þess að heyskapurinn geti geng- ið sem greiðast; aftur á móti mundi stórum minka sá kostnaður, sem einstökum mönnum er ætlað að leggja fram fé til og ekki er gerð áætlun um, með því að hann mun að miklu leyti vera fólginn í þurkun, er yrði ónauðsynleg, væri áveitunni ætl- a3 að vera votengisáveita.

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.