Freyr - 01.04.1909, Síða 8
56
FREYR.
Um áburð
eftir Torfa Bjarnason.
(Niðurl.)
Eg gat þess að framaD, að við helðum
litla eða enga hugmynd um fémœti áburðarms.
En það er mjög þarflegt, jafnvel alveg nauð-
synlegt að verðleggja hann. Með því eina móti
venst maður af því, að telja áburðinn einkis
virði. Og það ætti líka að verða til þess að
vér færum að hirða áburðinn betur. Svo er
annað sem gjörir verðsetning áburðarins nauð-
synlega. Yór brúkum áburðinn að vísu mest
á túnin, en vér brúkum lika nokkuð í matjurta-
garða. Og þar sem menn gjöra einhverjar til-
raunir með sáðrækt cil fóðurs, þar brúka menn
áburð. Og bóndinu þarf að vita hvað áburð-
urinn kostar, sem hann ber á túnið, og telja
túninu hann til útgjalda, þegar gjörður er upp
ársreikningurinn við það. Satna er um mat-
jurtagarðinn, og sáðjurtir til fóðurs. Aburður-
inn er allhár útgjaldaliður hjá öllu þessu, og
nauðsynlegt að vita upphæð hans, annars er
ekki unt að segja hvernig túnræktin, matjurta-
ræktin, eða fóðurjurtaræktin hefir borgað sig
það og það árið. —
En hvernig á að fara að þvi að verðleggja
þann hlut, sem enginn selur og enginn kaupir?
Eg skal nú benda á kvernig menn fara að þvi.
Beinast lægi við að verðleggja áburðinn ettir
því gagni sem hann gjörir. En það er ekki
auðhlaupið að þvi, og hafa menn því notað aðra
aðferð, en hafa um leið hliðsjón af gagninu
sem áburðurinn gjörir.
í öðrum löndum hafa bændur ýmsar teg-
undir af verzlunaráburði, sem menn vita vel
hvað rriikið hafa í sér af köfnunarefni, kalí, eða
fosfórsýru, sem eru einu efnin, er menn taka til
greina þegar áburðurinn er verðlagður. Verðið
á þessum áburðartegundum breytist ekki mik-
ið, og menn geta svo eftirverði þeirra reiknaðhve
dýrt hvert af þessum fyrnefndu efnum verðurí’
verzlunaráburðinum: Ef að telja má t. d. að
Kílísaltpétur, sem hefir 15—16% af köfhunar-
efni, kosti heimfluttur kr. 13,50 hver 100 pd.-
þá kostar 1 pd. af köfnunarefni i honum 87
aura, og ef kalísalt með 37% kalí kostar kr.
8,50 heimflutt hver 100 pd., þá kostar 1 pd.
af kalí 23 aura, og ef að súperfosfat með 20%.
fosfórsýru kostar kr. 5,50, hver 100 pd., þá kost-
ar hvert pund af fosfórsýrunni 27% e. Þegar
útlendingar verðleggja húsdýraáburðinn leggja
þeir verð verzlunarábui ðarins til grundvaliar,
en setja verðið á köfnunarefni, kalí og fosfór-
sýru í húsdýraáburðinum nokkuð lægra en í
verzlunaráburði, — einkum þó á köfnunarefn-
inu í kúamykju. Þetta gjöra þeir af því, að
álitið er að frjóef'nin í húsdýraáburðinum —
einkum í þvaglausri kúamykju — þurfi lengri
tíma til þess að verða aðgengileg jurtanæring,-
heldur en þrjú efnin í verzlunaráburðinum, sem
oftast geta komið allfljótt að notum.
Nú hafa útlendír bændur greinilegar skýrzl-
ur um það hve mikið er í húsdýraáburðinum
hjá þeim af þessum umræddu frjóefnum og þá
geta þeir hæglega sett nærhæfis rétt verð á
hann. —
Vér höfum því miður, ennþá enga vissu
fyrir oss um samsetning húsdýraáburðarins hjá
oss. Meðan svo stendur verðum vér að hafa
„slumpa-reikninya.“ Annað er ekki mögulegt.
En ef vér byggjum slumpareikninga vora á
þeim líkum, sem beztar fást, þá er þó betra að
styðjast við þá en ekkert, þar til að iunlendar
rannsóknir hafa útvegað mönnum áreiðanlegan
grundvöll til að byggja á. —
Eg hefi reynt að verðleggja húsdýraáburð-
inn, bæði með hliðsjón af þessari útlendu að-
ferð, og af því gagni sem mér hefir sýnst á-
burðurinn gjöra, og hefi verðlagt hannþannig:
100 pd. af moldblandimi mykju með þvagi. 20 a.
100 — af kúaþvagi og hauglög, óblandað. 40 -