Freyr

Årgang

Freyr - 01.11.1925, Side 7

Freyr - 01.11.1925, Side 7
FRE YR 93 uðu og girtu stór tún,® girtu engjar og hlóðu njerkjagarða, plægðu akra og þresktu korn, veittu vatni á tún og engjat' og óku heim heyi. Þetta var á Gullöldinni, þegar Isiand var óháð lýðveldi og þjóðin öll búsett í sveitum landsins. En Adam var ekki iengi í paradis. Alt fer í bál og brand Sifeidur innan- anlandsófriður og næturvíg koma þjóð- inni á kaldann klaka. Stjórnarfarslegt sjálfstæði týnist úr landi. Hin giæsiiega Gullaldarmenning deyr út og manndómur og framtakssemi tii jarðræktar sömuleiðis því menníng og jarðrækt eru jafnan föru- nautar. Att sekkur í svarta myrkur og auðn. Garðarnir sökkva frjómoidin blæs upp úr ökrunum, iækirnir renna óhindrað- ir til sævar, túnin ganga sarnan, og fá að lokum þann vitnisburð, að þau séu víða: »rótlaus, sporuð fena- og flagafull, eitingar og mosagróin, mýrarskotin með köflum, úrgengin eða illa slæg og í heilum sýslum eða landsfjórðungum ógirt, nædd og kalin«*). Þetta er fullkomnun eyðileggingarinnar. Met í niðurníðslu. Eu —. »Það er svo bágt að standa í stað». Lengra var ekki hægt að komast niður á við. Enda fer nú smámsamau að sækjast á brekkuna aftur. Skógurinn sem þakti upphaflega svo mikinn hluta landsins, að landnámsmenn- irnir urðu víða að ryðja hann til að geta bygt bæi sína og ræktað tún, hann var rifion brendur og beittur miskunarlaust alt frá byrjun — og er raunar gert enn þar sem til hans næst — unz hann var að mestu horíinn, en blásnir melar og eyðihraun komin í staðin. Gróðurmold jarðvegsins fauk út í veður *) Þ. Th. Lýsing fsl. 3 bindi bis. 101. Eftir M. St. Eftirmæli 18. aldar. og vind jafnótt og skógurinn var eyddur. Landið bljes upp. Stór og þróttmíkill gróður óx i skjóli skóganna, hann hvarf með skógunum. Landið varð smámsaman óbyggilegra. — Þetta er dálítið brot úr sögunni. í stuttu máli saga þess, hvemig þjóðin hefir búið að iandinu. Framan úr glæsilegri fornöld og fram á síðustu daga heíir þjóðin, í blindni og fáfræði, verið að sketnma landið og ríða það niður. Jeg er ekki að rekja þessa sögu hér til að fella þungan dóm yflr feðrunum eða rýra minníngu þeirra. Fjarri sje það mjer. Þeir gengu í blindni, vissu ekki hvað þeir gerðu og nauðsyn knúði þá tíðum til skemdarverka. Þeir vissu ekki t d. að taka, hvers virði skógurinn var landinu. Vissu ekki að landið tnundi blása upp og gróður allur verða þroska- minni, þegar skógurinn var farin, Og allra síst hafa þeir rent grun í hversu örðugt væri að rækta hjer skóg aftur. Nútímamenn vita að skógurinn er ein- hver helsti vörður og vermireitur jurta- gróðursins. Þar sem hann er, og að það kostar mikla peninga og fyrirhöfn að græða skóg á ný. Þessvegna verður maður að gera þá kröfu til þeirra, að gera sér ekki leik að því, að höggva skóg eða á annan hátt að skemma gróðurriki landsins. III. Þegar búið var að gera ræktunarstarf frumbyggjanna að engu, eyða skógum og landið orðið uppblásið og óbyggilegt á stórum svæðum; þá var ekki orðið líf- vænlegt í sveitunum nema fyrir nokkurn hluta af þjóðinni — og svo er eun. — Þá var ekki um nema tvent að velja: Flýja land eða breyta til urn atvinnuveg. Og íalendingar gerðu hvorttveggja. Þeir

x

Freyr

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.