Freyr

Volume

Freyr - 01.04.1938, Page 3

Freyr - 01.04.1938, Page 3
VanhÖldin í sauðij árbúunum. Hve mikilli tekjurýrnun verða fjáreigendur fyrir vegna vanhaldanna? Ég hefi oft áður rætt við bændur um van- höldin á sauðfjárbúunum, og enn ætla ég að gera það. Ég hefi bent á það, að sumir bændur fengju meir en þrefaldan meðalarð eftir ær sínar móts við aðra, og að þessi mismunur stafaði að verulegu leyti af vanhöldum hjá þeim, er minnstan hefðu arðinn. Ég hefi haft svo stór orð um þetta, að vanhöldin væri þyngsti skatturinn, sem bændur greiddu, og mundi vera þyngri en útsvörin, sem þó er mikið talað um, hve há séu og þungbær. Flestir eða allir bændur munu hafa heyrt mig tala um þetta, eða lesið greinar eftir mig um það. En mér virðist stund- um, að það sé eins og mörgum þeirra finn- ist vanhöldin lítil og sjálfsögð. Það sé ó- mögulegt annað en þau séu, þau fylgi sauð- fjárræktinni eins og skugginn manninum, og því þýði ekki að vera að tala um þau. Svona blindar vaninn menn, og það þarf sterkan vilja til að brjóta vanann og skapa nýjar venjur, og sá vilji skapast því að- eins, að menn sannfærist um að vanhöld- in séu mikil og þurfi að minnka. Ég mun því hér reyna að sanna, hver vanhöldin urðu á fé landsmanna fardagaárið 1935— 1936, en það er síðasta árið, sem hægt er að gera þessa nokkra grein, og jafnframt annað árið, sem slíkt er mögulegt. Ég skal þá fyrst snúa mér að vanhöld- unum á dilkunum eða lömbunum. í fardögum 1935 eru fram tald- ar ær.......................... 525463 Haustið 1935 er slátrað úr búum sauðfjáreigenda lömbum 347828 og vorið 1936 eru til fram- taldir gemlingar.......101630 Það koma því fram alls af sláturlömbum og líflömb- um . ......................... 449458 Mismunur 76005 Mismunurinn er því 76000 lömb. Nú er það vitanlegt öllum, að ekki kem- ur allt féð, sem til er í landinu, fram í vor- framtölum. Þegar kláðaútrýmingarböðun- in fór fram fyrir aldarþriðjung síðan, var baðað nærri þriðjungi (31 %) fleira fé en fram var talið. 1916 var um 16 % fleira fé á fóðrum í Skagafirði en talið var fram, og með því að gera nú samanburð á fram- töldu fé á vorhreppaskilum og framtöldu fé á skattaskýrslum, virðist vanta 10— 12 % til þess að allt fé, sem fram er talið á skattaskýrslum, komi fram á vorhreppa- skilum. Hins vegar má líka ætla, að van- taldir séu fram gemlingar, sem nemur 10 %, og þeir ættu því að vera um 110000 í stað 101630. Hins vegar er lömbunum undan þeim ám, sem ekki eru taldar fram, og því ekki inn í tölunni, þegar ærnar eru sagðar 525463, slátrað eins og öðrum lömbum, og koma því inn í tölu sláturlambanna.

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.