Einherji


Einherji - 17.12.1972, Qupperneq 10

Einherji - 17.12.1972, Qupperneq 10
10 EINHERJI JÓLABLAÐ 1972 BJÖRN EGILSSON: - Sólskinsdagar á fjöllum Framhald Ég fór að leita að honum, því að ég miátti efcki af hon- um sjá. Ég fann hann liggj- andi vestan við bæinn, sunn- an í litlum hól á móti sólinni. Þar var hann að ræða við drenginn Kristján, 11 eða 12 ára. Hann var þarna í sum- ardvöl og er sonur Jónasar í HandritaSítofnun. Læknirinn spurði drenginn hvort hann ætlaði að verða prestur, læknir eða verk- fræðingur. Ja, hann var ekki búinn að áttia sig á því, en hélt þó ekki. Helzt m-undi hann vilja læra norræn fræði Ert þú með ríkisstjórninni, spurði læknirinn. Drengurinn játaði 'því og spurði aftur, hvort við værum með henni. Læknirinn játaði því fyrir okkur báða. Og ertu þá á- nægður með allt, sem ríkis- stjórnin er að gera, spurði læknirinn. Ja, það er kannski eitt, sem ég er hræddur við, sagði drengurinn. Ég er hræddur um að hún tæmi riíkissjóðinn. Það gerir ekk- ert itil, saigði læknirinn. Pen- ingarnir koma aftur í ríkis- sjóðinn. Þeir eiga að vera á hreyfingu. Sigurður Pálsson er mynd- arlegur og viðfelldinn ungur m|aður. Hann hafði verið í Hólaskóla 1967 og fóstur- dóttir Friðriks læknis var þar skólasystir hans. Hann bauðst til að fylgja okkur upp á fjallið, þótt ærið verk- efni væri við heyskapinn. Fjalhð er bralit og seinfarið upp á brúnina. Víðsýnt er þar mjög og sá ég austui' yfir Mývatn og greinilega sáust húsin í þyrpingu aust- an við vatnið. Við kvöddum Sigurð með virktum á fjalhnu. Drjúg- langt er yfir fjalhð, en e'kki vandratað, iþví að gamlar götur eru þar og vörðubrot. Leiðin lá í norðaustur ofan í Fnjóskadal, eigi langt fyrir srnman Sörlastaði. Þéttur skógur er þar 1 hlíðinni, og lentum við þar í sjálf- heldu, og lá við að við yrð- mn að snúa við og finna aðra leið, en við gátum troð- izt með hestana í gegn, þar sem sitytzt var. Mér þótti napurt, að komast ekki leið- ar minnar fyrir þessu skóg- arkjarri og ályktaði, að væri ísland swona, „viði vaxið milli fjahs og fjöru“, væri það óbyggilegt með öllu. Við riðum Fnjóská hjá Sellandi Sigurðar O. Björns- sonar, og fórum svo út að Illugastöðum og höfðum nátt stað þar í fjárrétt með svo miklu grasi, að pimturinn náði hestunum á síður og höfðu iþeir nóg að bíta þar. Enginn búskapur er á Illuga- stöðum, en landið vandlega girt og má engin skepna vera í landinu, að sögn. Gömui kirkja stendur midir brekku í túninu. Mannmargt er þar á sumrin, en ekiki veit ég hvort það eru kirkjugestir. Uppi á brekku fyrir sunnan og vestan kirkjuna eru nær 20 sumarhús, sem Alþýðu- samband Norðurlands á. Árdegis risum við upp úr Illugastaðarétt og þá var kominn laugardagur 14. ág. Nú var sólskinið búið, en gott veður var, stinmngs- kaldi suðvestan, úrkomulaust og hlýtt. Við héldum út dal- inn að Fjósatungu og feng- um þar leiðsögn yfir Bílds- árskarð. Ragnar Jónsson bóndi bauð okkur í bæinn. Við fengum að borða mjög svipaðan veizlumat og á Lækjavöllum: Sikyr og rjóma nýja hfrarpylsu feita með meiru. Sigríður dóttir Sveins Einarssonar frá Miðdal bar á borð. Hún var þar í kaupa- vinnu með tvo drengi sína. Fjósatunga er stórbýli að fornu og nýju. Ég var mjög hrifinn af íbúðarhúsinu þar. Það er stórt með rishæð og kjallara, vel við haldið, form- fagurt og skipulag þess undra nýtízkuleigt, svo gam- alt, sem það er. Ingólfur al- þingismaður byggði það ár- ið 1926, að mér hefur verið sagt. Það var í annað sinn í þessari ferð, að þingeysk menning fékk ekki dulizt fyr- ir mér. Ekki er leiðin yfir Bíldsár- skairð langur fjallvegur, en dáhtið bratt að vestan. Þar í skarðinu eru sýslumörk. Á vatnaskilum horfði ég um öxl. Ég hafði séð svipmót Þingeyjarsýslu að nokkru og þótti mikið til koma. Þing- eyskar konur sem ég sá, þóttu mér myndarlegar og hefði ég viljað eiga sumar. En þó hefði ég ekki viljað eiga konu þingeyska, sem hefði horft á sprengingamar í Miðkvísl, af ótta við, að hún yrði laus í böndunum. Af skarðinu komum við ofan að Króksstöðum í Kaup angssveit. Blessuð hjónin þar tóku við okkur mætavel og gott var þar fyrir hrossin. Húsfreyjan, Arnfríður Páls- dóttir, er systurdóttir Jóns í Möðrudal. Hún /þekk-ti syst- ir Friðriks læknis, sem bú- sett er í Reykjavík og svo rifjaðist það upp, að þau höfðu sézt í Þingholtunum fyrir áratugum. Læknirinn vildi ekki fara með mér fram að Laugalandi syðra. Hann vildi vera hjá frúnni og hestunum. Annars finnst mér hann ebki sérlega hændur að konum, þegar við erum sarnan á ferðialögum. Honum finnst ég vera það meira, en frá hestunum vill hann aldrei fara. Séra Bjartmar Kristjáns- son lét son sinn sækja mig. jÉg gat ekki farið svo um Eyjafjörð, að heimsækja hann eikki og er það engin furða, því að hann er búinn að vera sálusorgari minn yf - ir 20 ár. Séra Bjartmar pré- dikaði orðið „iklárt og kvitt", og hann var ekki að banna sóknarbörnum sínum eitt eða neitt. Það átti vel við mig, því að ég er blendinn í trúnni Hann lét sem hann vissi ekki, þegar ég hét á Þór á undan stórorrustum. Heiðinn dómur leynist enn með oss Islendingum. Næsta dag fcom Sveinn á Varmalæk að sækja hestana og okkur, og fór hver heim til sín. Þá er sagan öll og er miklu lengri, en ég hafði látið mér detta í hug. Lengd sögunnar stafar af frásagn- argleði minni og tjáningar- þörf, sem er ættarfylgja, lík- lega komið alla leið frá Jóni blóðtökumanni á Dalakoti. Það er vandi að teygja lopa, því að bláþræðir vilja koma nema vel sé spunnið. Ég ætl- aði ekiki að skrifa neitt um þessa ferð, fremur en marg- ar aðrar og vel má vera, að þessi saga væri bðtur óskrif- uð. En sé svo, er það Guð- mundi skáldi frá Bergsstöð- um að fcenna. Hann þurfti að láta rubba upp efni í blað- snepil á Siglufirði og bað mig svo ósköp vel að skrifa, en ég igengst fyrir því, ef vel er að mér farið. ★ Kaupfélai Skagfirðinga sendir félagsmönnum sínum, starfsfólki, svo og öðrum viðskiptavinum, beztu óskir um gleðirík jól og farsæld á komandi ári. Kaupfélag Skagfirðinga Sauðárkróki — Hofsósi — Varmahlíð

x

Einherji

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Einherji
https://timarit.is/publication/788

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.