Einherji - 17.12.1972, Qupperneq 11
JÖLABLAÐ 1972
EINHERJI
11
Umsóknir um styrki til rannsókna á
nýjungim í atvinnulífi
Samkvæmt heimild í lögum um Framkvæmdastofnun ríkisins
og ákvörðun stjórnar stofnunarinnar, er hér með auglýst eftir
umsóknum um styrki úr Framkvæmdasjóði íslands til rann-
sókna á nýjungum í atvinnulífi.
Hieiimilit er að sækja um styrki til rannsókna á uppgötvunum, undirbún-
ings nýrra fyrirtækja og nýjunga í framleiðslu eldri fyrirtækja.
Til þess að umsókn verði tekin gild, þarf að fylgja henni ítarleg greinar-
gerð, vottorð, ef til eru, og allar upplýsingar, aðrar en bein framleiðslu-
leyndarmál, sem stutt gætu það, að styrkveiting væri rétitmæt.
Gert er ráð fyrir að fyrstu styrkveitingar í þessu skyni fari fram á ár-
inu 1973 og þurfa umsóknir að berast til F'ramkvæmdastofnunar ríkisins,
Rauðarárstíg 31, Reykjavík, eigi síðar en 31. desemjber 1972.
Framkvæmdastofnun ríkisins
HAPPDRÆTTIHÁSKÚLAISLANDS
Á árinu 1973
á þriðjungur þjóðarinnar kosf á að hljóta vinning:
Heildarfjárhæð vinninga verður 403.200.000 krónur — fjögur hundruð og þrjár milljónir og tvö
hundruð þúsund krónur.
Vinningar skiptast þannig:
Vinningar ársins (12 flokkar):
4 vinningar á 2.000.000 kr..... 8.000.000 kr.
44 — - 1.000.000 kr...... 44.000.000 —
48 — - 200.000 — ........ 9.600.000 —
7.472 — - 10.000 — ....... 74.720.000 —
52.336 — - 5.000 — ...... 261.680.000 —
Aukavinningar:
8 vinningar á 100.000 kr....... 800.000 —
88 — - 50.000 — ........ 4.400.000 —
60.000 403.200.000 —
Hæsta vinningshlutfallið:
Vinningar í Happdrætti Háskóla íslands nema 70% af samanlögðu andvirði seldra miða. Er
það miklu hærra hlutfall en nokkurt happdrætti greiðir og sennilega hæsta vinningshlutfall
í heimi. — Athugið: Eitt númer af hverjum fjórum hlýtur vinning. 7 krónur af hverjum 10 eru
greiddar í vinninga — og berið saman við önnur happdrætti.
Endurnýjun og sala miða hefst strax eftir áramót.
Góðfúslega endurnýið sem fyrst.
Hver hefur efni á að vera ekki með?
HAPPDRÆTTIHÁSKDLAISLANDS
Dagbjört Einarsdóttir, umboðsmaður.
Húsnæöismálastofnun
AUGLÝSIR
Eindaginn 1. febrúar 1973
fyrir lánsumsóknir
vegna íbúða í smíðum
Húsnæðismálastofnunin vekur athygli aðila á
neðangreindum atriðum:
Einstaklingar, er hyggjast hefja byggingu íbúða eða
festa kaup á nýjuin íbúðum (íbúðum í smíðum) á
næsta ári, 1973, og vilja koma til greina við veit-
ingu lánsloforða á því ári, skulu senda láns-um-
sóknir sínar með tilgreindum veðstað og tilskildum
gögnum og vottorðum til stofnunarinnar fyrir 1.
febrúar 1973.
2 Framkvæmdaaðilar í byggingariðnaðinum er hyggj-
ast sækja um framkvæmdalán til íbúða, sem þeir
byiggjast byggja á næsta ári, 1973, skulu gera það
með sérstakri umsókn, er verður að berast stofn-
uninni fyrir 1. febrúar 1973, enda hafi þeir ekki
áður sótt um slikt lán til sömu íbúða.
g Sveitarfélöig, félagssamtök, einstaklingar og fyrir-
tæki, er hyggjast sækja um lán til byggingar leigu-
íbúða á næsta ári í kaupstöðum, kauptúnum og á
öðrum skipulagsbundnum stöðum, skulu gera það
fyrir 1. febrúar 1973.
/£. Sveitarstjórnir, er hyggjast sækja um lán til ný-
smíði íibúða á næsta ári (leiguíbúða eða söluíbúða)
í stað heilsuspillandi húsnæðis, er lagt verður nið-
ur, skulu senda stofnuninni þar að lútandi lánsum-
sóknir sínar fyrir 1. febrúar 1973, ásamt tilskild-
um gögnum sbr. rlg. nr. 202/1970, VI. kafli.
g Þeir, sem nú eiga óafgreiddar lánsumsóknir hjá
stofnuninni, þurfa ekki að endurnýja þær.
g Umsóknir um ofangreind lán, er berast eftir 31.
janúar 1973, verða ekki teknar til meðferðar við
veitingu lánsloforða á næsta ári.
Reykjavík, 31. október 1972.
Laugavegi 77 — Sími 22453
TILKYNNING
Eins og að undanförnu er fólki gefinn kostur á að lýsa
upp leiði í kirkjugarðinum um jólin. Þurfa öll ljósastæði
að vera komin í garðinn í síðasta lagi 20. desember. Þeir,
sem síðar koma með ljósastæði, eiga á hættu að fá þau
ekki sett í samband. Öll ljósastæði skulu vera vel merkt
eiganda.
Nánari upplýsingar gefa starfsmenn Rafveitunnar.
RAFVEITA SIGLUFJARÐAR
SÓKNARNEFND SIGLUFJARÐAR
Sendum sjómönnum okkar og fjölskyldum þeirra
beztu JÓLA- og NÝÁRSÓSKIR.
Þökkum samstarfið á árinu sem er að líða.
Otgerðarfélag Skagfirðinga h.f.
SAUÐÁRKRÓKI
Jóla- og gjafavörur
í úrvali í öllum deildum 02: útibúum.
Kaupfélag Skagfirðinga