Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.12.1938, Page 21
TlMARIT V.F.I. 1 938.
79
Aage W. Owe,
forseti mótsins.
Annað mót
norrænna verkfræðinga
í Oslo 1938.
Utdráttur úr frásögn af mótinu á fundi V.F.Í.
4. nóvember 1938.
Bjarne Bassöe,
skrifstofustj. mótsins
Á síðastliðnum árum hafa verkfræðingar á NorÖ-
urlöndum liaft með sér fundi öðru hvoru, en þessir
fundir hafa oftast verið lil þess að ræða einliverja
sérgrein verkfræðinnar og liafa þvi ekki verið sóttir
af öðrum en sérfræðingum í þeirri grein.
Fyrsta almenna mól norrænna verkfræðinga var
lialdið í Kaupmannahöfn í ág. 1929. Dansk Ingeniör-
forening hauð til þess móts í tilefni af 100 ára af-
mæli fjöllistaskólans í Kaupmannahöfn.
Mótið stóð i 4 daga, og í fundarlokin kvaddi for-
maður i Den Norske Ingeniörforening, Ingeniör Fri-
mann Dahl,fundarmenn með þessum orðum:„Hjerte-
lig velkommen lil Norge næste gang.“ Þetta hoð hélt
nú Den Norske Ingeniörforening í júní s.l. sumar
i Oslo. Þar var ])á einnig haldið 100 ára afmæli, því
að á þessu ári voru liðin 100 ár frá stofnun Oslo
Haandverks- og Industriforening. 1 tilefni af þessu
afmæli var mikil iðnsýning í Oslo, sem Norðmenn
kölluðu: Vi kan-udstillingen.
Til norræna verkfræðingamótsins voru boðnir
verkfræðingar úr
Dansk Ingeniörforening,
Soumalaislen Teknikkojen Seura og
Tekniska Foreningen í Finnlandi,
Verkfræðingafélagi Islands,
Svenska Teknologföreningen og
Den Norske Ingeniörforening.
Að sjálfsögðu var og konum verkfræðinganna
boðið að sækja með þeim mótið.
Mótið var lialdið 13.—15. júní. Þátttakendur voru
um ltiOO, þar af 000 konur. Af þessum gestum voru
190 frá Danmörku, 110 frá Finnlandi, 9 frá Islandi,
1050 frá Noregi og 240 frá Svíþjóð.
Frá Islandi sóttu mótið:
Emil Jónsson vitamálastjóri og kona lians,
Finnbogi R. Þorvaldsson verkfræðingur,
Geir Zoega vegamálastjóri og kona lians,
Guðjón Samúelsson liúsameistari ríkisins,
Trausti Ólafsson efnaverkfræðingur,
Valgeir Björnsson bæjarverkfr. og kona lians.
Meðal þátttakenda frá Danmörku kom Gísli Hall-
dórsson vélaverkfræðingur og kona lians.
Mótið var selt 13. júní í hinum mikla samkomu-
sal Vi kan-sýningarinnar.
Setning mótsins fór mjög liátiðlega fram. Þar
voru viðstödd lconungur Noregs og drottning, krón-
prinshjónin og fleira tiginna gesta.
Form. i Den Norske Ingeniörforening, Chefingeniör
Aage Owe, setti mótið með snjallri ræðu, og bauð
gestina velkomna. Hann stýrði þessum fyrsta fundi.
Þá flultu formenn verkfræðingafélaganna kveðj-
ur, Ingeniör Höjgaard frá Dansk Ingeniörforening,.
prófessor Jalmar Castren frá Suomalaisten Teknik-
kojen Seura í Finnlandi, Finnb. R. Þorvaldsson frá
Verkfræðingafélagi Islands og Direktör Sten West-
erberg frá Svenska Teknologföreningen, og hann
bauð fundarmenn velkomna til Stokkhólms á næsta
verkfræðingamót 3. norræna verkfræðingamótið..
Þá hélt rektor tekniska liáskólans í Þrándheimi
prófessor, dr. techn. Frederik Vogt, mjög fróðlegt
erindi: Tekniken, Samfundet og Ingeniören.
Eftir það var fundarhlé, sem menn notuðu til
þess að skoða Vi kan-sýninguna. Klukkan 15 var
aftur settur sameiginlegur fundur í samkomusal
sýningarinnar. Prófessor Castren frá Finnlandi
stýrði þeirn fundi, en Ingeniör Höjgaard hélt mjög
ítarlegan og fróðlegan fvrirlestur: Motorvejenes
Udvikling og Retydning som fremtidige Hoved-
færdselsaarer.
Að þessum fundi loknum skiptust fundarmenn
eftir sérnámi og starfsviðum í 11 deildir og sátu
fundi i ýmsum samkomuhúsum borgarinnar.
Deildirnar voru Jjessar:
1. Bergveíkstekn ikk og metallurgi.