Tímarit Verkfræðingafélags Íslands


Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.12.1938, Page 23

Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.12.1938, Page 23
TÍMARIT V.F. I. 1938. 81 liöldum, en þau störf liöfðu að miklu leyti hvílt á skrifslofustj. i Den Norske Ingeniörforening, Gene- ral-sekretær Ing'. Bjarne Bassöe og starfsfólki hans. Laulc forseti ræðu sinni með minni norrænu verk- fræðingafélaganna. — Þá fluttu formenn verkfræð- ingafélaganna, hver af öðrum, kveðjur og þakkar- ávörp fyrir móttökurnar, en Stortingspræsident llamhro þakkaði fyrir hinar prýðilegu veitingar við þetta tækfæri. Samkomunni lauk með danzi og öðrum fagnaði fram undir morgun. Að mótinu loknu fóru margir af fundarmönnum og j)á sérstaklega danskir verlcfræðingar, skennnti- ferðir um Noreg, hæði tii þess að sjá liina stórfeng- legu náttúrufegurð og til að skoða nýjustu verk- smiðjur og þau maunvirki, sem reist hafa verið á siðustu árum. Enginn okkar Islendinganna mun hafa tekið J)ált i þessum ferðum. Til þess vantaði okkur gjaldeyri. — Eg hefi hér i stutlu máli sagt sögu mótsins, en eg get ekki lokið máli minu, án þess að láta i Ijós aðdáun mína á því, hve mótið var vel undirbúið og live prýðilega það fór fram að öllu leyti. Það er sagt um okkur verkfræðingana, og liklega með réttu, að við séuin dálitið þurrir og erfitt að Ivfta okkur upp i „stemningu“, sem kallað er, en það har ekki á þvi á þessu móti. Það var eftirtektarvert, hve fljótir menn voru að kynnast, og hve þessi stóri flokkur manna frá jafn-ólíkum löndum og t. d. Danmörku, Finn- landi og Islandi, geta fallið vel í eina heild. Eg tel víst, að mótið hafi beinlínis áhrif á verk- fræðileg málefni á Norðurlöndum, en það liefir jafn- framt stuðlað til þess, að sameina norræna verk- fræðinga betur en áðnr, og það er engu siður mikils varðandi. Við, sem þarna vorum gestir, lilutum allir að dást að þeirri alúð og liöfðinglegu gestrisni, sem norskir verkfræðingar, og Norðmenn yfirleitt, sýndu gest- um sínuin við þetta tækifæri. Mótið var norskum verkfræðirigum og öðrum Norðmönnum til sóma. F. R. Þorvaldsson_ Tíu þúsund króna sjóður til styrktar íslenzkum námsmönnum. I. C. Möller framkvæmdastjóri i Kaupmannahöfn álti fimmtugsafmæli liinn ö. október síðastliðinn. I tilefni af afmælinu lét hann þann dag afhenda sljórn Verkfræðingafélags Islands 10.000 króna sjóð, sem her nafnið: „Námssjóður I. C. Möllers frá 0. okt. 1938“. Skipulagsskrá sjóðsins er staðfest ‘28. septemher 1938 og liljóðar þannig: 1. gr- Nafn sjóðsins er „Námssjóður I. C. Möllers frá 6. október 1938“. Heimili sjóðsins er Reykjavík, 2. gr. Höfuðstóll sjóðsins, sem aldrei má skerða, er við stofnun hans kr. 10.000.00 — tiu þúsund krónur — í bréfum Veðdeildar Landsbanka Islands. Eé, eða verðmæti sjóðsins, sem alltaf skal vera skráð á nafn sjóðsins, ber að ávaxta og varðveita eftir sömu reglum, sem gilda um fé ómyndugra. Ilaguað allan, er verða kann við útdrátt skulda- hréfa, ber að leggja við höfuðstólinn. 3. gr. Árlegum vöxtum skal að frádregnum nauðsyn- legum stjórnarkostnaði — úthluta einu sinni á ári tii eins eða tveggja efnilegra íslenzkra stúdenta, sem stunda nám, eða aitla sér að stunda nám í einliverj- um af liinum teknisku háskólum á Norðurlöndum, þó sérstaklega til þeirra, sem stunda eða ætla sér að stunda nám í rafmagnsfræði, og þá einkum til þeirra er stunda eða ætla sér að stunda nám i Den tekniske Höjskole i Kaupmannahöfn. Ef að eitt eða fleiri ár líða án þess að stjórn sjóðs- ins telji nokkurn umsækjanda liæfan lil styrks, þá skulu vextirnir á því tímabili leggjast við höfuðstól- inn. 4. gr. Stjórn sjóðsins ski])a þrír menn, einn valinn af stjórn Verkfræðingafélags íslands, annar af kennslu- málaráðuneytinu, en þann þriðja tilnefnir stofnandi sjóðsins, á meðan liann lifir og óskar að nota sér þann rétt, en eftir það sendilierra Islands, eða sá fulltrúi Islands í Kaupmannahöfn, er fer með mál- efni landsins þar. Sá sem tilnefndur er af stjórn Verkfræðingafélags íslands er formaður sjóðstjórnarinnar. 5. gr. Stjórnin skal liafa nákvæmt hókhald vfir tekjur og gjöld sjóðsins. Reikningsár sjóðsins er ahnanaks- árið.

x

Tímarit Verkfræðingafélags Íslands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Verkfræðingafélags Íslands
https://timarit.is/publication/860

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.