Tímarit Verkfræðingafélags Íslands


Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.05.1944, Síða 5

Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.05.1944, Síða 5
Tím. V. F. 1. 1944. 1. hefti. ÁVARP Fyrir réttum aldarfjórðungi gekkst stjórn Verkfræðingafélags Islands fyrir því, að tímarit félags- ins yrði stækkað, að það kæmi árlega út i sex heftum í stað fjögurra, en um þriggja ára skeið, frá upphafi og lil ársins 1918, hafði það komið lít í fjögurra hefta árgöngum. Þegar þessi breyting var gerð á tímaritinu, voru félagsmenn Verkfræðingafélagsins 18 talsins. Ekki var um aðra verkfræð- inga að ræða hér á landi, sem gerzt gætu kaupendur tímaritsins eða látið því efni í té, lítið var um verklegar framkvæmdir, borið saman við það, sem nú er og lítið um verkfróða menn eða aðra, sem hafa kynnu áhuga á slíku tímariti og því, sem hér var um að ræða. En samt var ráðizt í þessa breytingu til stækkunar. Tókst hún vcl, og hefur tímaritið síðan komið út í svipaðri stærð og hef- ur haldizt tíkt að efni til frá upphafi. Nú eru félagsmenn Verkfræðingafélagsins 81. 1 landinu er margt verkfróðra manna og annarra, sem áhuga hafa á verkfræði og öðrum skyldum vísindum. Mikið er um verklegar framkvæmdir sem slendur, en sama máli gegnir um mörg næstliðin áir, og má gera ráð fyrir, að svo haldi áfram, jafnvel að um aukningu verði að ræða. Skilyrði til útgáifu tímarits sem þessa hafa því batnað til mikilla muna síðastliðinn aldarfjórðung. Hefur stjórn Verkfræðingafélagsins og ritstjórn tímaritsins því orðið sammála um, að rétt væri að ráðast i stækkun tímaritsins. Gat til mála komið að haga stæklcuninni þannig, að fjölgað yrði heftunum, og timaritið kæmi út mánaðarlega. Frá því var horfið fyrst um sinn, en þess í stað ákveðið að láta það koma út í sex heftum árlega, eins og hingað til, en hvert liefti verði stækkað upp i tvær arkir. Jafnframt var ákveðið að gera tímaritið fjölbreytt- ara að efni, og verður einkum reynt að birta frásagnir og skýrslur um öll helztu mannvirki, sem reist verða liér á landi, svo að timaritið geti í framtíðinni orðið tæmandi heimild i því efni. En til þess að svo megi verða, þarf ritstjórnin að njóta aðstoðar sem flestra, og vill hún þvi mælast til þess við alla verkfræðinga, aðra félagsmenn Verkfræðingafélagsins og aðra velunnara tímaritsins, að þeir sendi henni til birtingar: 1) sjálfstæðar ritgerðir um verkfræði, stærðfræði eða annað náttúruvísindalegt efni, 2) áæilanir og útreikninga um meiri háttar mannvirki, 3) skýrslur og frásagnir um öll meiri háttar mannvirki, helzt ásamt myndum eða teikningum af þeim, k) skýrslur um rekstur verklegra fyrirtækja, og 5) ritgerðir eða fréttir um annað efni, sem tímaritinu getur hentað. fíitstjórn timaritsins væntir þess, að menn bregðist vel við og hjálpi lienni til með að gera tíma- ritið sem bezt og fjölbreyttast. í ritstjórn Timarits Verkfræðingafélags ístands Jón E. Vestdal Sigurður Pétursson form. ritari Finnbogi R. Þorvaldsson Gunnlaugur Briem Steingrímur Jónsson

x

Tímarit Verkfræðingafélags Íslands

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Verkfræðingafélags Íslands
https://timarit.is/publication/860

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.