Tímarit Verkfræðingafélags Íslands


Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.05.1944, Síða 17

Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.05.1944, Síða 17
TlMARIT V.F.Í. 1944 13 þesSari aðferð er hægt að nota hveragufuna til að fVanileiða niikinn og djúpan kulda. Loks er sá möguleiki hugsanlegur að hagnýta mætti kuldann í sambandi við saltframleiðsluna á þann liált að frysla vatn úr sjónum og minnka þann- ig það magn, sem eima þarf. Er með ákveðnu gufu- magni hægt að frysta miklu meira vatnsmagn, held- ur en hægt er að eima. A þennan liátt kann að vera unnt að sameina á sérlega hagkvæman liátt is- og saltframleiðsluna e. t. v. með notkmi afgangsorku. Slíkt kerfi ætti að vera hægt að smíða hér á landi. að öllu leyti þannig, að ckki þyrfti annað að sækja til útlanda, heldur en efniviðinn. V. Hvað þarf að gera? Eg skal nú að lokum með leyfi rannsóknarráðs rikisins leyfa mér að lesa upp tillögur okkar Ben. Gröndals frá 2. marz þ. á.: „Rannsóknarráð ríkisins liefir farið fram á það við okkur, að við létum í Ijósi álit okkar á þeim möguleikum, sem vera kunna, til þess að virkja gufu lil rafmagnsframlciðslu og uphitunar, og jafn- framt óskað þess, að við kæmum fram með tillög- ur um það, hvernig liaga bæri undirbúningsrannsókn að slikri virkjun í sambandi við boranir, sein gerð- ar yrðu í nánd við Hveragerði eða Hengilinn. Við eruni þeirrar skoðunar, að hér sé um merki- legt rannsóknarefni að ræða, þar sem vel kann að reynast mögulegt að virkja með borunum eftir gufu á liagkvæman hátt bæði rafmagn og hita, og að slík virkjun revnist ódýrari en vatnsaflsvirkjun. Boranir þær, sem framkvæmdar hafa verið að Reykholli, benda til þess, að um talsverða gufuorku geli verið að ræða á þessu svæði, og sé svo má telja víst, að slík orka sé mjög hagkvæm til virkjunar, ef miðað er við reynslu annarra þjóða (ítaliu) í þeim efnum. Til þess að unnt sé að virkja slika jarðliitaorku, þarf að gera allýtarlegar rannsóknir á gufunni, mæla magn hennar, þrýsting og atlmga hvort hún inni- hedlur óhreinindi og loft. Tiliögur okkar til framkvæmda í þessu máli eru l>vi sem hér segir: 1. Rannsókn sé þegar liafin á borholu þeirri, sem nú, er við Reykjakot, mældur gufuþrýstingur, hiti og gufumagn, rannsökuð öll efni og Iofttegundir, sem gufan kann að innihalda, til þess að gengið verði úr slcugga um, hvort þau séu skaðleg vélum þeim, sem gufunni væri ætlað að knýja. 2. Boruð verði nú Jiegar ný hola 8” við, sem ælluð verði til aflframleiðslu. 3. Gerðar verði áætlanir um virkjun slíkrar holu og sett upp tilraunagufutúrbina, sem framleitt geti t. d. nægjanlegt rafmagn fyrir Reykjahverfi. 4. Reynisl gufan mjög óhrein þarf að gjöra tilraunir með hreinsun á henni þannig, að hún verði not- hæf í gufutúrbínu. V'ið getum ekki að svo stöddu gefið nákvæmar upplýsingar um kostnað við ofangreindar tilraunir, en elcki má telja ólíklegt, að hann muni nema 250— 300 þús. krónum. Á hinn bóginn er ekki óliklegt, að þarna sé unnt að virkja mörg þúsund hestöfl á lil- tölulega auðveldan liátt. -----o—— Enn fremur teljum við, að æskilegt van-i, að nú þegar væri hafizt handa um vatnsrennslismælingar á köldu vatni, sem rennur fram úr Innstadal í Hengli og næðu þær vatnsmælingar yfir jiað langan tima, að nnnt væri með nægjanlegri vissu að áætla minnsla rennsli og væri þetta gjört með það fyrir augum, að vatnið yrði hilað upp með gufu og veitt til Reykja- vikur til viðhótar heita vatninu frá Reykjum, sem fyrirsjaanlega verður ekki nægjanlegt í náinni fram- tíð, þegar hærinn vex. Reynist vatnsmagn þetla hæfi- lega mikið, yrði síðan framkvæmdar boranir eftir gufu i Innsladal.*' Niðurlag. Eins og áður var nefnl liggja tillögur þessar nú fyrir r.’kisstjórnmni og bíða úrlausntr. Er þess að vænla, að nauðsynlegt fé verði veitt til þessara fyrslu rannsókna og vitkjana hið allra bráð- asla. Verkleg menning er ung liér á landi, og eðlilegt að jiað taki nokkurn tíma að opna augu landsmanna fyrir jieim möguleikum, sem landið býr yfir. En jiað er ekki siður nauðsynlegt, að íslenzkum verkfræðingum og verklegum fvrirtækjum sé gef- inn kostur á að sjá um þær framkvæmdir, sem gerð- ar eru og á Jiann hált gefnir möguleikar til að vaxa og þroskast með stækkandi verkefnum. Þetta á að vera sjálfsagður þjóðannetnaður, enda þjóðinni hollast að húa sem mest að sinu. Enn vantar mikið á að islenzka verkfræðingastétt- in skipi þann sess i þjóðfélaginu og njóti þeirrar til- trúar og virðingar, sem hún ætti að réttu lagi að gera, og sem verkfræðingar annara landa njóta i heimalöndum sinum. En til þess, að svo megi verða, er æskilegt, að sam- hugur og sainstarf innan stéttarinnar fari vaxandi og að einstaklingar innan hennar láti verkleg fram- fara- og inenningarmál lil sín taka á raunsæjan liátt, án tillits til pólitískra sjónarmiða. Enginn sérslakur aðili má hafa einkarétt á tillög- um um verklegar framkvæmdir eða á framförum innan jjjóðfélagsins. Orðið þarf að vera laust fvrir hvern þann, sem eitthvað vill leggja til málanna. Að-

x

Tímarit Verkfræðingafélags Íslands

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Verkfræðingafélags Íslands
https://timarit.is/publication/860

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.