Tímarit Verkfræðingafélags Íslands


Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.12.1951, Side 6

Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.12.1951, Side 6
52 TlMARIT V.F.l. 1951 ummynduðu móbergi, skornu basaltgöngum og inn- skotum, en kvarteru myndanirnar eru eyddar ofan af. Neðst kemur fram basalt, eins og áður er sagt. Neðsti hluti þessa móbergs er sérstaklega mikið ummyndaður og ljósgrænn að lit. Má ætla, að enda þótt hið gamla móberg geti verið mjög ummyndað utan jarðhitasvæðis- ins, eins og í Silfurbergi, eigi hinn tiltölulega ungi jarð- hiti hér verulegan hlut að máli. Spildan, sem um ræðir, liggur litlu lægra en Reykjafjallsspildan um Svaða, eftir því sem basaltið bendir til. Á Dalafjalli er þunn þekja úr fersku, ungu móbergi, er við skörp mót í um 340 m hæð leggst ofan á mjög ellilegt og ummyndað móberg. Tel ég þetta vera tertí- era rofflötinn. Unga móbergið myndar og Dalaskarðs- hnúk, þar sem vottur af grágrýti kemur einnig fyrir. Austan Reykjadals er grágrýtið orðið allsherjarþekja á Ástaðafjalli, og í mjög svipaðri hæð og á Dalskarðs- hnúk. Misgengi er mjög óverulegt um Reykjadal og þannig tiltölulega litlar mishæðir spildna á öllu bilinu frá Reykjaf jall—Selfjalls-spildunni til meginhluta Ástaða- fjalls. Þess er að geta, að um 500 m breið ræma austan af Ástaðafjalli, sú er myndar vesturbrún Reykjadals utan við Hverakjálka, liggur um 50 neðar en megin- hluti fjallsins. Á spildunni er kvarter grágrýtisþekja með um 20 m þykkt, sem leggst ofan á tertíeran berg- flöt í um 280 m hæð. Mótin milli eldra og yngra bergs eru hér hárskörp og alltorfundin. Neðan til í hlíðum er ummyndað móberg og lárétt, allummynduð og elli- leg basaltlög á víxl, og er þetta óefað tertíert berg. En ofan til eru svo fersk grágrýtislög, að ég verð að álíta þau kvarter, en ekkert gat ég við fyrstu skoðun séð, er gæfi til kynna ákveðin mót milli þessara mjög misgömlu laga. Það var fyrst við ítrekaða leit, að ég fann sjálf mótin um 20 m undir brún, og gat síðan rakið þau á 30 m kafla (staðurinn er þar sem hamra- veggurinn er næst dalsmynninu). Það má heita, að engin setlög séu á þessum mót- um, nema sumstaðar með 5—10 cm þykkt, heldur leggst unga grágrýtið án gjallmillilags ofan á fágað yfirborð gamals basaltlags. Laus steinn við mótin, úr gamla basaltinu, var með sléttum ísrákuðum fleti, sem virtist hljóta að hafa verið hluti af yfirborðsfletinum, en á föstu bergi fann ég ekki með vissu ísrákir, enda þótt sennilegt sé, að yfirborðsfágun basaltsins sé verk jökla. Á kafla er 1—2 m lag úr móbergsbreksíu það sem fyrst leggst á basaltflötinn. Frá Ástaðafjalli má rekja sig til Hamarsins í Hvera- gerði. Hann er grágrýtisspilda, sem í fyrstu er erfitt að glöggva sig á vegna þess að ung hraun ofan af Hellisheiði útiloka beina tengingu við Kambabrún eða Ástaðafjall. En af athugun flugmynda sannfærðist ég loks um, að Hamarinn er framhald af kvartera grá- grýtinu á Ástaðaf jalli. Ungu hraunin eru þunn og mynd- irnar sýna greinilega, að undir þeim er skörp brotbrún, er liggur frá Hamrinum til efri brúnar Ástaðafjalls. Hamarinn er þannig brotspilda, sem liggur um 250 m neðar en spildan í vesturbrún Reykjadals, og önnur samskonar grágrýtisspilda í svipaðri hæðarstöðu er í mynni Reykjadalsins. Tertíeri rofflöturinn ætti því að liggja skammt undir yfirborði á láglendinu kringum Hveragerði, eða í svipaðri hæð og á hinu óraskaða svæði austur og suður frá Kot- strönd. Milli Hveragerðis og Reykjafjalls er þannig mis- gengi, sem nemur um 250 m. Með hliðsjón af þessari afstöðu og af samanburði við byggingu Reykjafjalls, má búast við allt að 200 m móbergslagi undir Hamr- inum og Hveragerði, áður komið væri niður í basalt- grunn er tilsvaraði lögunum í Varmárgili og við Svaða. Boranir hafa leitt í ljós mjög ummyndað móberg undir Hveragerði og sunnan undir Hamrinum, niður á allt að 200 m dýpi í samræmi við ofangreinda jarð- fræðilega mynd. Til þess að fá frekari upplýsingar um byggingu imdirgrunnsins hér, hef ég gert talsvert af þyngdarmælingum á láglendinu kringum jarðhita- svæðin og suður Ölfusið, og verður rætt nánar um þær í lok þessarar greinar. Allsherjarmyndin, sem nú blasir við, er sú, að láglendi ölfuss er í aðalatriðum óraskað svæði (sjá þó um Fora- spilduna síðar), sem liggur í svo til óbreyttri stellingu frá því á tertíertíma, en Grafningsfjöllin og Hellishciði eru raskaðar spildur, sem lyfzt hafa á kvartertímanum. Mynd 2. Þverskurður af kambabrún. 1 þunn basaltlög. 2 setlög. 3 porfyritiskt grágrýti. 4 jökulruðningur. 5 þursaberg. 6 og 7 breksía og túff. 1 Núpafjalli suður frá Kömbum er að finna mjög glöggan þverskurð. Lögin eru lárétt á þessu bili og mótin milli tertíers og kvarters eru sumstaðar skýr. Skammt sunnan við Kambabrún liggja þau í 150 m hæð eða ámóta og í Ingólfsfjalli (sjá 2. mynd). Hér er 1—2 m þykkt jökulruðningslag, sem liggur á vel slípuðum grágrýtisfleti, — ísrákir stefna milli S og SA. Ofan á jökulruðningnum er fyrst mjög gróft þursaberg eða „kubbaberg", óporfyritískt, en fín- og þéttporöst, og getur því vart verið runnið langt að. Síðan nokkur samvaxin og heldur ógreinileg lög af óunnu gostúffi, og loks mjög þykkt lag úr túffi og breksíu upp á brúnir. Undir jökulruðningnum eru fyrst 2—3 þykk porfyrítísk lög úr grágrýti, þá taka við 12—15 m af unnum og að mestu leyti aðfluttum sedímentum. Basaltið sem þau hvíla á hefur mjög óslétt yfirborð og sýnilegt er, að neðstu sedímentin eru veðrunarlag ofan á basaltinu. Sé farið upp eftir sedímentunum koma næst molabergslög, væntanlega árflutt, siðan sand- og leirlög með hnullungum, rúmlega hnefastórum, á víð og dreif. Hér hagar því alveg eins til og við tertíera rofflötinn í Reykjafjalli: sedímentatíon með eftirfylgjandi porfyrít-

x

Tímarit Verkfræðingafélags Íslands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Verkfræðingafélags Íslands
https://timarit.is/publication/860

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.