Tímarit Verkfræðingafélags Íslands


Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.12.1951, Síða 15

Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.12.1951, Síða 15
TlMARIT V.F.l. 1951 61 Mynd 2. Dreyfing sýnishorna á Hengilsvæðinu. mikið af geislavirkum efnum. Að vísu hafa athuguð sýnishorn eingöngu verið á eða skammt undir yfirborði jarðar, en sum sýnishornin eru tekin úr göngum, sem myndazt hafa við, að bráðið hraun úr miklu dýpi þrýstist upp í gegnum sprungur í berginu. Þar sem þessir gangar sýna yfirleitt ekki meira geisla- magn en bergið í kring, þá má ætla að bergið innihaldi lítið af geislavirkum efnum, einnig þegar niður dregur. Auk þess virðist sú regla vera ríkjandi viðast hvar á þessu svæði, þar sem hægt er að komast að mörgum jarðlögum í fjallahlíðum og í borholum, að geislamagn bergsins fari minnkandi eftir því sem neðar dregur. Athugaðir voru möguleikar á að nota geislamagns- mælingar til þess að aðgreina jarðlögin í borholunum og bera þau saman við jarðlögin í fjöllunum i kring. Bergið í borholunum er venjulega mjög ummyndað vegna áhrifa heita vatnsins, og getur því verið erfitt að bera saman við jarðlög, sem ekki hafa orðið fyrir þessum áhrifum. Hugsanlegt er þó, að hægt væri að þekkja jarðlögin á geislamagninu, en til þess þurfa þrjú skil- yrði að vera uppfyllt: I einu og sama jarðlagi verða hin geislavirku efni að vera tiltölulega jafnt dreifð; umbreyt- ingar þær, sem heita vatnið veldur á berginu, mega ekki hafa mikil áhrif á geislamagn þess; og loks þurfa að vera til staðar einhver jarðlög, sem skera sig úr hvað geislamagn snertir. Hin tvö fyrstu skilyrði virðast hér vera uppfyllt. Hvergi á þessu svæði þar sem á annað borð er um reglu- leg jarðlög að ræða, verður vart mismunar i geislamagni sama jarðlags út yfir það, sem búst má við vegna óná- kvæmni mælingarinnar, en hún er 1—2 elektrónur á mínútu. Ummyndanir bergsins koma fram við, að heita vatnið sígur að nokkru leyti í gegnum sjálft bergið, á leið sinni neðanjarðar, leysir upp sum af efnum þess og flytur þau með sér upp á yfirborðið. Við það verður bergið ljóst að lit og leirkennt. Það væri þvi hugsanlegt, að hin geislavirku efni bærust burt með vatninu upp á yfirborðið. 1 gili rétt við Sauðatinda er staður, þar sem þægilegt er að komast að ummynduðu og óummynduðu bergi hlið Við hlið. Nú er þarna enginn jarðhiti, en auðséð er að beitt vatn hefur runnið þarna upp með basaltgangi, sem er í móberginu. Næst ganginum er móbergið Ijóst og leirkennt, en er fjær dregur eru engar breytingar af völdum heita vatnsins sýnilegar. Gilið er þarna stöðugt að grafa sig, svo að það sem er nú á yfirborðinu hefur eflaust verið djúpt í jörðu, þegar rennsli heita vatns- ins stöðvaðist. Mælingar á ummyndaða móberginu rétt við ganginn og því óummyndaða lengra burtu sýna engan mismun I geislamagni, ef um nokkurn mun er að ræða þá er hann minni en 20%. Einnig má gera sér hugmynd um mögulegar breytingar á geislamagni bergsins með þvi að athuga vatnið, sem upp kemur. Um 150 1 af hveravatni, sem tekið var í Hveragerði, voru látnir gufa upp, en úr þeim fengust um 100 g af föstu efni. Geislamagn þessa efnis var 22 elektrónur á mínútu. Þetta er töluvert meira geislamagn en bergið hefur, sem vatnið hefur leikið um. Vatnið hef- ur því leyst upp tiltölulega meira af geislavirku efnunum heldur en af öðrum föstum efnum bergsins, en við það ætti geislamagn bergsins að minnka. Ef við gerum ráð fyrir, að geislamagn föstu efnanna i vatninu sé 10 sinnum meira en bergsins, sem vatnið rennur í gegnum, og ef við ennfremur reiknum með, að einn þúsundasti hluti af berginu hafi skolazt burt með vatninu, þá ætti geisla- magn bergsins að hafa minnkað um 9 af þúsundi, eða ca. 1%. Af þessu sjáum við, að ólíklegt er að heita vatnið breyti geislamagni bergsins það mikið, að þess gæti við mælingarnar. Þriðja skilyrðið virðist aftur á móti ekki vera upp- fyllt. 1 borholunum hafa ekki fundizt nein lög, sem skera sig úr hvað geislamagn snertir. öll sýnishornin, sem tekin voru úr borholum, sýna mjög lítið geislamagn (0—5 el á min.) og þetta gildir einnig fyrir öll sýnis- hornin, sem tekin voru á láglendinu umhverfis Hvera- gerði, austur að Kotströnd. 1 fjöllunum hafa heldur ekki fundizt lög, sem fylgja mætti yfir stærra svæði, en yfir- leitt er geislamagnið mest efst og fer minnkandi, þegar neðar dregur. Enginn munur virðist vera á basalti og móbergi, hvað geislamagni viðvikur, enda vafasamt, hvort um mismunandi uppruna sé að ræða. Efri hluti Kamba er úr móbergi, en i því eru margir basaltgangar og má ætla, að móbergið hafi runnið upp um þá sem basalt, en breytzt í móberg, þegar upp kom. Má jafn- vel víða sjá þess merki, að svo hafi verið. Þessu til stuðnings sýna mælingar geislamagnsins engan mun á basaltgöngunum og móberginu í kring. Einnig er mó- bergið mjög „homogent" hvað geislamagn snertir, hvert svo sem útlit þess er. Hér fer á eftir skýrsla yfir niðurstöður þeirra mælinga, sem gerðar voru á sýnishornum úr Kömbum og Núpaf jalli, sem er uppi á Kambabrún. Neðri hluti Kamba er bas- alt, en á mótunum milli móbergs og basalts skiptast á móbergs og basaltlög. Kambar. Geislamagn (el á mín) Móberg úr Núpafjalli ............................. 9,0 — — — ................................. 8,0 — — — .......................... 8,7 Basaltgangur í Kambabrún ......................... 7,0 Gulgrátt móberg úr Kambabrún ..................... 8,3 Blágrátt móberg tekið nokkru fyrir neðan brún .. 7,2 Móbrúnt móberg tekið nokkru fyrir neðan brún .. 7,3 Basaltgangur í móberginu nokkru fyrir neðan brún 7,2 Móberg tekið rétt ofan við efsta basaltlagið..... 5,4 Basalt úr efsta basaltlaginu ..................... 1,3

x

Tímarit Verkfræðingafélags Íslands

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Verkfræðingafélags Íslands
https://timarit.is/publication/860

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.