Tímarit Verkfræðingafélags Íslands


Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.12.1951, Qupperneq 34

Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.12.1951, Qupperneq 34
80 TlMARIT V.P.l. 1951 um miðað við hinar nýju aðstæður, og í marz 1950 fékk ríkisstjórnin 2 millj. dollara lán (32,6 millj. kr.) frá efnahagssamvinnustofnuninni í Washington (ECA) og voru 27,19 millj. kr. af því lánaðar til Sogsvirkjun- arinnar til kaupa á vélum og rafbúnaði í Bandaríkjun- um. Var þetta fé notað til fyrstu greiðslu upp í samn- inga, er undirritaðir voru í júli 1950 um kaup frá firm- unum Westinghouse Int. Electric Co. og Int. General Electric Co. í New York á rafvélum og rafbúnaði. 1 maimánuði fékkst fyrirheit um framlag frá Efna- hagssamvinnustofniminni, auk lánsins, að fjárhæð 2,327 millj. dollara, til síðari greiðslna á vélum og efni, er kaupa þyrfti í Ameríku. 1 maí veitti Alþingi ríkisstjórninni heimild í lögum til nokkurrar lántöku vegna virkjunarinnar og til á- byrgðar á lánum fyrir hana. 1 júlí 1950 var einnig undirritaður samningur um framkvæmd byggingarvinnunnar við sænsk-danska fé- lagið Fosskraft, er gerði ráð fyrir að stöðvarhúsið yrði tilbúið til vélauppsetningar 1. maí 1952 og öllu verki lokið 1. des. 1952. Ríkisstjórnin útvegaði jafnframt fyrir milligöngu Landsbanka Islands 1 millj. kr. sænskar og 1 millj. kr. danskar, sem bráðabirgðalán til kaupa á efnivörum í Danmörku og Svíþjóð vegna framkvæmdanna. Hluti af þessum lánum (um Vi) skyldi einnig nota við fram- kvæmd Laxárvirkjunarinnar á Norðurlandi, Þegar sænska lánið var fengið, var samið við sænska túrbínufirmað KMW, Karlstad, um kaup á túrbínunum. Á sama hátt útvegaði rikisstjómin bráðabirgðalán hjá Landsbanka Islands, 2,5 millj. kr. fyrir innlendum greiðslum vegna virkjunarframkvæmda á árinu. Auk þeirra samninga, sem að ofan getur, var vorið 1950 haft útboð á húsbyggingum við Irafoss, og í júli var samið við verksalana s.f. Iri, Reykjavík, er voru lægstbjóðendur um byggingu húsanna, en það voru tvö vélavarðahús með tveim íbúðum hvort og mötuneytis- hús. Skyldu þau vera komin upp á vorinu 1951. Ennfremur tók vegamálastjórnin að sér að framkvæma vega- og brúagerðir, er koma þurfa, áður en bygginga- framkvæmdir hefjast. Skyldi það verk unnið á tíma- bilinu júli—nóv. 1950, og er nú að mestu lokið. Af meiri háttar samningum, sem enn eru eftir, er að- eins efni til háspennulínunnar, sem fyrirhugað er að lögð verði sunnan Hengils frá hinni nýju virkjun til Reykja- víkur. Er ætlunin að hafa útboð á efni til hennar á næsta vetri. Með þeim samningum, sem gerðir voru í júlí 1950 og bráðabirgðalánum, sem fengin eru, er virkjunin haf- in og tryggð fjárhagslega út árið 1950. En jafnframt er unnið áfram að lausn fjáröflunarinnar og gert ráð fyrir, að með þeim undirbúningi, sem gerður hefur ver- ið, muni þessi mál leysast fyrir árslokin, svo að fram- hald framkvæmdanna verði tryggt. Þessi mál eru sem stendur i höndum ríkisstjórnarinnar. Hefur henni verið send ný kostnaðaráætlun, endurskoðuð í okt. 1950, er hefur þessar niðurstöðutölur talið í 1000 kr.: Irafossvirkjunin sjálf (31 MW) er áætluð á . . 103.440 Háspennulína 132 kV, 50 km...................... 13.407 Aðalspennistöð við Elliðaár .................... 18.264 Sogsvirkjunin samtals .......................... 135.111 Höfuðveitukerfi (30 kV) Rafm.v. Reykjavíkur 22.889 Alls ..... 158.000 Af þessu er innlendur kostnaður 67.550.000 kr. eða 43%, en erlendur kostnaður 90.450.000 eða 57%. Af erlenda kostnaðinum er gert ráð fyrir að 61.690.000 kr. séu kaup á vélum og búnaði í Ameríku, en 28.760.000 kr. fyrir kaup á vörum i Norðurálfugjaldeyri, sem gert er ráð fyrir að fengið verði sem lán frá Alþjóðabank- anum (IBRD). 3. Rekstursafkoma. Verk þau, sem samið var um á s.l. sumri, eru öll enn of skammt á veg komin til þess að hægt sé að dæma um, hvernig þeim muni af reiða. Hvort þannig muni viðra um veturinn, að vetrarvinnu verði við kom- ið, án verulegra tafa, eða hvort jarðsprengingar geti farið þannig fram, að eigi verði mikið um vatnsaga eða berghrun til baga. Þær itarlegu og löngu forrann- sóknir, sem gerðar hafa verið um jarðlögin á virkjunar- staðnum, benda allar á það, að eigi þurfi að standa á óviðráðanlegum erfiðleikum í því efni. En hinu má gera sér grein fyrir, hvernig reksturs- afkoman muni verða, miðað við núverandi verðlag og kostnaðaráætlanir. Gert er ráð fyrir að stofnkostnaðurinn verði fenginn þannig: Millj. kr. 1) Innlendi kostnaðurinn með láni úr mótvirðis- sjóði, 6% til 25 ára......................... 67,55 2) Dollaraframlög, enda sé andvirði þeirra greitt í mótvirðissjóð, með fé, sem fengið er með innlendu skuldabréfaláni og framlögum Reykjavíkurbæjar, 6% lán til 18 ára ...... 34,50 3) Dollaralán frá efnahagssamvinnustofnuninni, 2(4% til 28 ára ............................. 27,19 4) Norðurálfugjaldeyrir, fenginn sem erlent lán, 4V2% til 18 ára ............................. 28,76 Samtals 158,00 Til jafnaðar svara lánskjörin til 5% vaxta með um það bil 20 ára greiðslutíma, er verður sem næst 8% ársgreiðsla í vexti og afborganir. Ofantalinn heildarkostnaður skiptist þannig, að 135 millj. koma á Soðsvirkjunina með aflstöð, háspennulínu og aðalspennistöð, en 23 millj. er höfuðveitukerfi til- heyrandi Rafmagnsveitu Reykjavíkur. Árlegar stofn- kostnaðargreiðslur skiptast þá þannig, að virkjunin á að bera 10,8 millj. kr., en Rafmagnsveita Reykjavíkur 1,84 millj. kr. Irafoss-stöðin. Reksturskostnaður hinnar nýju virkjunar er áætlað- ur þannig: Stofnkostnaðargjöld . . 8% af 135 millj. kr. 10,8 millj. Viðhald, gæzla o. a. kostn. 2%— — — — 2,6 — Samtals 10% af 135 millj. kr. 13,4 millj. Fullnotað afl frá virkjuninni, afhent úr aðalspennistöð við Reykjavík, er 29,5 MW, þegar tekið er tillit til orku- flutningstapa. Er þá einingarverð á raforkunni frá hinni nýju virkjun út af fyrir sig 455 kr. á árskw. að meðal- tali, afhent frá aflstöð og aðalspennistöð við Reykjavík, miðað við fullnotaða virkjun. Til þess að fá rétta mynd af kostnaði við orkuvinnsl- una í heild, þarf að athuga nánar samstarf hinnar nýju virkjunar við aðrar aflstöðvar, er hún þarf að vinna

x

Tímarit Verkfræðingafélags Íslands

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Verkfræðingafélags Íslands
https://timarit.is/publication/860

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.