Dagblaðið Vísir - DV - 02.01.2004, Blaðsíða 4
4 FÖSTUDAOUR 2. JANÚAR 2004
Fréttir TFV
Þorgerður
ráðnerra
Þorgerður Katrín Gunn-
arsdóttir tók við embætti
menntamálaráðherra á
gamlársdag. Hún tók við af
Tómasi Inga Olrich sem
verður sendiherra í París
síðar á árinu. Næstu breyt-
ingar á rfkisstjórninni eru
íyrirhugaðar 15. september.
Þorgerður er 38 ára lög-
fræðingur og starfaði sem
deildarstjóri hjá Ríkisút-
varpinu áður en hún settist
á þing fyrir Sjálfstæðis-
flokkinn í Reykjaneskjör-
dæmiárið 1999.
Fyrsta barn
ársins
Klukkan 7:41 á
nýársmorgun fæddist fyrsta
barn ársins, lítil stúlka, 52
sentímetrar og 14 merkur.
Að sögn móður stúlkunnar,
Önnu Margrétar Þorláks-
dóttur, gekk fæðingin mjög
vel og vildi hún koma fram
þökkum til starfsfólks
Landsspítala Háskóla-
sjúkrahúss. Anna og maður
hennar Róbert Sverrisson
eiga tvö börn fyrir en hafa
ekki ákveðið hvað nýárs-
barnið eigi að heita. DV
óskar þeim önnu og Ró-
berti til hamingju með
stúlkuna og farsældar á
■komandi ári.
Tóbakslaust á
Kárahnjúkum
Brotist var inn í söluturn
á virkjanasvæðinu hjá
Kárahnjúkum og vörum og
peningum stolið fyrir eina
og hálfa milljón. Að sögn
lögreglunnar á Egilsstöðum
beinist ekki grunur að
neinum ákveðnum ennþá
en vegna ófærðar telur lög-
reglan víst að um innan-
búðarmál sé að ræða.
Sjoppan sem var rænd
var eini staðurinn sem seldi
starfsmönnum Kára-
hnjúkavirkjunar tóbak og
liggur nú fýrir að starfs-
menn þurfi að sækja tó-
baksbirgðir sínar alla leið til
Egilsstaða.
Áramótin þau
friðsömustu í
árafjöld
„Við skulum vona að
hugarfar fólks sé að breyt-
ast“, segir Ómar Smári Ár-
mannsson, aðstoðaryfirlög-
regluþjónn,
um hegðun
fólks um ára-
mótin, sem
voru þau frið-
sömustu um
langt skeið.
„Ég held að
góð afstaða
fólks og kalt og stillt veður
hafi spilað saman og gert
áramótin svo friðsöm sem
raun varð“. Slys voru fátíð
og eldsvoðar fáir og minni-
háttar.
Meirihluti bæjarstjórnar í Vestmannaeyjum hangir á bláþræði vegna fjárhagsvand-
ræða uppreisnarbakarans Andrésar Sigmundssonar. Andrés sveik Framsóknar-
flokkinn í vor og tók upp meirihlutasamstarf við V-listann, bakaði sér óvinsældir
bæjarbúa og fór í þrot með bakaríið.
Bíða gjaldþrots
bakarans í Evjum
Andrés Sigmundsson, bakari og formaður bæj-
arráðs f Vestmannaeyjum, er á barmi gjaldþrots.
Gjalþrot bakarans getur fellt meirihluta vinstri-
manna í bæjarstjórn Vestmannaeyja. í vor sleit
Andrés, sem kosinn var fyrir Framsóknarflokk,
bæjarstjórnarsamstarfi með sjálfstæðismönnum
og tók upp samstarf með vinstrimönnum í V-list-
anum. Hann ávann sér reiði samflokksmanna
sinna og sjálfstæðismanna með sinnaskiptum
sínum, sem nú vonast eftir persónulegu gjald-
þroti hans.
Samkvæmt 34. grein sveitarstjórnarlaga skal
sveitarstjórn leysa sveitarstjórnarmann frá störf-
um ef hann er sviptur íjárforræði. Fari svo að
Andrés verði úrskurðaður gjaldþrota mun hon-
um verða veitt lausn frá störfum í bæjarstjórn og
samflokksmaður hans taka við stöðu hans. Þar
sem Andrés var kosinn í bæjarstjórn fyrir Fram-
„Ég á marga vini, svo á ég
syniog bræður."
sóknarflokkinn mun framsóknarmaður taka við
af Andrési og hann án efa mynda meirihluta með
sjálfstæðismönnum, líkt og upphaflega var gert.
Andrés er eini fulltrúi Framsóknarflokks í bæjar-
stjórn en þar eru einnig þrír sjálfstæðismenn,
undir forystu Guðjóns Hjörleifssonar Alþingis-
manns, og þrír V-listamenn, undir forystu Lúð-
víks Bergvinssonar þingmanns Samfylkingarinn-
ar. Frá því Andrés snerist á sveif með vinstri-
mönnum hafa Sjálfstæðismenn setið úti í kuld-
anum, en þeir þrá að endurheimta völdin sem
bakarinn svipti þá.
Magnúsarbakarí, í eigu Andrésar, varð gjald-
þrota í október. Á liðnu ári voru gerð þrjú árang-
urslaus fjárnám hjá Andrési sjálfum og eiginkonu
hans, Þuríði Freysdóttur. Næsta skref er að úr-
skurða Andrés gjaldþrota, nema hann öðlist fjár-
magn til að hindra því. Rætt er um það í Eyjum að
fjársterkir aðilar innan V-listans muni borga upp
persónulegar skuldir bakarans til að forða honum
ffá því að vera sviptur fjárforræði, og þar með
oddastöðu sinni í bæjarstjórninni.
Eftir að Andrés sleit samstarfi við Sjálfstæðis-
flokkinn hallaði undan fæti í Magnúsarbakaríi.
Hann hélt því fram að hann hefði verið rægður og
viðskiptavimr fældir frá. Andrés sagðist í samtali
við DV og berjast fyrir stöðu sinni. „Það hefur ekk-
ert gerst í þessu ennþá og ég held ég sé búinn að
ná planinu," segir hann. Aðspurður hvort V-lista-
menn myndu borga upp skuldir hans sagði Andr-
és: „Ég á marga vini, svo á ég syni og bræður."
jontrausti@dv.is
Lúðvík Bergvinsson Sjálfstædismenn og framsóknor
menn segja þingmann Samfylkingarinnar og bæjorfull-
trúci V-listans i Vestmannaeyjum hafa nýtt sér tækifærii)
lil að fá Andrés bakara i lið með sér þegar félagai bakar
ans i bæjarstjórn vildu að hann tæki sér fri veqnu fjár
hagsvandræða.
Andrés Signuindsson Gerði uppreisn gcgn félög
um sinum i Framsóknarflokknum og samstarfsmönn-
um i Sjálfstædisflokknum og myndaði nýjan bæjar
stjórnarmcirihlulá með vinstrimönnum. Bakarastarfið
virðist vérða honum fjöturum fót.
Ingi Sigurðsson Ráðinn bæjarstjóri Vestmannaeyja
sumarið 2002 af meirihlutanum, einnig Andrési bak-
ara, en rekinn afnýjum byltingarmeirihluta, þá einnig
Andrési, íjúli i fyrra.
Davíð er ekki„enginn maður"
í fréttaannál Stöðvar 2 var spilað
merkilegt viðtal við Davíð Oddsson.
Svo merkilegt var það að makkin-
tossið stóð í Svarthöfða og þegar
hann reyndi að skola því niður með
malti og appelsíni sprautaðist það
út um nefið á honum og yfir gamla
jólaskreytingu sem verður víst ekki
notuð um næstu jól. En orðin sem
Davíð notaði voru ótrúleg. Kannski
upplýsandi. Svarthöfði er ekki viss.
Herra forsætisráðherra vor (svo
vitnað sé í þuluna sem kynnti
ávarpið hans á RÚV stuttu áður en
annálarnir hófust) sagði að það
væri enginn maður sem stæðist 300
milljóna tilboð frá auðkýfingum.
Hann ítrekaði þetta. Að enginn
maður myndi segja nei við 300
milljónum sem færu inn á reikning
í útlöndum, sporlaust. Og svo end-
urtók hann það aftur; að enginn
myndi standast slikt tilboð.
Nema Davíð auðvitað. Hann er
auðvitað ekki maður heldur nátt-
úruafl og stendur allt af sér. Engin
valdaklíka hefur áhrif á hann og
peningar skipta hann engu máli.
Ekki einu sinni eftirlaunin sem
hann hugsaði auðvitað fyrir ein-
hvern allt annan en sjálfan sig. Þess
vegan skaut hann þessu inn með
ritstörfin. Svo hinir á þingi gætu
stundað það að skrifa endurminn-
ingar sínar. Sjálfum er Davíð alveg
sama um slíkt pjatt.
En ástæðan fyrir uppnámi Svart-
höfða er ekki Davíð sjálfur heldur
sú staðreynd að Halidór Ásgríms-
son er ekki Davíð. Halldór er ekki
náttúruafl. Halldór er maður. Hann
er jafnvel þessi „enginn maður"
sem Davíð talaði um að stæðist ekki
freistinguna. Össur er heldur ekki
náttúruafl og Steingrímur í besta
falli aðdáandi náttúrunnar (alltaf á
fjöllum). Þetta er því að fara til
fjandans. í haust fer allt til andskot-
ans, ef marka má orð Davíðs.
Svarthöfði