Dagblaðið Vísir - DV - 02.01.2004, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 02.01.2004, Blaðsíða 6
6 FÖSTUDAGUR 2. JANÚAR 2004 Fréttir BV Löggustöð lokað Lögreglan í Reykjavík heíur ákveðið að loka mið- borgarstöð sinni í Tollhús- inu við Tryggvagötu endan- lega nú þessi áramót. Henni var í tilraunaskyni lokað þann 1. nóvember. Nú verður lokunin hinsveg- ar endanleg og segir Ingi- mundur Einarsson varalög- reglustjóri þetta meðal annars vera gert „... í ljósi jákvæðra viðbragða al- mennings," einsog hann kemst að orði í tilkynningu. Miðborgin verður þrátt íyr- ir þetta ekki afskipt í lög- gæslu og sú þjónusta sem áður var veitt úr Tryggva- götunni kemur í framtíð- inni frá aðalstöðinni við Hverflsgötu. Áramótaheit Arni Björnsson „Það eru dæmi um það fyrr að menn hafi strengt heit íjóla- veislum en á þeim tlma þá hugsuðu menn ekki svo mikið i áramótum," segir Árni Björnsson þjóðháttafræðing- ur. Hann segir heitstrenging- arnar ekki hafa verið í neinum tengslum við trúarbrögð held- ur hafi menn miðað árið frá jólum tiljóla.„Venjan hefur trúiega verið að heita þess að vinna eitthvað afrek á nýju ári ekki ósvipað og nú," segir Árni og bætir við að áramótin séu þau tímamót þegar mönnum finnst betra að tengja sig viö eitthvað nýtt er þeirstrengja heit. Hann segir / Hún segir „Ég held að við timamót eins og þau þegar nýtt ár gengur í garð sé ekki óeðlilegt að menn líti til baka og geri upp leiðina sem er að baki;jafnframtþví sem þeir horfi fram á veginn og setji sér ný áform/'segir Ólína Þorvarðardóttir, skóla- meistari á lsafirði.„Á nýársnótt hafa menn í gegnum tiðina haft margvíslega trú á duld- um kröftum og reynt að ráða í framtíðina; því var tildæmis trúað að kýrnar töluðu á nýar- snótt og enn þann dag i dag þykir ráðtegt að taka mark á draumförum þessarar nætur." Aðspurð um hvort hún hafi sjálfstrengt nýársheit segir Ólína:„Já, hvort ég hef, ég ætla að hugsa um heilsuna og sinna ritstörfum." Ólína Þorvarðardóttir Talið er víst að Ólafur Ragnar Grímsson gefi kost á sér til áframhaldandi setu í forsetastólnum, þar sem hann tilkynnti ekki um annað í nýársávarpinu. Ástþór Magnússon og Snorri Ásmundsson ætla einnig fram. Talið er að kosningarnar muni kosta ríki og sveitarfélög á bilinu 50 til 60 milljónir króna. Ólatup vill vera Ólafur Ragnar Grímsson Telur hæfilegt að forseti sitji i tvö til þrjú kjörtimabil. Snorri Ásmundsson Hann stóö að framboðinu Vinstri-hægri-snú ísíðustu borg■ arstjórnarkosningum. Vona að Davíð fari líka í framboð forseti áfram Ólafur Ragnar Grímsson tilkynnti ekki í nýársávarpi sínu hvort hann hyggist bjóða sig fram á ný sem forseti landsins. Þess vegna er talið öruggt að hann ætli að gefa kost á sér áfram, þar sem hefð er fyrir því allt frá tíð Kristjáns Eldjárns að forsetar segi ekkert um áform sín í nýársávörpum, nema því aðeins að þeir ætli ekki fram. Sjálfur sagði Óiafur í aðdraganda kosning- anna 1996 að hann teldi tvö til þrjú kjör- tímabil hæfilegan tíma fyrir setu forseta njóti hann stuðnings til þess. Kosningarn- ar verða 26. júm' næstkomandi, en Ólafur verður ekki sjálfkjörinn í ár. Listamaðurinn Snorri Ásmundsson er að undirbúa forsetaframboð sitt. Hann stóð að framboðinu Vinstri-hægri-snú í síðustu borgarstjórnarkosningum. Margir flokkuðu framboðið sem nokkurs konar listgjörning í þeim tilgangi að sýna viðtek- in viðhorf í öðru ljósi. Af sömu tegund var umdeild sala hans á aflátsbréfum í Kringl- unni fyrir síðustu jól, og þegar hann út- nefndi sjálfan sig sem heiðursborgara Ak- ureyrarbæjar. Ástþór Magnússon er einnig ákveðinn í að bjóða sig fram. Talið er að kosningarnar muni kosta ríki og sveitarfélög á bilinu 50 til 60 millj- ónir króna. Enginn frambjóðandi hefur byrjað söfnun meðmælenda enda er það ekki leyfilegt fyrr en auglýst hefur verið eftir framboðum. Síðast þegar Ástþór Magnússon reyndi að bjóða sig fram voru nokkur nöfn á meðmælendalistum hans dæmd ógild, svo sem Andrés önd og Jesús Kristur, og taldist framboðið því ekki gilt. Yfirvöld skoða nú hvort auka beri fjölda meðmælenda og gera strangari kröfur um það hvernig gengið er frá meðmælenda- listum. Þegar eru farnar að heyrast raddir um að það stefni í skrípaleik en aðrir hlakka til skemmtilegra og líflegra kosn- inga. brynja@dv.is Ég svífst einskis til að verða forseti „Ég vonast til þess að þetta sé merki um að Ólafur Ragnar ætli sér að víkja fyrir mér“, segir Snorri Ásmundsson, um þá stað- reynd að Ólafur tilkynnti ekki um framboð sitt í nýársávarpi sínu. „Ég ákvað það sem barn að ég ædaði að verða forseti. Ég vil helst taka við embættinu í sátt og að það verði engin illindi". -Hefurðu fundið fyrír illindum? „Þó ég hafi mikinn stuðning og margir vilji sjá mig á Bessa- stöðum eru margir argir út í þetta framboð. Þetta er fólk sem er uppfullt af gremju. Ég á von á að taka við embætti í júní, hvað sem á dynur. Ef ég þarf að nota eitthvað annað en lýðræðislegar kosningar til þess þá geri ég það". -Hvað ertu þá með íhuga? „Eigum við ekki að segja að ég hafi ákveðið leynivopn. Ég svífst einskis til að verða forseti, og láta Jrennan gamla draum minn rætast. Ég lít á þetta sem taflborð. Eg hræðist ekki ógnun, en reiðist henni frekar. Ég vona bara að þjóðin verði sátt í júní þegar ég sver embættiseið með stoltik -Hvað finnst þér um Ástþór Magnússon, sem einnig hugar á framboð? „Hann er veikur maður". -Hvað með þigsjáifan? „Það er mildU misskilningur. Ég er bara ekki hefðbundinn for- setaframbjóðandi. Þegar menn voru fyrst að tala um að jörðin væri hringlótt voru menn settir í fangelsi. Þetta er svona svipað. Ég er langt frá því að vera veikur, ég er lífsglaður og ekki hefð- bundinn maður. Af þvf að ég fer ekki hefðbundnar leiðir trufla ég tilveru fólks. Ég er ekki maður sem hef fortíð í stjórnmálum, ég er myndlistarmaður sem er að láta gamlan draum rætast". „Ég vona að Davíö Oddsson fari einnig í framboð svon ég geti rætt við hann um þessa fáránlegu utanrikistrefnu hans og stuðning við þennan brjál- æðing í Washington", segir Ástþór Magnússon, sem stefnir ótrauður á fiamboð til forseta íslands. „Ég verð með friðarboð- skapinn í öndvegi eins og þegar ég bauð mig fram árið 1996. Ólafur Ragnar Grímsson er að misnota embættið, hann lofaði mér og öðrum að vinna að frið- armálum en hefur svikið það allt saman". Ástþór hafði í hyggju að bjóða sig fram árið 2000 en þá náðist ekki að safna nægilega mörgum meðmælendum í tæka tfð. „Framboðið var ákveðið með tíu daga fyrirvara svo okkur gafst ekki nægilegur tími til að fara vandlega yfir þetta. í þetta sinn munum við hafa nægan tírna". Ást- þór segist ekki vera ráðinn í því hver verður kosningastjóri f þetta sinn, en árið 2000 var Sverrir Stormsker hans hægri hönd. En hvað finnst honum um það að Snorri Ásmundsson segi hann „veikan mann“? „Snorri verður að rneta það sjálfur hvernig hann vill tala urn annað fólk. Ég er hinsvegar stálhress. Svona ummæli dæma sig sjálf". Ástþór Magnússon Mætti I réttarsal útataður i tómatsósu og var sýknaöur.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.