Dagblaðið Vísir - DV - 02.01.2004, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 02.01.2004, Blaðsíða 12
12 FÖSTUDAGUR 2. JANÚAR 2004 Fréttir DV Blair rétt hálfnaður Reiður eigandi vélsmiðju í Hafnarfirði braut rúður og bramlaði hjá Félagi járnið- aðarmanna vegna þess sem hann segir himinháar kröfur félagsins eftir uppsagnir. Tony Blair, forsætisráð- herra breta notaði ára- mótaávarp sitt til þess að gefa til kynna að hann hefði hug á að sinna embættinu í 13 ár eða meira. Blai’r hefur verið forsætisráð- herra í sexog hálft ár og sagði að starfið væri rétt hálfnað. Ef hann fær umboð til svo langrar setu slær hann met Mar- grétar Thatchers sem var forsætisráðherra í ellefu ár í röð. Breski forsætisráðherr- ann sagði að erfiðar póli- tískar ákvarðanir væru framundan og lét þess get- ið að erfiðasta ákvörðun liðins árs hefði verið að fara í stríð í írak. Handtaka Saddams hefði þó sýnt að stríðið var réttlætanlegt. Danadrottn- inq nefndi ekki Maríu Það sem vakti mesta at- hygli í áramótaávarpi Mar- grétar Danadrottningar var að hún skyldi ekki nefna Maríu, tilvonandi tengdótt- ur sína á nafn. Friðrik krónprins trúlof- aðist Mary Donaldsson á siðasta ári og er brúðkaup fyrirhugað í maí. Danskir fjölmiðlar kölluðu eftir áliti sagnffæðinga til að skýra hvers vegna drottningin fjallaði ekkert um Maríu og voru þeir á því að Margrét hefði sýnt klókindi með þessu og hafi ekki viljað skyggja á giftinguna. Fjöldaárekst- ur á ísafirði Fáheyrður þriggja bíla árekstur varð á ísafirði í fyrradag. Áreksturinn varð við aðkeyrslu að bflastæði verslunarinnar Samkaups við Pollgötu, þar sem fólk var í ös að kaupa inn fyrir áramótin. Fjarlægja þurfti einn bflinn með kranabfl, en fólkið slasaðist ekki. Annað fáheyrt atvik varð við gömlu sorpeyðinga- stöðina við Skarfasker. Þar hafði ungur ökumaður vaf- ið sportbfl sfnum utan um ljósastaur. Athygli vakti að þrír ökumenn keyrðu bfl- um sínum framhjá mann- inum á meðan hann sat í stórskemmdum bflum, en venjan er sú að Vestfirðing- ar doki við og athugi líðan og ástand þeirra sem lenda í slysum. Guðmundur Már Sigurðsson Eigandi vélsmiðju í Hafnarfírðil missti stjórn á sér i húsnæði Félags járniðnaðarmanna, vegna kröfu sem hann segir félagið gera til sin um 5,5 milljóna króna greiðslu i uppsagnarfrest og laun fjögurra fyrrum starfsmanna. DV Mynd Pjetur ÍÍÉÍlKt ~ Gekk berserksgang hjá verkalýDsfélagi „Ég reiddist í fyrsta skipti á ævinni og er 52 ára gamall," segir Guðmundur Már Sigurðsson, eig- andi G.M. Smiðju í Hafnarfirði, sem gekk ber- serksgang í Félagi járniðnaðarmanna á dögunum. Guðmundur braut og bramlaði í verkalýðsfélag- inu, kastaði fatahengi í rúðu þannig að hún brotnaði. Eiginkona Guðmundar var við hlið hans þegar atburðirnir áttu sér stað, en hún er stjórnar- formaður fyrirtækisins. Hún á því ekki að venjast að eiginmaðurinn missi stjórn á sér, en hafði skilning á viðbrögðum hans. Guðmundur var yfir- bugaður af starfsmönnum stéttarfélagsins og lög- reglu og vísað úr húsinu. „Þetta var gífurlega löng og uppsöfnuð reiði. Ég er sjálfur félagsmaður frá 1970 og mér blöskr- aði hvernig þeir margfölduðu reikning og gerðu að kröfu til mín. Ég sé mest eftir því að konan mín var með mér, því þetta tók svolítið á hana, enda er ég mjög dagfarsprúður," segir Guðmundur. „Ég sé mesteftir því að konan mín var með mér." Ástæðan fyrir reiði atvinnurekandans var krafa sem hann segir Félag járniðnaðarmanna gera til hans um 5,5 milljóna króna greiðslu vegna uppsagnar á fjórum starfsmönnum vél- smiðjunnar og vangoldinna launa, auk 25 pró- senta álags í lögfræðikostnað. Að sögn Guð- mundar ætti hann að greiða starfsmönnum sín- um 890 þúsund krónur í heildina samkvæmt launaseðlum og uppsagnarfresti, en verkalýðsfé- lagið hafi lýst því yfir að lagður yrði á alla starfs- menn þriggja mánaða uppsagnarfrestur, sem Guðmundur segir að sé ekki fótur fyrir. Einhverj- ir þeirra hafi verið nýbyrjaðir hjá fýrirtækinu, og fyrirtækið, sem var stofnað í nóvember í fyrra, nái því ekki að vera ársgamalt, því gildi ekki þriggja mánaða uppsagnafrestur. Guðmundur segir deiluna við verkalýðsfélagið snúast um tímasetninguna á uppsagnarbréfi hans til starfs- manna, sem hann segist sjálfur hafa lesið upp og afhent starfsmönnum í byrjun september. Pétur V. Maack Pétursson, gjaldkeri Félags járniðaramanna, segir starfsmennina ekki kann- ast við að bréfið hafi verið lesið upp eða afhent. Hann segir uppsagnarbréfin hafa borist verka- lýðsfélaginu með faxi, ódagsett. Hann neitar því að nokkur deila sé á milli félagsins og Guðmund- ar. Hann vill ekki tilgreina hversu háa kröfu félag- ið hafi sent til Guðmundar og segir að Guðmund- ur gangi ekki heill til skógar. „Þetta er ekkert mál. Maðurinn er bara andlega sjúkur,“ segir Pétur. Innheimtureikningur verkalýðsfélagsins er væntanlegur til Guðmundar á næstu dögum. jontrausti@dv.is ísraelskur hermaður viðurkennir að hafa logið því til að breskt fórnarlamb hans hafi verið vopnað Skjóta á vopnlausa mótmælendur ísraelskur hermaður hefur verið handtekinn fyrir að skjóta Tom Hurndall, breskan baráttumann fyr- ir friði, á Gasa svæðinu fyrir átta mánuðum. Hurndall er enn í dái en fjarlægja varð hluta heila hans vegna skotáverka á höfði. Skotárásin var gerð í flóttamannabúðum Palest- ínumanna þegar Bretinn reyndi að forða börnum frá þvf að lenda undir beltum ísraelsks skriðdreka. ísraels- her hefur haldið því fram fullum fet- um að Tom hafi verið vopnaður og hafi klæðst hermannabúningi. Fjöl- skylda hans hefur vísað þessu á bug sem fjarstæðu og hefur breska inn- anríkisráðuneytið lagst á sveif með henni og krafist rannsóknar. í breska blaðinu Guardian fagnar fjöl- skylda unga mannsins handtökunrii enda hefur hún haldið því fram að upphafleg skýrsla ísraelshers um málið væri fullkominn skáldskapur. ísraelski hermaðurinn játaði seint um síðir að fullyrðing hans um að Tom Hurndall hafi verið vopnaður væri röng og hefði hann í reynd ver- ið vopnlaus. Hermaðurinn var í varðturni í töluverðri fjarlægð frá Bretanum þegar hann skaut á hann. Hermaðurinn hélt þvf fram að skot- ið hefði verið á sig en hefur einnig dregið þá yfirlýsingu til baka. Sak- sóknari ísraelska hersins mun ákvarða hvort hermaðurinn verði ákærður fýrir manndráp eða minni sakir eins og þær að hafa farið á svig við reglur um beitingu skotvopna og fyrir að ljúga að rannsóknarmönn- um. ísraelsher hefur vaxandi áhygg- ur af þeirri ímynd að hermenn hans séu skotglaðir og stjórnlausir. Fimmtungur allra þeirra sem Isra- elsher hefur drepið eru börn, flest hver frá Rafhah flóttamannabúðun- um þar sem Tom Hurndall var skotinn. Fjölskylda hans íhugar nú að fara fam á úrskurð um að leyfa lífi hans að fjara út en honum er haldið á lífi í öndunarvél. Mánuði eftir að Hurndell var skotinn í Rafhah var breskur sjónvarpsmyndatökumað- ur, James Miller, drepinn á sama stað. ísraelsher hefur hvað eftir ann- að frestað því að birta skýrslu um rannsókn á því atviki. í síðustu viku skaut ísraelsher á vopnlausa mót- mælendur pg særði tvo. Palestinskur maður með líflausan likama fimm ára drengs í fanginu en isrelskir her- menn drápu barnið að eigin sögn vegna mistaka

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.