Dagblaðið Vísir - DV - 14.02.2004, Síða 3
LAUGARDAGUR 14 FEBRÚAR 2004 3
DV
Pitsuhagfræði
Spurning dagsins
Hvað gerðist í Neskaupstað?
Það er ekkert skrýtið að manni
gangi illa að fá einhvern botn í það
hvernig reka á fyrirtæki á íslandi.
Það er nefnilega engu líkara en að
velgengni fyrirtækja sé í öfugu hlut-
falli við þörfina fyrir þau. Þannig
blómstra pitsustaðir og lýtalæknar á
meðan fyrirtæki sem sjá um fjar-
skipti á örlagastundu þar sem líf
fólks er í húfi berst í bökkum. Maður
hlýtur að velta því fyrir sér hvemig
pitsustaðirnir fari að þessu. Sérstak-
lega þar sem það hefur komið fyrir
mann að pitsan sé ódýrari ef maður
afþakkar ekki að fá tvo lítra af kóki
ókeypis með henni.
Rekstrarfræðilegt hókus pók-
us
Þessi hagfræði er einkum undar-
leg í ljósi þess að einhvern tímann
sagði einhver að kvöldmaturinn
væri aldrei ókeypis eða eitthvað svo-
leiðis, lögmál markaðarins grund-
vallaðist á þeirri staðreynd. Mér
skilst að átt sé við að á endanum
borgi alltaf einhver einhvers staðar
fyrir allt. Hvers vegna í ósköpunum
ætti þetta þá ekki að gilda um kókið
sem maður drekkur með kvöld-
matnum?
I póstkassanum mínum dúkka
upp með reglulegu millibili kosta-
kjör frá pitsustað hverfisins. Þetta
eru átta tilboð á miða sem er
kringlóttur eins og pitsa, litprent-
aður og rifgataður þannig að hægt
er að rífa hann í sneiðar, hverja
með sfnu tilboðinu. Þarna getur
maður fengið tvær pitsur á verði
einnar, 40% afslátt af 16 tommu
pitsu og sitthvað fleira í þeim dúr.
Auðvitað er freistandi að nýta sér
þetta þegar maður er ekki upp-
lagður til eldamennsku eftir erfið-
an dag í vinnunni eins og stundum
gerist. Enn fremur er það aðdáun-
arvert að kostnaðurinn við að
prenta þessi tilboð og dreifa þeim í
hús skuli ekki bitna á verðlaginu á
staðnum heldur einmitt þvert á
móti. Það er engu líkara en að eitt-
hvert rekstrarfræðilegt hókus pók-
us búi þarna að baki.
Bjarni þingmaður Hefur spjarað sig vel á
Alþingi, segir bréfritari.
Bjarni og
ættarfylgjan
Tómas Sigurðsson; skrifar. I vetur
hef ég lagt mig eftir að fylgjast með
störfum og baráttu þeirri ungliða
sem nú sitja á Alþingi. Margir af
hinum ungu alþingismönnum sýna
núá sínum fyrsta þingvetri góða
Lesendur
spretti og ekki síst hafa þeir sem
koma úr Sjálfstæðisflokknum spjar-
að sig. Gaman hefur verið til dæmis
að fylgjast með Garðbæingnum
Bjarna Benediktssyni. Greinilegt er
að hann tjáir sig ekki um mál nema
vera með allar staðreynir á hreinu og
skothelda röksemdafærslu. Það
mátti til dæmis sjá og heyra fyrir ára-
mót þegar Bjarni fór fyrir allsherjar-
nefnd í hinu fræga eftirlaunafrum-
varpi.
Þá fannst mér fallegt að sjá það til
Bjarna í viðtali á dögunum að hann
legði sig eftir því að aðstoða þá sem
höllum fæti standa í lífínu og til hans
leituðu sem þingmanns og lögfræð-
ings. Það sýnir hvert hjartalag
Bjarna er - og að hann er líkur sín-
um, því drengskapur hefur ævinlega
verið ættarfylgja Engeyinga.
Kjallari
Frumsamin
Norðfjarðargáta
Söguþráður settur saman á tíu mínútum:
„Fyrrverandi starfsmaður við Kárahnjúka
kynnist stúlku frá Neskaupstað. Eftir
starfslok heldur hann til í Reykjavík í
nokkrar vikur en fer síðan austur til að
hitta vinkonuna. Hún er hins vegar í sam-
búð og sambýlingurinn kemur að þeim.
Málið ieysist þegar fingraför innan á
plastumbúðunum eru borin saman við
gagnabanka lögreglunnar."
Viktor Ingólfsson,
glæpasagnahöfundur
„Þetta er, spái
ég, hluti afein-
hverri risastórri
fléttu sem
teygir anga
sína út fyrir
landsteinana.
Ég hefþó það
mikla trú á ís-
lenskri löggæslu að ég sþái að málið
upplýsist, en þó ekki fyrr en líður á árið. “
Bjarni Kristinsson
rekstrarstjóri
„Ég spái að
þetta hafi verið
ást í meinum.
Að sá látni hafi
átt í ástarsam-
bandi við konu
fyrir austan, að
eiginmaðurinn
hafi komið að
þeim og ráðið
manninum bana og sett síðan í höfn-
ina. Þetta er söguþráður sem gengur
upp.“
Sólveig Jónsdóttir,
nemi í hárgreiðslu
því sem greitt er fyrir helminginn
sem ekki er ókeypis. Náðuð þið
þessu? Venjulegt verð er þannig ekki
annað en brandari sem búinn er til í
þeim tilgangi að láta eðlilegt verð
hljóma eins og díl aldarinnar.
Auðvitað er fallegt að vilja gefa
fólki mat og pitsustaðir eiga lof skil-
ið fyrir það. Mér þætti hins vegar
betra að fá að greiða sanngjarnt verð
í hvert skipti heldur en að vera hafð-
ur að fífli í asnalegum eltingaleik við
duttlunga markaðsdeildarinnar. Ég
hef nefnilega margt þarfara við tíma
minn að gera en að vera stanslaust
að fylgjast með því hvar sé ekki verið
að okra á mér hverju sinni.
Er önnur hver pitsa ókeypis?
Vissulega er ekki laust við að það
læðist að manni sá grunur að eðli-
legt verð á pitsum sé ekki alls kostar
í samræmi við venjulegt verð. Þá á
ég við að það, sem kallað er eðlilegt
verð á pitsu, sé töluvert hærra en
verðið sem að jafnaði er greitt fyrir
hverja pitsu þegar upp er staðið.
Reyndar finnst manni það nánast
liggja í augum uppi fyrst nánast
önnur hver pitsa er gefin, kókið er
gefins og allir sem á annað borð
uppfylla það skilyrði að hafa aðgang
að póstlúgu fá iðulega upp undir
helmings afslátt.
Þetta er farið að ganga svo langt
að manni finnst næstum því eins og
það sé verið að féfletta mann í hvert
sinn sem maður bara fær sér pitsu.
Þegar hvorki er megavika né tvær-
fyrir-ein-tilboð, maður þarf að
borga fyrir gosið og fær kannski ekki
einu sinni afslátt af brauðstöngun-
um, greiðir maður margfalt hærra
verð en ef maður miðaði
neyslu sína við almanak-
ið hjá Dómínós
kostakjör Hróa
Hattar.
Hvar er ekki
verið að
okra á mér?
Kvöldmaturii
er auðvitað ek____
ókeypis. Þegar helm
ingurinn af honum
fylgir hinum helm-
ingnum ókeypis er í
raun greitt fyrir
ókeypis helminginn yp
með helmingnum af
°g
Vopnin kvödd
Helga Bjamadóttii skrifar: „Það
er segin saga að ef maður þráir eitt-
hvað nógu heitt, bregst ekki að það
rætist," sagði Pétur Gunnarsson rit-
höfundur í viðtali við DV nú í líðandi
viku. Hann lýsti því að nú væri hans
gamli draumur um að fá að lesa
Passíusálmana í Útvarpinu loksins
að rætast. Verður ekki annað sagt en
honum takist vel upp í þvf hlutverki,
sem mörgum af helstu mektar-
mönnum og menningarvitum þjóð-
arinnar hefur verið falið í tímans rás.
Herinn á Keflavíkurflugvelli er nú
að taka saman föggur sínar, en
einsog segir í Mogganum á föstudag
þá eru kafbáta- og skipaeftirlitsvélar
Varnarliðsins nú farnar af landi
brott. Ekki virðist heldur vera ætlun-
in í bráð að senda nýjar vélar í stað-
inn, eftir því er liggur í orðanna
hljóðan í frétt Moggans.
Setja má orð Péturs Gunnarsson-
ar í annað samhengi þegar maður
les þesa frétt, það er að „... ef að
maður þráir eitthvað nógu heitt,
bregst ekki að það rætist." Með
brotthvarfi kafbátaleitarvélánna úr
Miðnesheiðinni er draumur margra
herstöðvarandstæðinga að rætast
um að hér ríkir friðurinn ofar hverri
kröfu og að ísland sé herlaust land.
Vopnin kvödd sagði Hemmingway -
og hið sama er nú að gerast á fs-
landi.
Steikin er borin fram meö piparsósu, kryddsmjöri, frönskum
og fersku salati. í salatinu er gúrka, paprika, laukur, iceberg,
sveppir og grænmetissósa.
Davíð Þór Jónsson
reynir að átta sig á
fyrirtækjarekstri.
DV tekur við lesendabréfum og
ábendingum á tölvupóstfanginu
lesendur@dv.is. DV áskilur sér rétt til að
stytta allt það efni sem berst til blaðsins
og birta það í stafrænu formi og í
gagnabönkum án endurgjalds.
„Meðan lög-
regla gefur
takmarkaðar
upplýsingar fer
fólk að geta í
eyðurnar, sem
aftur magnar
upp hræðslu.
Efvið værum
stödd á fyrstu
síðum glæpasögu eftir Arnald Indriða-
son væri erfitt að sjá sögulok fyrir; hvort
hinn myrti hafi verið ólánsmaður úr
undirheimunum eða hvað hafiyfirhöf-
uð gerst."
Helgi Seljan,
blaðamaður Austurgluggans
„Mérþótti
þráðurinn í
kvikmyndinni
Hafinu, sem
tekin var upp i
Neskaupstað,
vera stórbrot-
inn en sagan
verður lítilfjör-
leg samanbor-
ið við þennan líkfund. Þetta líkist rosa-
legri bíómynd. Það voru norskir laxar
sem sluppu úr höfninni fyrir austan og
nú halda sumir að líkið sé afNorð-
manni. Hvað er í gangi?"
Guðmundur R. Gíslason,
bæjarfulltrúi í Fjarðabyggð
Líkfundurinn í Norðfjarðarhöfn í vikunni er mál málanna. En hver er lausn morð-
gátunnar og þessa máls, sem toppar allar spennusögur og reyfara?
kr. 1395,-
Öpið til 23:30 alla daga