Dagblaðið Vísir - DV - 14.02.2004, Qupperneq 4
4 LAUGARDAGUR 14. FEBRÚAR 2004
Fréttir DV
íslendingarn-
ir í Irakfá við-
urkenningu
íslensku sprengjusér-
fræðingarnir í Irak, þeir
Jónas Þorvaldsson ogAdri-
an King, hafa fengið viður-
kenningu frá breska hers-
höfðingjanum Andrew
Stewart yfirmanni fjöl-
þjóðaherliðsins í suðaust-
ur Irak. íslendingarnir,
ásamt fjórum Dönum úr
dönsku herdeildinni sem
þeir starfa með, fengu við-
urkenninguna fyrir ein-
stakt framlag þeirra við
skyldustörf sín. Andrew
Stewart ílaug með þyrlu til
Camp Eden fyrr í vikunni
og aflienti þeim Jónasi,
Adrian og Dönunum fjór-
um innrammað viður-
kenningarskjal. Jafnframt
hrósaði hann herdeild
þeirra fyrir vel unnin og
fagmannleg störf. Þeir
Jónas og Adrian eru nú á
heimleið og er áformað að
þeir verði komnir aftur til
starfa hjá Landhelgisgæsl-
unni um næstu mánaða-
mót. Á þeim tíma sem þeir
hafa verið í írak hafa þeir
eytt samtals 60 tonnum af
sprengjum og sprengibún-
aði og alls hafa þeir sinnt
um 80 útköllum.
Umferðar-
óhapp á
Arnarnesvegi
Umferðarslys var seinni
hluta dags í gær þegar tveir
bílar rákust saman á mót-
um Arnarnesvegar f Garða-
bæ í gær. Bílarnir komu úr
gangstæðri átt og ók annar
í veg fyrir hinn. Ökumaður
annars bflsins var fluttur á
slysadeild en reyndist ekki
alvarlega slasaður.
Jórdaníu-
maður í
gæsluvarhald
Jórdaníumaður á þrítugs
aldri var úrskurðaður í viku
gæsluvarðhald af héraðs-
dómi Reykjavíkur í gær.
Hann er sakaður um að
skipuleggja gervihjónabönd
þar sem íslenskar konur
eiga hlut að máli.
Maðurinn er handtek-
inn nú í beinu framhaldi
rannsóknar sem fór af stað
í nóvember síðast liðnum
en að sögn Ingimundar
Einarssonar varayfirlög-
regluþjóns hjá Lögreglunni
í Reykjavík hefur sú rann-
sókn borið þann árangur
að lögreglan óskaði eftir úr-
skurði um gæsluvarðhald
yfir manninum nú. Hann
mun vera kvæntur íslenskri
konu.
Átta manna vinahópur í KefLavík hefur staðið að fjölda lögbrota í bænum síðustu
mánuðina. Þeir rændu meðal annars byssum sem birtust í Bónusráni í Kópavogi.
Þá rændi einn þeirra KB banka og Hótel Örk í Hveragerði í fyrradag.
■wr---........ .. -------—-------------— -----------
Cristopher Mamelin
Öðrum þeirra sem rændu
KB-banka og Hótel Örk i
Hveragerði í vikunni var
birt ákæra í Keflavik i gær
vegna þjófnaðaröldu sem
hann og sjö félagar hans
áttu þátt í.
Ræningi í Hveragerði
hluti af Keflavíkurklíku
Átta manna vinahópur tvítugra drengja í
Reykjanesbæ er talinn hafa staðið að þorra inn-
brota og þjófnaða á Reykjanesinu síðasta árið.
Sex þeirra voru dregnir fyrir dómara í Keflavík í
gær og þingfest ákæra á hendur þeim. Mál þeirra
voru sameinuð þar sem þau tengdust flest í
kross.
Einn þeirra, Cristopher Mamelin, var hand-
tekinn í Hveragerði í fyrradag eftir að hann
rændi Hótel örk og útibú KB-banka í bænum í
samvinnu við æskuvin sinn af Suðurnesjunum.
Fjórir úr vinahópnum brutust meðal annars inn
á heimili í Keflavík í haust og stálu þaðan þrem-
ur rifflum og jafnmörgum haglabyssum. Tvær af
haglabyssunum voru sfðar notaðar af 19 ára
gömlum frændum úr Kópavogi sem rændu
„Þetta er félagahópur sem
hefur komið ítrekað við sögu
iögregiunnar síðustu árin, sér-
staklega þrír til fjórir af
þeim."
verslun Bónus við Smiðjuveg 8. desember síðast-
liðinn.
Fjölgun hefur orðið í þjófnuðum og innbrot-
um í Keflavík síðustu mánuði. í frétt Víkurfrétta
fyrir skömmu sagði frá því að síðustu þrjá mánuð-
ina hafl tæplega 100 þjófnaðir verið kærðir til lög-
reglunnar. Talið er að vinahópurinn í Keflavík
beri ábyrgð á umtalsverðum hluta þessara brota.
Meðal glæpa sem þeir eru ákærðir fyrir eru brot á
vopnalögum, umferðarlögum, fíkniefnabrot og
þjófnaðir. Elstu brotin að þessu sinni eru frá febr-
úar 2003 en þau nýjustu frá því í janúar.
Jóhannes Jensson, aðstoðaryfirlögregluþjónn í
Keflavík, segir að þótt mennirnir séu ungir að aldri
eigi þeir að baki langan feril. „Þetta er félagahópur
sem hefur komið ítrekað við sögu lögreglunnar
síðustu árin, sérstaklega þrír til fjórir af þeim.“
Cristbpher Mamelin var ásamt félaga sínum úr
ránunum í Hveragerði úrskurðaður í gæsluvarð-
hald til 19. febrúar, en 18 ára gömul stúlka sem
var í förum með þeim er frjáls ferða sinna.
jontrausti<s>dv.ls
Uppreisn
Svarthöfði las sér til skelfingar
frétt DV í gær um að hrafn hefði
reynt að ræna hundi í öskjuhlíðinni
nýlega. Eftir að hafa gengið úr
skugga um að hvorki væri um að
ræða Hrafn Gunnlaugsson né Hrafn
Jökulsson, en þeir hefðu verið við-
ráðanlegir þótt stórir séu í sniðum,
báðir tveir, þá lagðist Svarthöfði í
þunga þanka.
Hvernig mátti það vera að hrafn-
ar landsins tækju upp á þeim
óskunda að ráðast að hundum?
Þetta er fáheyrt, ef ekki beinlínis
óheyrt. Og það hvarflaði að Svart-
höfða hvort þetta væri kannski til
marks um að fuglar yfirleitt væru að
færa sig upp á skaftið og færu brátt
að haga sér eins og fuglarnir í mynd-
inni hans Hitcocks. Ekki varð Svart-
höfða rórra þegar hann uppgötvaði
náttúrunnar?
Svarthöfði
að myndin Fuglarnir var einmitt á
dagskrá Ríkissjónvarpsins í gær.
Þetta virðist vera einum of einkenni-
legt tilviljun, til að geta yfirleitt verið
tilviljun.
Voru fuglarnir að gera uppreisn?
Var árásin í Öskjuhlíð til marks um
að þeir væru farnir að æfa sig á
hundum en myndu brátt byrja árás-
ir á menn? Og þýddi það að náttúran
sjálf væri farin að hnykla vöðvana og
búast til árása á manninn og fylgi-
fiska hans, eins og hundar óneitan-
lega eru?
Og Svarthöfða varð hugsað til
Plágunnar eftir Albert Camus þar
sem plágan sendir rottur sínar upp á
yfirborðið til að deyja, en æ síðan
Svarthöfði las það í æsku hefur hann
verið viðkvæmur fyrir fregnum af
einkennilegheitum í náttúrunni. Og
Svarthöfði hefur reyndar alltaf verið
fylgjandi kenningunni um að jörðin
öll sé ein lífvera - Gæja - og maður-
inn sé ekki annað en snfkjudýr á
þeirri lífveru og fyrr eða síðar muni
jörðin gera uppreisn og leggjast í
lúsahreinsun til að skola af sér
óværuna sem mannkynið er.
Það var svo kona Svarthöfða,
Svarthöfða, sem stöðvaði súrrandi
áhyggjurnar sem farnar voru að
þjaka Svarthöfða. Þar sem Svart-
höfði hafði fimbulfambað lengi um
ógnina af hröfnunum í Öskjuhlíð-
inni benti hún honum hlæjandi á að
það væri nú varla hægt að kalla
hundinn sem hrafnarnir reyndu að
ræna raunverulegan hund. Þetta er
dvergvaxið kvikindi sem svipar mest
til rottu, eða þó öllu heldur kanínu,
en þeim er víst farið að
fjölga ískyggilega
Óskjuhlíðinni upp á
síðkastið.
Svo
krummi
greyið hefur
bara ætl-
að sér að
veiða sér
kanínu
í mat-
inn og
við þurfum
ekkert að ótt
ast.
Svarthöfði.