Dagblaðið Vísir - DV - 14.02.2004, Page 6
g LAUGARDAGUR 14.JFEBRÚAR 2004
Fréttir DV
Bændur leyst-
ir úr ánauð
össur Skarphéðinsson
vakti athygli á þingi þegar
hann lýsti því yfir að land-
búnaðarráðuneytið væri
óþarft. Nú hefur Frjáls-
hyggjufélagið tekið
undir sjónarmið
formanns Samfylk-
ingarinnar og hefur
sent frá sér ályktun
þess efnis. í álykt-
uninni bendir
Frj álshyggj ufélagið
á að opinber
stjórnsýsla sé ís-
lendingum dýr og að opin-
berar stofnanir séu fleiri
hér á landi en í mörgum
milljónaríkjum á Vestur-
löndum. Hvetur Frjáls-
hyggjufélagið til þess að
leitað verði leiða til að
frelsa bændur úr ánauð rík-
isstyrkja og opinberrar
miðstýringar.
Þyrlan sótti
veikt barn
Þyrla Landhelgisgæsl-
unnar flaug til Patreksfjarð-
ar í dag til að sækja veikt
barn. Ekki þótti fært að
senda barnið með sjúkra-
flugi íslandsflugs til Reykja-
víkur þar sem læknir varð
að fylgja því en aðeins var
einn læknir á vakt í hérað-
inu og gat því ekki farið
með í sjúkraflugið. Áhöfn
TF-LIF var köliuð út og
lagði af stað tæplega 12:30.
Veður hafði verið slæmt
um morguninn en gengið
niður svo flugið gekk vel.
Er líf eftir Idol?
Ardís Ólöf Víkingsdóttir
„Já og nei/'segirArdís Ólöf
Víkingsdóttir, fyrrum Idol-
stjarna.„Þetta var mikil törn
en skemmtilegt og maður
lærði afar mikið. Þetta var
gríðarleg reynsla en nú getur
maður loks andað léttar. Svo
fylgist maður auðvitað með
American Idol og ekki er laust
við að maður upplifi þennan
tíma aftur. En það er nóg að
gera, er að koma til ísafjarðar,
og dæma i söngvakeppni. Það
er lífeftir Idol."
Hann segir / Hún segir
„Alveg pottþétt," segir Helgi
Rafn Ingvarsson, sem fór á
kostum íldol á sínum tíma.
„Maður saknar Idolsins mjög
mikið en þetta var ótrúleg
reynsla. Sérstaklega fær mað-
ur fiðring þegar maður sér
gömul Idol plaköt og líka þeg-
ar maður sér krakkana i Amer-
ican Idol. Það er samt nóg að
gera; sérstakiega í fyrirsætu-
þransanum. Svo er ég nýbúinn
að setja upp ieiksýningu og er
á fullu ihljómsveit."
Helgi Rafn Ingvarsson
Varnarliðið fullyrti við DV í síðustu viku að nýjar Orion-flugáhafnir myndu leysa
af hólmi þær sem hurfu af landinu. Nýr mannskapur er þó hvergi sjáanlegur.
Utanríkisráðuneytið er uggandi og heimtar skýringar frá Bandaríkjamönnum.
Neita að viðurkenna
brntthvari leitarvéla
Bækistöðvar P 3 Orion-eftirlitsflugvéla sem hér
hafa verið á vegum Bandaríkjahers hafa verið
fluttar frá íslandi.
Áhafnir Orion-vélanna hurfu með sitt haf-
urtask frá landinu í síðustu viku og nýr mann-
skapur er ekki kominn til að taka við. Vindurinn
einn gnauðar nú í stóra skýlinu sem
Mannvirkjasjóður NATO byggði og sem hýsti
deildina. Utanríkisráðuneytið krefst skýringa frá
Bandaríkjamönnunt.
Þann 29. desember síðastliðinn greindi DV frá
því að loka ætti tveimur viðhaldsdeildum Orion-
vélanna á Keflavíkurflugvelli. Þar með blasti við
að bækistöðvar vélanna yrðu fluttar frá landinu.
Varnarliðið neitaði því og sagði við DV að engin
ákvörðun hefði verið tekin um breytingar á starf-
semi Orion-eftirlitsflugvéla á Keflavíkurflugvelli.
„Sögusagnir af þeim toga eru byggðar á getgát-
um,“ sagði í yfirlýsingu varnarliðsins.
„Það hefur engin ákvörðun verið tekin, form-
leg eða óformleg, um framtíð Orion-vélanna,"
sagði Friðþór Eydal, upplýsingafulltrúi varnar-
Tvcimur viöhaldsdeildum hersins á Keflavlkurflugvelli verður lokaö en þær hafa
þiónustaö fjórar P-3 Orion eftirlitsvélar. 85 hermenn veröa fluttir annaö. Orion
vélarnar hafa haft litla viöveru á Islandi undanfariö en talsmenn herslns neita
aö staöfesta aö þær séu veröi i reynd ekki lengur staösettar 1 Keflavik.
Varnarliö hættir
að hjonusta Orion
liðsins, við sama tækifæri. Friðþór viðurkenndi að
viðhaldsdeildirnar yrðu lagðar niður en þvertók
fýrir að það þýddi sjálfkrafa að Orion-vélamar
yrði ekki staðsettar á Islandi.
í síðustu viku var svo greint frá því í tímaritinu
White Falcon - Hvíta Fálkanum - sem gefið er út
á á Keflavíkurflugvelli, að áhafnir leit-
arvélanna væru á leið frá landinu.
Aftur var haft samband við
Friðþór Eydal upplýsinga-
fulltrúa:
„Greinin í Hvíta Fálk-
anum fjallar um brott-
för þessarar sveitar
sem er búin að vera
hérna undanfarna
sex mánuði - sem eru
bara venjuleg skipti.
Það er skipt um
þessar sveitir á sex
mánaða fresti. Það er
hefbundið að fjalla
um þá sveit sem er að
fara á hverjum tíma í
Hvíta Fálkanum. Það
koma væntanlega aðrir í
staðinn," sagði Friðþór í
samtali á föstudaginn fyr-
ir viku í samtali við blaða-
mann DV.
„Undanfarna sex mán-
uði hafa vélarnar bara verið
hér endrum og sinnum. Það
ræðst af fyrirliggjandi verk-
efnum, bæði hér á Iandi og
annars staðar í Evrópu, hvert
þeim er skipað hverju
sinni. Þannig hefur
það alltaf verið
Lengst af
„Undanfarna sex mánuði
hafa vélarnar bara verið hér
endrum og sinnum."
var mest að gera hér þannig að lengst var
viðveran hér,“ sagði Friðþór.
Upplýsingafulltrúinn kvað
nei við aðspurður hvort tekin
hefði verið ákvörðun um
breytingu á bækistöðvum
vélanna. Að því er Frið-
þór sagði voru ein eða
tvær vélar hér á landi í
þar síðustu viku.
„Þetta er allt saman
óbreytt frá því sem segir
í frétt DV í desember,"
sagði Friðþór Eydal fyrir
rúmri viku.
gar@dv.is
Friöþór Eydaf Það koma aðrir
i stgöinn, satjði upplýsingafull-
trúl varrigrliðsins ísióustu viku
við blaðamann OV, spuröur um
brótthvarf áhafna Orion-leitar-
vétanna. Ekkibólar á nýjum
áhöfnum.
Frétt DV 29. desember 2003 DV
skýrði frá þvi millijóla og nýárs að við-
haldsdeiidir Orion-leitarflugvéla yrðu
lagðar niður. Herinn neitaði þá að stað-
festa að vélarnar væru ekki I reynd
staðsettar á Keflavikurflugvelli.
Tveir bræður og tveir vitorðsmenn hlutu fangelsisdóma fyrir fikniefnasmygl
Hásetinn situr lengst inni
Fjórir ungir menn, sem játað
höfðu á sig fíkniefnasmygl, voru í gær
dæmdir í Héraðsdómi Reykjavíkur.
Hlutu þeir fangelsisdóma frá sex
mánuðum til tveggja og hálfs árs. Um
var að ræða innílutning á tveimur
kílóum af amfetamíni og kílói af
kannabisefnum.
Þyngstan dóm hlaut Jökull Isleifs-
son, háseti á Arnarfelli, en efnin voru
flutt til landsins falin í skipinu. Bróðir
hans, Ægir ísleifsson, sá svo urn að
sækja efnin í skipið þegar það hafði
lagst við bryggju hér á landi. Sá hlaut
20 mánaða fangelsi fyrir vikið.
Enn fremur vom bræðurnir
dæmdir fyrir innflutning á am-
fetamíni en það reyndist við efna-
greiningu vera koffí'n og þótti dómn-
um ljóst að bræðurnir hefðu verið
blekktir. Það efni var flutt hingað til
lands á sama hátt en fyrir tilstuðlan
þriðja aðila. Enginn þeirra hefur áður
komið við sögu lögreglu vegna fíkni-
efnabrota af neinu tagi.
Refsing tveggja vitorðsmanna
bræðranna var að mestu leyti bundin
skilorði en þeir sáu fyrst og fremst um
fjármögnun og kaup á efnunum í
Hollandi.
I dómsniðurstöðunni kemur fram
að vegna þess að það sem bræðurnir
héldu vera amfetamín reyndist vera
koffín séu hinir ákærðu ekki sakfelldir
fyrir fullkomnað brot.
Frá fangelsisvist mannanna dregst
gæsluvarðhaldsvist en þeim var gert
að greiða verjendum sínum samtals
700 þúsund krónur í málsvarnarlaun
auk annars sakarkostnaðar. Fíkniefn-
in voru gerð upptæk.
Við dómsuppkvaðningu i Héraðsdómi
Reykjavikur. DV-Mynd GVA