Dagblaðið Vísir - DV - 14.02.2004, Qupperneq 8
8 LAUGARDAGUR 14. FEBRÚAR 2004
Fréttir DV
Maðurinn sem fannst illa leikinn við Netabryggjuna í Neskaupstað var með verulegt magn af
fíkniefnum, líklega amfetamíni, innvortis. Rannsókn málsins tók óvænta stefnu síðdegis í gær
þegar þetta kom í ljós. Böndin berast nú að fíkniefnaheiminum og að rannsaka verði málið
sem fíkniefnatengt morð. Mögulega var þetta aftaka á burðardýri sem lenti upp á kant við
samstarfsmenn sína, erlenda eða íslenska.
Líkið sem fannst í Norðfjarðar-
höfn á miðvikudag var fullt af fíkni-
efnum. Samkvæmt heimildum DV
kom þetta í ljós í gær þegar líkið
var krufið í Rannsóknarstofnun
Háskólans ( meinafræði við Bar-
ónsstíg. Fíkniefnin voru innvortis í
líkinu og var þetta verulegt magn
samkvæmt heimildarmanni DV.
Ekki er búið að greina efnið en allt
bendir til þess að þetta sé am-
fetamín. Þessi fíkniefnafundur
innvortis í dularfulla líkinu setur
þetta morð í alveg nýtt samhengi.
Vitað er að lögregla hefur unnið út-
frá þeirri
kenningu
að hinn
myrti sé
útlending-
ur. Sé svo
eru sterkar
líkur á því
að hann
hafl verið
nýkominn með flugi til landsins og
því ekki náð því að skila fíkniefn-
unum áður en hann er myrtur.
Eins og fram kemur annars staðar í
blaðinu eru allar líkur á því að lík-
inu hafi verið sökkt við Netabryggj-
una á tímabilinu frá því seint að-
fararnótt þriðjudags til miðviku-
dagsmorguns. DV hefur ekki heim-
ildir fyrir því hvenær maðurinn var
myrtur enda er mögulegt að hon-
um hafi verið ráðinn bani áður en
honum var komið fyrir við Neta-
bryggjuna. Hafi hann aftur á móti
verið drepinn skömmu áður en
honurn var varpað í höfnina hefur
maðurinn líklegast verið nýkom-
inn til landsins. Hinn myrti gæti
því hafa komið til landsins
skömmu áður en honum er varpað
Netabryggjan Hér
fannst hinn myrti á
miðvikudagsmorgun.
í höfnina, jafnvel er mögulegt að
hann hafi komið á þriðjudag til
landsins.
Með flugi fremur en skipi
Nokkrir heimildarmenn DV
benda á að afar ólíklegt sé að mað-
ur sem smygli fíkniefnum með
skipi feli efnin innvortis. Þess utan
hefur Norræna ekki kornið til
landsins um skeið. Búið er að hafa
samband við flest skip sem komu
til hafnar á Norðftrði og raunar til
annarra hafna á Austíjörðum. Ekk-
ert skip kom beint erlendis frá til
Neskaupsstaðar síðustu daga. Eitt
skip kom til Eskifjarðar á sunnu-
dag. Þó ekki sé hægt að útiloka að
maðurinn hafl komið með skipi
má telja það ólíklegt, ekki síst þeg-
ar haft er í huga að búið er að hafa
samband við flest skipin og fremur
ólíklegt að skip haldi úr höfn án
þess að tilkynna um týndan skip-
verja. Böndin berast því að flug-
leiðinni eins og innvortissmyglið
bendir raunar sterlega til. Sé svo
hefur hinn myrti væntanlega kom-
ið til Keflavíkurflugvallar og farið í
gegnum tollhlið í Leifsstöð.
Frá Keflavík til Norðfjarðar
Líklegt er að reynt hafi verið að
bera kennsl á manninn í gegnum
Reykjavíkurflugvöllur Hinn myrti
var fluttir til Reykjavikur til krufningar.
Leifstöð Telja má
liklegt að hinn myrti
hafi ekki komið
sjóleiðis til landsins.
öryggismyndavélakerfi Leifsstöðv-
ar en þar eru
geymdar and-
litsmyndir
þeirra sem
fara í gegnum
stöðina. DV
hefur ekki vit-
neskju um það
hvort slík
skoðun hafi
skilað ein-
hverjum vísbendingum. Hafl mað-
urinn komið í gegnum Keflavík
bendir allt til þess að hann hafi far-
ið beint austur á land, væntanlega
flugleiðis. Beint flug er á milli
Keflavíkur og Egilsstaða á sunnu-
dögum og fimmtudögum en þess
utan eru nokkur flug á dag frá
Reykjavík til Egilsstaða. Því er svo
aftur á móti ósvarað hvers vegna
maður með talsvert magn af fíkni-
efnum innvortis endar austur á
landi.
Fíkniefni elta markaðinn
Þó ekkert skuli fullyrt um sam-
félag útlendinga við Kárahnjúka er
ekki loku fyrir það skotið að tengsl
kunni að vera á milli ferða þessa
dularfulla manns og nýja bæjar-
kjarnans þar. Lögregla hefur talið
að hinn myrti kunni að vera frá
Suður-Evrópu en Við Kárahnjúka
er nokkuð stórt samfélag Portúgala
auk þess sem þar starfa menn frá
fjarlægari þjóðum. Samkvæmt
upplýsingum DV kom hópur
Portúgala til Kárahnjúka fyrir 3-4
dögum síðan. Þeir komu með flug-
vél frá Lissabon til Keflavíkur, ekið
var með þá til Reykjavíkur og flog-
ið áfram til Egilsstaða. Ekkert
bendir þó til þess að nokkurs sé
saknað úr þessu flugi
verkamanna og neitaði
Órnar Valdimarsson, upp-
lýsingafulltrúi Impregilo
að veita blaðinu upplýs-
ingar - sagðist ekki tjá sig
við DV.
Austur-Evrópsk aftaka
Maðurinn sem fannst
myrtur var illa útleikinn og
þeir sem sáu poloroid-
mynd af líkinu sögðu að
áverkar hefðu verið á and-
liti þess. Tveimur vopnum var beitt
til þess að murka úr honum líflð,
oddhvössu vopni sem stungið var í
háls og eggvopni sem stundið var í
búk. Einn þrautreyndur heimildar-
maður innan lögreglu lýsti því svo
að þetta liti út eins og aftaka í Aust-
ur-Evrópskum stíl. Leitað er
tveggja eða fleiri morðinga sem
kunna að vera erlendir en þeir
gætu eins verið íslendingar. Fíkni-
efnin kunna að benda tii þess að
hinn myrti hafl verið burðardýr og
Teiknari að störfum DVsetti Inga,
teiknara blaðsins, isamband við vitni i
Neskaupstað, sem öll hafa séð mynd af
hinum myrta. Myndir voru sendar á
milli í gegnum faxtæki til að ná sem
nákvæmastri mynd afmanninum. Ef
þú hefur séð þennan mann, þá hringdu
í lögreglu i síma 477 1332.
hefur hann þá átt sér vitorðsmenn
um þessa smygltilraun sem endar
á morði. Á þessu stigi geta það ein-
ungis orðið getgátur að hugleiða
hvers vegna samskipti hins myrta
og morðingja hans enda með þess-
um hætti. En vísbendingar um
pyntingar á hinum myrta auk
fjölda hnífsstungna á manninum
með iðrin full af dópi leiða getum
að því að það kunni að komið upp
harðvítugar deilur sem enduðu á
morði.
Líkinu komið fyrir? DV fékk tvo filhrausta menn til að pakka þeim þriðja inn og
vefja iplast og keðjur, svipað og gert var við þann myrta. Þeir áttu fullt i fangi með að
iyfta manninum og tók verknaðurinn klukkustund við bestu aðstæður í Reykjavik.
Atburðarásin
er eins og í
bíómynd, eða
spennusögu á
heimsmæli-
kvarða. íslend-
ingar fylgjast
spenntir með
atburðarásinni
og muna ekki
annað eins.
Föstudagur: Laugardagur
Ófærð skellur á Odd-
skarð lokast. Neskaup-
staður einangraður
landleiðina.
Laugardagskvöld. Þrír
Norðmenn sitja að
drykkju í Egilsbúð.
Starfsfólk staðarins
taldi að einn mann-
anna líktist mynd af
hinum látna. Jóhannes
Gísli Pálmason háseti
á Súlunni mundi vel
eftir þessum þremur
útlendingum. „Þeir
voru af norska loðnu-
skipinu Senior, alla-
vega tveir þeirra." Sá
þriðji varð viðskila við
hópinn. Um tíma var
talið að hann væri
hinn myrti. DV hafði
samband við Senior,
þar voru allir um borð.
Hásetinn HalvarTom-
assen var á lífi.
Sunnudagur
Sunnudagsmorgunn. Færð kemst aftur á yfir Odd-
skarð. Einangrun Neskaupstaðar rofin.
Grár skutbíll, aðkomubíll í bænum sést við Neta-
bryggjuna. „Ég tók sérstaklega eftir bíinum því ég
þekki fiesta bila i bænum og þessi bíll er ekki héð-
an," segir Þorvaldur. „Mér sýndist þetta vera gam-
all grár Lancer Station, allavega tíu ára gamall,"
sagði Þorvaldur Einarsson.
Mánudagur
Kl. 12.30
Aðfaranótt þriðjudags leggur
loðnuskipið Beitir upp að Neta-
bryggjunni. Þröngvar sér að bryggj-
unni með miklu botnróti og tekur
niðri á þeim stað sem líkið siðar
fannst.
K 1,03.10
Beitir siglir frá bryggunni. Líkinu
gat ekki hafa verið fyrir komið fyrir
fyrr en eftir þennan tíma.
Líkinu er fleygt í sjóinn frá kl. 03:10
aðfaranótt þriðjudags til kl. 11.00 á
miðvikudag.