Dagblaðið Vísir - DV - 14.02.2004, Page 12
12 LAUGARDAGUR 14. FEBRÚAR 2004
Fréttir JSf
Jacko situr
heima
Dómari hefur ákveðið
að Michael Jackson þurfi
ekki að mæta í eigin per-
sónu til réttarhaldanna sem
haldin verða yfir honum
vegna kærunnar um kyn-
ferðislegt áreiti hans gagn-
vart börnum. Þótti það rétt
þar sem hætta þykir á að
dómshaldið geti breyst í
fjölmiðlasirkus mæti Jacko
á staðinn. Einungis lög-
fræðingahópur hans mun
mæta en Jacko situr heima
á meðan.
Meydóms-
sala vekur
grunsemdir
Lögregluyfirvöld í
London leita nú
hinnar 18 ára
Rosie Reid sem
auglýsti meydóm
sinn til sölu fyrir
hæstbjóðandi í
ensku dagblað-
inu News of the
World fyrir
skömmu. Aug-
lýsti hún varning sinn til
sölu bæði á uppboðsvefn-
um Ebay og síðar á sinni
eigin heimasíðu. Hæsta
boð var komið í tæpar 12
milljónir þegar síðast frétt-
ist. Lögregla telur að um
vændi sé að ræða og vill
gjarna ná tali af stelpunni
sem fýrst.
Heiðurs-
gróði Dana
Danski seðlabankinn
hyggst gefa út nýja 20-
krónu og 200-krónu
mynt næsta maí til að
heiðra brúðkaup
Friðriks krónprins og
unnustu hans, hinnar
áströlsku Mary. Gert
er ráð fyrir að safnar-
ar kaupi hina kon-
unglegu mynt fyrir allt að
230 milljónir króna. Helm-
ingur af því fer beint í ríkis-
kassann en hinn helming-
urinn endar skattfrjálst hjá
konungsfjölskyldunni
dönsku.
Albert Eymundsson,
bæjarstjóri Hornafjarðar.
„Það sem kannski stendur
hvað hæst þegar horft er fram
á veg er sú samgöngubót sem
göngin um Almannaskarðið
Landsíminn
breyting nýtist öllum lands-
mönnum þarsem um hring-
veginn er að ræða en vafa-
laust hefur það jákvæð áhrif
fyrir byggð hér á Hornafirði og
í nágrannabyggðum enda
margir sem veigra sér við að
keyra þessa leið á ferðalagi.
Þarna verður þó áfram að-
gengi að útsýnispallinum
enda mikið útsýni þar á góð-
um degi."
Vegna vaxandi samskipta á Netinu og færri póstsendinga er íslandspóstur að
stækka útburðarhverfi bréfbera. Bréfberar í Kópavogi eru gramir yfir breytingun-
um og telja að byrðin hafi þrátt fyrir allt þyngst. Póstmannafélagið er með málið
til skoðunar.
Netvæðing veldur
gremju bréfbera
Breytingar íslandspósts til hagræðingar á
dreifikerfinu fela meðal annars í sér að bréfberar
í Kópavogi, sem eru í 50 prósenta starfi, eru leyst-
ir frá störfum og aðrir bréfberar í fullu starfi
skikkaðir til að taka við hálfu starfi í ofanálag, án
kauphækkunar. Þetta gildir um póstnúmerið 201,
en ekki hefur verið ákveðið hversu langt verður
gengið í öðrum hverfum. Breytingarnar taka gildi
á mánudaginn og er mikill kurr
meðal bréfbera vegna málsins.
Samkvæmt upplýsingum frá ís-
landspósti er ekki um að ræða að
verið sé að auka vinnuálag á starfs-
menn. Hverfi bréfberanna eru
stækkuð til að samræma álag á milli
svæða.
Tryggvi Þorsteinsson, fram-
kvæmdastjóri framkvæmdasviðs ís-
landspósts, segir að netvæðingunni
sé um að kenna. „Svo við tökum
söguna, þá var póstmagn áður
meira. Þá minnkuðum við hverfin, en nú hefur
póstmagnið farið minnkandi og þess vegna
stækkum við hverfin sem bréfberar eiga fara yfir.
Við sjáum fram á að það verði áframhaldandi
minnkun í póstmagni. Samheiti yfir ástæðuna er
//Sumireiga oð
vlnna háífa
vinnu öfan á
það sem áður
var, en á sömu
launum/'
tækniþróunin: Tölvupóstur, reikningslaus við-
skipti og tölvubankarnir."
Hafdís Ingvarsdóttir, trúnaðarmaður starfs-
manna á pósthúsinu í Kópavogi, segir hins vegar
að það sé umhugsunarvert hvort endalaust sé
hægt að láta bréfbera bera út meira þegar það er
minni póstur. „Sumir eiga að vinna hálfa vinnu
ofan á það sem áður var, en á sömu launum,"
segir hún.
Áslaug Alexandersdóttir, bréf-
beri í Lindahverfi í 201 Kópavogi, er
ein þeirra sem munu taka á
sig byrði sem annar bréf-
beri sá áður um að koma til v
skila í 50 prósenta starfi. „Vinn-
an eykst um 50 prósent, en ég fæ
ekkert meira borgað. Okkur.finnst
pósturinn á hverja manneskju ekki
hafa minnkað. Það er meira um
þungan póst núna sem ekki var
mikið um áður. Stundum er maður
að fara með fimm eða sex dreifiblöð í öll hús,“
segir hún.
Áslaug gengur daglega í þrjá til fjóra tíma með
póst. Þegar mikið er í töskunni er hún allt upp í
sex tíma á göngu yfir daginn. „Það kemur fyrir að
maður fær í bakið, sérstaklega þegar Ikea-bæk-
lingurinn kemur á haustin og maður fer út með
allt upp í 200 kíló. Þá keyri ég upp í hverja götu."
Áslaug segist ætla að segja upp störfum ef svo fer
fram sem horfir með vinnuálagið. „Við ætlum að
sjá til hvernig þetta verður. Ég segi upp ef þetta
verður óviðunandi og hef sagt mínum yfirmanni
að ég sé mjög ósátt við þetta,“ segir hún.
„Tilgangurinn er ekki að pína fólk,“ segir
Tryggvi framkvæmdastjóri. Hann segir það koma
fyrir að villur verði í útreikningum á álagi starfs-
fólks og hvetur fólk til að kvarta ef því finnst álag-
ið óeðlilegt, svo bregðast megi við því.
jonjontrausti@dv.is
Netvæðing Yfirmenn hjá Islandspósti segja að netvæðing
valdi því meðal annars að stækka verði útburðarsvæði bréf-
bera. Magn áritaðs pósts var fjórum prósentum minna en
árið þar á undan og fimm prósentum minna árið 2002 en
2001.
Pósturinn Bréfberarhjá
Islandspósti i hverfi 201 í
Kópavogi þurfa að bera út allt að
200 kilóum. Nú eiga sumir þeirra
að bera út á stærra svæði og taka
yfir 50 prósent starfannars
bréfbera, án kauphækkunar.
Mikil samkeppni ríkir á markaðnum um sölu á Mercedes-Benz bifreiðum
Ræsir hættir með Benz
„Okkur þykir þetta miður en það
er ekki aukin samkeppni sem spilar
þarna inn í,“ segir Hallgrímur Gunn-
arsson, framkvæmdastjóri Ræsis hf. í
fféttatilkynningu frá fyrirtækinu
kemur fram að Ræsir mun
hætta að selja Mercedes-
Benz bifreiðar. Ástæðan er
sú að samningar um end-
urnýjun sölusamnings
milli Ræsis og Daimler
Chrysler AG náðust ekki.
Spilar aukinn kostnaður
vegna nýrrar reglugerðár frá
Evrópusambandandinu þar inn í.
Mikil samkeppni hefur verið í
sölu Mercedes-Benz bifreiða eftir að
bílasalan mercedes.is hóf starfsemi
hér á landi. Halldór Baldvinsson hjá
mercedes.is segir að vera þeirra á
markaðnum hafi dregið úr umfangi
Ræsis hf. „Samkeppnin á auðvitað
stóran þátt í því að þeir séu að draga
sig af markaðnum," segir Halldór.
„Við erum nú að fá fúllt af nýjum
Benz bifreiðum en við mun-
um ekki hækka verðið þrátt
fyrir að Ræsir sé hættur
með umboðið."
Aðspurður neitar
Halldór því ekki að þreif-
ingar séu á milli Daimler
Chrysler AG og
mercedes.is. „Ég get hins veg-
ar ekkert sagt til um stöðu mála að
svo stöddu," segir Halldór. Ljóst er
að það myndi skapa nýja stöðu á ís-
lenska bílamarkaðnum ef
mercedes.is gengi til samninga við
umboð eins og Daimler Chrysler AG.
Halldór Baldvinsson, mercedes.is Mun-
um ekki hækka verðið þrátt fyrir að Ræsir sé
hættur með umboðið.í
Það er því margt að gerast á ís-
lenska bflamarkaðnum. Mörgum
þykja það stór tíðindi að gamalt og
traust fyrirtæki eins og Ræsir sé að
hætta með sitt aðalsmerki;
Mercedes-Benz bifreiðar. Hallgrím-
ur Gunnarsson segist hins vegar vera
bjartsýnn. „Það er mjög góður gang-
ur hjá okkur í sölu á Mazda og við
hugsum okkur gott til glóðarinnar í
þeim efnum.“
Til marks um þá samkeppni sem
ríkt hefur á markaðnum hafa miklar
deilur staðið á milli Ræsis hf. og
mercedes.is vegna léns hins síðar-
nefnda fyrirtækis. Málið er fyrir
dómstólum en Hallgrímur Gunnars-
son segist vona að niðurstaða náist
sem fyrst.
simon@dv.is