Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq

Dagblaðið Vísir - DV - 14.02.2004, Qupperneq 14

Dagblaðið Vísir - DV - 14.02.2004, Qupperneq 14
14 UUGAfíDACUR14:F£mmQP4 Á bak við körfuboltamanninn Jón Arnór Stefánsson í Dallas Mavericks í bandarísku NBA-deildinni er venjulegur strákur. Hann hefur gaman af að fara út með vinum sínum, lesa skemmtilegar bækur og hlusta á tónlist. Byrjaði að lesa í Þýskalandi LasArn- ald Indriðason upp til agna eftir að hann komst á bragðið. „Með mér utan liðsins er Frakkinn Tariq Abdual-Wahad, sem hefur ekki heldur spilað í ár." „Já, það reynir svakalega á að vera svona utan liðs en ég ætla ekki að gefast upp. Maður þarf bara að vera þolinmóður og æfa þrotlaust. Þeir gera þetta gjarnan við Evrópumenn til að undirbúa þá, vegna þess að körfuboltinn er allt öðruvísi en í Bandaríkjunum og ég er bara að undirbúa mig fyrir næsta ár," segir Jón Arnór Stefánsson, at- vinnumaður með Dalls Mavericks Bandaríkjun- um, sem er staddur í vikufríi heima á íslandi. Jón Arnór er aðeins 21 árs og fór utan í fyrrasumar. Hann segist vera í 15 manna hópi en þeir sem spila eru tólf í hvert sinn. „Með mér utan liðsins er Frakkinn Tariq Abdual -Wahad, sem hefur ekki heldur spilað í ár,“ segir Jón Arnór, sem átti von á að þetta yrði svona til að byrja með og lét það þvf ekki koma sér á óvart; það þýði ekki annað en vera sterkur. „Það þarf ekki annað en einhver meiðist og þá verður maður að vera tilbú- inn. Það er aldrei að vita nema maður detti inn ef eitthvað kemur fyrir. Það eru tveir fyrir framan mig í leikstjórnarstöðu, Steve Nash og Travis Best, og hann er kominn á þann aldur að hann gæti misst sína stöðu á næsta ári,“ segir Jón Arnór og viðurkennir að hann þurfi oft að peppa sig upp svo hann falli ekki niður í einhvern leiða. Uppgötvaði töfra bókarinnar Jón Arnór kann vel við sig í Dallas. Hann býr vel en íbúðina fékk hann með öllum húsgögnum og hefur komið sér vel fyrir þar. „Dagurinn er Hjótur að lfða. Æfingar eru snemma dags og ég vakna yfirleitt um átta-hálf níu og fer og fæ mér góðan morgunverð niður frá í höfuðstöðvum liðs- ins. Æfi í tvo til tvo og hálfan tíma, og fer síðan í heita pottinn. Stundum kíki ég í nudd og tek minn tíma þar. Síðan liggur ekki annað fyrir en fara heim og hafa það notalegt," segir Jón Arnór sem nýlega uppgötvaði hve gaman er að hverfa inn í góða bók og gleyma sér. „Já, ég er nýfarinn að lesa, ég las aldrei neitt nema námsbækumar. Þegar ég fór að heiman tók ég með mér bækur. Byrjaði á einni efir Arnald Indriðason og var svo spenntur að ég hætti ekki fyrr en ég var búinn með þær allar. Ég fékk svo í jólagjöf Betty eftir Arnald og Storm eftir Einar Kárason og nú ætla ég út með allar hinar bækurnar hans Einars,“ segir Jón Arnór hlæjandi og bætir við að hann hafi ótrú- lega gaman af að lesa. „Ég hefði ekki trúað hvað þetta er gaman. Á meðan ég var að lesa Storm flýtti ég mér heim á daginn til að geta haldið áfram," segir hann. Jón Arnór segist vita að hann eigi eftir mikið ólesið og er ánægður með það. „Ég á allan Lax- ness eftir, nema eina sem ég las í skóla. Mér er sagt að ég geti glaðst yfir því og hlakka til að kynn- ast bókunum hans. Mér er sagt að það taki dálít- inn tíma að komast inn í þær en þegar maður nái því séu þær tóm ánægja," segir hann kíminn. Laus og liðugur Hann segir Dallas vera ágæta borg. Reyndar sé fátækt og hálfgert slömm alveg niðri í bæ en næst honum sé umhverfið gott; margir matsölustaðir, bíó og skemmtistaðir. „Ég fer stundum út að skemmta mér með strákunum í liðinu og hef gaman af því, en í eðli mínu er ég heimakær,“seg- ir hann og neitar því alfarið að einhver stúlka sé í spilinu. „Nei, hvorki hér heima né úti,“ segir hann hlæjandi og játar að hann hefði ekkert á móti því að hafa réttan félagsskap. „Ég er nú ekki gamall svo það er nægur tími fram undan. Um að gera að njóta þess að vera laus og liðlegur og ég er ekkert farinn að örvænta," segir hann kfminn. Hann segist ekki vera sérlega duglegur að elda en geri það þó stundum. „Það er aðallega pasta sem ég kann að elda og geri það ef ég nenni ekki út. Annars eru margir góðir matsölustaðir í kring- um mig og ég fer oft út að borða. Mest er ég fyrir kínverskan og ítalskan mat. En það eru engar ýkj- ur að mér dettur oft maturinn hennar mömmu í hug,“ segir Jón og er ekki ólíkur öllum öðrum sem fara að heiman og sjá mömmumatinn í hillingum Ánægður í USA Jón Arnór var tvö ár í skóla f Bandaríkjunum. Hann var þá í Los Angeles og kunni vel við sig þar. Veðrið í Dallas er mjöggott á veturna og kann Jón því vel. Hann segir heimamenn kvarta ef hitinn fer niður í 10 stig, þannig að á veturna er þægilegt veðurfar. Sumarið er hins vegar mun heitara. „Eg kann vel við Bandaríkjamenn og þá menningu sem þar þrífst. Auðvitað eru það viðbrigði að flytja að heiman og ég sakna fjölskyldunnar og systkin- anna oft og tíðum. Það er alltof sjaldan sem ég get hitt Óla bróður; hann er úti þegar ég er heima og öfugt. Ég nota tölvuna og símann þess meira og er þannig í sambandi. Fylgist líka með fjölmiðlum heima og les oftast blöðin þannig," segir hann og játar að hann hafi verið svo mikill rati í þessum efnum að hann haf! ekki áttað sig á því fyrr en núna heima í fríinu að hægt væri að horfa á frétt- ir í sjónvarpi í tölvunni. „Já, það er alveg á hreinu að ég ætla að flnna út hvað ég þarf til þess áður en ég fer aftur út, og fylgjast þannig með fréttum." Jón Arnór er sonur Stefáns Eggertssonar lækn- is, sem lék knattspyrnu með Fram í eina tíð. „Hann lék ekki lengi með liðinu en á meðan hann spilaði var hann á kantinum. Hann var í læknis- fræði og það var ekki annað fyrir hann að gera en að sleppa boltanum, enda í erfiðu námi.“ Hann hlær þegar hann er spurður hvort pabbi hans hafi aldrei hugleitt að leggja það fyrir sig að eiga fleiri börn því það sé alveg ljóst að börn hans verði af- reksmenn í íþróttum. „Það þarf tvo til að eiga börn og ætli mamma eigi ekki einhvern þátt í þessu líka,“ segir Jón Arnór en móðir hans er Ingi- gerður Jónsdóttir. Nývaknaður um miðjan dag Jón fór út til Þýskalands áður en hann lauk stúdentsprófi og segist vita að hann eigi eftir að ljúka prófi. „Ég ætla að gera það í fjarnámi en hef ekki komið mér að því enn. Býst við að ég komi mér að því á næsta ári. Það þýðir ekki annað en klára,“ segi Jón Arnór og veit að það er allt hægt með aðstoð tölvunnar. Leyfið sem Jón Arnór er í núna kemur til vegna hlés sem er alltaf á þessum tíma í NBA-deildinni bandarísku. Hann segir að allir leikmenn fari eitt- hvað í frí og þeir sem ekki búi í Dallas fari heim til sín. „Þetta er kallað „allstar brake“ vegna þessa leiks sem er nú um helgina. Það eru aðeins þeir sem em með í þessurn leik sem ekki fara í burtu. Ég var fljót- ur að nýta tækifæriö, og k,Qtna mérheim og hef haft það ofsalega gott. Það eina sem hefur hrjáð mig er að illa hefur gengið að snúa sólarhringnum aftur við og það tekur því reyndar ekki úr þessu," segir hann, brosandi og nývaknaður um miðjan dag. „Ég lagði mig aðeins, enda boðinn í mat og gleðskap áður en ég fer út aftur," segir hann og glottir. bergljot@dv.is &W pv 1) Tvisvar sinnum kosinn Scania Cup- kóngur, árin 1996 og 1998, það erbesti leikmaður óopinbers Norðurlandamóts yngri flokka í körfu- bolta. Lið hans, KR, vann ísínum flokki bæði árin. 2) íslandsmeistari með KR 2000 án þess að hafa leikið deild- arleik með liðinu. Kom heim um vorið eftir skólavist í Bandaríkjunum og spilaði bara í úrslita- keppninni. 3) Kosinn besti ný- liði úrvalsdeildar karla veturinn 2000 til 2001 og enn frem- ur valinn besti leik- maður úrvalsdeildar- innar veturinn 2001 til 2002. 4) Lék með þýska úrvalsdeildarliðinu TBB Trier veturinn 2002-03 og var val- inn besti leikmaður deildarinnar í nóv- embermánuði. 5) Samdi við NBA- liðið Dallas Maver- icks í september og varð annar íslend- ingurinn og fjórði Norðurlandbúinn til að komast á saming í bestu og erfiðustu körfuboltadeild í heimi. Fjölskylda Jóns Arnórs: PabbiJóns erStefán Eggertsson, iæknir og fyrrum knattspyrnu- maður i Fram. Það vekur athygli að systkinin fjögur eru öll afreks- fóik i iþróttum og landsliðsfólk í sinum greinum, og öll fjögur eru uppalin sitt i hverju félaginu. Stef- anía er uppalin i Þrótti, Eggert i Fram, Ólafur i Val og Jón Arnór i KR. Ólafur Stefáns- son handbolta- maður er bróðir Jóns. Flann leikurmeð Ciu- dadReaiá Spáni. Einn allra besti hand- boitamaður is- lands fyrr og síðar og afmörgum talinn vera einn afbetri hand- boltamönnum heims. Á að baki sigursælan feril á íslandi, í Þýsklandi og nú síðast á Spáni. íþróttamaður ársins siðustu tvö árin. Eggert Stefáns- son, knatt- spyrnumaður í Fram, er lika bróðirJóns. Hann hefurleik- ið lykilhlutverk i vörn Framara undanfarin ár. Hefur verið tal- inn einn efnilegasti varnarmaður landsins og lengi verið á leiðinni í atvinnumennsku, en óheppni með meiðsl hefur m.a. valdið því að hann er ekki farinn að spila er- lendis. Stefanía Stefánsdóttir, systir Jóns, er tenniskona sem hefur orðið margfaldur Islandsmeistari i sinni grein. Stefania hefur oft keppt fyrir Islands hönd á erlendri grund.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.