Dagblaðið Vísir - DV - 14.02.2004, Page 15

Dagblaðið Vísir - DV - 14.02.2004, Page 15
Kerry sakaður um svall Forsetaframbjóðandinn John Kerry hefur nú verið tengdur við kynlífshneyksli en slíkt virðist ætíð koma upp á yfirborðið hjá þeim pólitíkusum sem líklegir eru til að ná frama í Banda- ríkjunum. Kerry er sagður hafa fengið sér á broddinn með ungri fréttakonu AP fréttastofunnar en ffá þessu var skýrt á vefsíðunni Drudge Report. Þaðan komu líka upphaflega ásak- anirnar á hendur Bill Clint- on um að hann hefði átt í ástarsambandi við Monicu Lewinsky. Ógnaröld á Haiti Tæplega 40 manns hafa látist á Haiti síðustu vikuna eftir að stjórnvöld í landinu réðust gegn mótmælend- um sem kröfðust þess að forseti landsins segði af sér. Lét herinn og önnur sam- tök hlynnt forsetanum til skarar skríða eftir miklar mótmælagöngur svo dög- um skipti. Óttast er að átökin eigi eftir að harðna enn frekar með tilheyrandi dauðsföllum. Fyrstu verðlaun Tilkynnt hefur verið hvaða ljósmyndir eru taldar hafa borið af á síðasta ári af samtökum fjölmiðlaljós- myndara, World Press Photo. Er þetta í 47. sinn sem keppnin er haldin en myndirnar sem valdar eru, eru sýndar víða um heim. Þykir afar mikill heiður að sigra enda er hún dæmd af kollegum í ljósmyndastétt- inni. Fyrstu verðlaun fyrir náttúrumynd hlaut þessi frá Kaliforníu en þar barð- ist slökkvilið til skógarelda seint á síðasta ári. Niður með Frakka Sú ákvörðun franskra stjórnvalda að banna notk- un veíjarhatta í ffönskum skólum hefur vakið mikil viðbrögð meðal margra þjóða. I Indlandi dreif fólk út á götur þar sem hróp voru gerð að Frökkum og þessari ákvörðun þeirra. Vefjarhatturinn, eða túrbaninn, eins og margir þekkja hann er þekkt trúar- legt tákn íyrir stöku hópa í Indlandi og víðar. Pétur Pétursson fyrrverandi þulur fær aðstoð heimahjúkrunar í hverri viku. Hann segist síst af öllu vilja vera án þeirra sómamanneskja sem heimsækja hann. Og ekki nóg með það þá hefur hann myndað góð tengsl við stúlkurnar og myndi sakna þeirra mikið ef þær kæmu ekki eftir 1. mars. Stúlkurnar í heimahjúkr- un og heimilishjálpinni Gera Pétri Péturssyni þulkleift að búa einn eftirað kona hansléstá síðasta ári. Þær koma og gefa honum sprautu og aðstoðo hann við aðfara i bað. Þær heita frá vinstri, Guðbjörg Halldórsdóttir og Jóna Olsen. Pétur Pétursson, fyrrverandi þulur, nýtur að- stoðar heimahjúkrunar. Hann er alfarið háður því að þær komi í heimsókn nokkru sinnum í viku og líst illa á ef þeirra nýtur ekki við eftir 1. mars næst komandi en þá verða hjúkrunarffæðingar skikkaðir til að aka á bflum Heimahjúkrunar og mega ekki nota sinn eigin bfl nema taka á sig kjaraskerðingu. Það eru þær ekki sáttar við. Pétur er 85 ára og missti eiginkonu sína á síð- asta ári. „Hún lést þann 7. maí og ég vakna oft á næturnar og finnst hún vera við hlið mér. Auðvit- að fæ ég engin svör þegar ég ávarpa hana og spyr hvers vegna hún svari ekki,“ segir hann og bætir við að það sé engin furða, hann hafi haft konuna sér við hlið í yfir 60 ár. Þær koma og sprauta í mig fjörefnum Pétur fær stúlkur frá heimilishjálpinni á hverjum morgni alla virka daga sem laga kaffi og taka til fyrir hann hádegisverð. „Svo koma þær öðru hvoru og sprauta í mig fjörefnum sem ég má illa vera án. Þetta eru mestu sómamann- eskjur sem ég hef myndað við góð tengsl og það þarf ekki að spyrja hve mikið ég myndi sakna þeirra," segir Pétur og bendir á hve miklar breytingar hafi orðið á tengslum Ijölskyldna á umliðnum árum. „Ég þakka svo sannarlega fyr- ir þessar yndislegu konur sem koma til mín. En mér er til efs að börn á leikskólum þekki lengur ömmur og afa, langömmur eða langafa eins og var hér á árum áður. Þegar ég hóf búskap með minni konu minni fyrir rúmum sextíu árum þá stóð á dyraþröskuldinum kona sem hafði verið hjá afa hennar og ömmu. Hún taldi sig vera eign því hún var frá dögum vistarbanda þar sem hjú urðu að vera vistráðin frá vinnuhjúa- skildögum. Henni þótti sjálfsagt að fylgja okkur og velti því ekki meira fyrir sér. Þessi kona var hjá okkur í fjörutíu ár þangað til hún dó,“ segir Pétur. Hann fór nýlega í aðgerð á mjöðm og gengur illa án sérstakrar grindar. „Ég hafði það samt af að ganga niður í Ráðhús og heim aftur," segir hann og er á því að hann hafi það ágætt enda vel um hann hugsað af starfsfólki heimahjúkrunar og á Vesturgötu 7. Ósvífni Tryggingastofnunar Pétur sér ýmislegt athugavert við þjónustu Tryggingarstofnunar ríkisins. „Hún er ekki samboðin stofnuninni. í ágúst árið sem kona mín lést fékk ég bréf frá þeim og þar stóð að ég geti búist við að lífeyririnn yrði skertur þar sem ég hafi ekki leyft maka mínum að sjá skatt- framtalið. Mér þótti heldur mikil ósvífni að fá svona bréf og þeir ættu að vita hvað þeir eru að gera!“ segir hann og bætir því við að Trygg- ingastofnun fái alla reikninga frá öllum lækn- unum hans en samt borgar hún ekki krónu nema hann, orðinn 85 ára gamall, safni þessu saman og færi þeim í eigin persónu. Hann er ekki í vafa um að Tryggingastofnun steli frá elliglópum milljóna tugi á ári hverju. „Auðvit- að geta þeir sent okkur afláttarkortið um leið og þeir hafa fengið kvittanirnar frá læknunum. Mér þætti gaman að fá svör við þessu frá þess- um „sómamönnum," segir Pétur Pétursson sem þrátt fyrir allt er alltaf jafn hress og ekki orða vant fremur en fyrr. bergljot@dv.is Formaður segir alla vilja að umsækjendur fái umsagnir Kvikmyndamiðstöðvar Afneitar samstöðu með Einari Þór „Það verður að teljast nokkuð of- sagt að stjórn Félags Kvikmynda- gerðarmanna hafi tekið sér stöðu við hlið Einar Þórs,“ segir Björn Brynj- úlfur Björnsson, fomaður Félags Kvikmyndagerðarmanna. í frétt DV á miðvikudag var sagt frá bréfi sem Félag Kvikmyndagerð- armanna (FK) sendi á mánudag til Einars Þórs Gunnlaugssonar kvik- myndagerðarmanns hjá Passport Kvikmyndum: „Fyrra atriðið sem þú fjallar um er að KMI telji að umsækjendur hafi ekki sjálfvirkan rétt til að fá umsagn- ir um verk sín. Við erum þér sam- mála um að slfkt sé ótækt," sagði í bréfi FK til Einars Þórs. í DV var ofangreind setning tekin til marks um að FK hefði tekið sér stöðu með Einari Þór í deilum við Laufeyju Guðjónsdóttur, forstöðu- mánn Kvikmyndamiðstöðar íslands (KMÍ). Björn Brynjúlfur segir það hins vegar af og frá. Lög og reglugerðir sýni að Kvikmyndamiðstöðinni sé ekki skylt að sýna umsagnir. Það sé einfald- lega óumdeild staðreynd en ekki skoð- un forstöðumannsins. Skoðun Lauf- eyjar sé einmitt sú að styrkumsækj- endur eigi að hafa aðgang að umsögn- un um eigin verkefni „þótt Einari henti að láta annað í veðri vaka.“ „Það er með öðrum orðum sam- eiginlegt viðhorf forstöðumanns KMÍ, Félags kvikmyndagerðar- manna og Einars Þórs að afgreiða eigi umsóknir með umsögnum," segir Björn Brynjúlfur. gar@dv.is Björn Brynjúlfur Björnsson og Einar Þór Gunnlaugsson Sameiginlegt viðhorfallra að afgreiða eigi umsóknir með umsögnum þótt iögin segi það ekki vera skyldu Kvikmyndamið- stöðvarinnar, segir formaður Félags Kvikmyndagerðarmanna.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.