Dagblaðið Vísir - DV - 14.02.2004, Side 18

Dagblaðið Vísir - DV - 14.02.2004, Side 18
78 LAUGARDAGUR 14. FEBRÚAR 2004 Fókus XXV Líki hefur áður verið varpað í aust- firskan fjörð, vafið í járn til að freista þess að fela grimmilegt morð. „Vél- stjórinn frá Aberdeen“ var myrtur á Seyðisfirði og víðtækt samsæri gert til að reyna að leyna morðinu. En allt komst upp um síðir. Vornótt eina árið 1894 lá skoskur togari fyrir stjóra úti á Seyðisfirði. Hann hafði verið að veiðum úti fyr- ir Austfjörðum en var brátt á heim- leið. Skipverjar settust að sumbli; það heyrðust gleðilæti á bæina í landi. Menn hristu höfuðið og glottu kannski í barm sér; óskapar fyllirí var þetta á þessum togara- mönnum. Svo var togarinn farinn, sigldur heim til Skotlands. Og ekk- ert í frásögur færandi - gleðskapur um borð í útlendum togara tolldi mönnum ekki lengi í minni, svo al- gengt sem slíkt var. Meira að segja á þessum tímum þegar bindindis- hreyfing var vaxandi á íslandi og reyndar í Skotlandi líka. Nema hvað, nokkrum vikum síðar kom fyrirspurn frá Skotlandi til Magnúsar Stephensens lands- höfðingja í Reykjavík. Hún var frá Aberdeen í Skotlandi og snerti togarann M.A.Dodds, þann sem legið hafði á Seyðisfirði nóttina í maí. Þegar togarinn kom í heima- höfn eftir siglinguna yfir hafið frá íslandi tilkynntu skipverjar að einn mann vantaði um borð. Það var vél- stjórinn og skipverjar sögðu að hann hefði fallið útbyrðis í vondu veðri á hafinu milli Færeyja og Hjaltlands. Sorglegt fyrir aðstand- endur hans en varla fréttnæmt í sjálfu sér; annað eins kom fyrir á þessum árum þegar togararnir voru litlir og létu illa í sjó - þeir áttu jafn- vel til að hverfa sporlaust í hafið með manni og mús, og skýringar engar nema sjórinn sjálfur. Maðkur í mysunni En í þetta sinn vaknaði grunur um að maðkur væri í mysunni. Einn hásetanna hafði nefnilega aðra sögu að segja. Hann hélt því fram að ýmislegt gruggugt væri við hvarf vélstjórans og hann hefði alls ekki verið hrifinn burt af brotsjó þegar komið var fram hjá Færeyj- um, heldur hefði hann horfið með- an dallurinn lá enn á Seyðisfirði. Og nú báðu yfirvöld í Aberdeen Magn- ús landshöfðingja að rannsaka hvort austur á Seyðisfirði væri ein- hverjar fréttir að fá um vélstjóra þennan og örlög hans. Magnús sendi erindið á Seyðis- fjörð sem var í þá daga einn stærst- ur bær á íslandi og veitti Reykjavík allharða keppni um menningu og margbreytilegt mannlíf. Þar, eins og í fleiri austfirskum fjörðum, höfðu útlenskir kaupmenn og út- gerðarmenn hreiðrað um sig og þorp voru að spretta upp kringum flestalla útgerðarstaði þeirra og verslanir, en Seyðisfjörður bar höf- uð og herðar yflr þá alla. Þar hafði sýslumaðurinn í Norður-Múlasýslu aðsetur og einmitt í sumarbyrjun þetta ár var nýr sýslumaður að taka til starfa á Seyðisfirði. Það var Axel Tulinius, rétt tæplega þrítugur og hafði lokið lögfræðinámi með nokkrum erfiðismunum frá Kaup- mannahafnarháskóla tveimur árum fyrr. Axel Tulinius hefur rannsókn málsins Axel var sonur kaupmannsins og ræðismannsins á Eskifirði, sem aft- ur var upprunninn í Slésvík, her- togadæmi því sem Danmörk og Þýskalands bitust gjarnan um á fyrri tímum. Axel hafði verið um skeið lögregluþjónn í Kaupmannahöfn eftir að hann lauk námi en var síðan fulltrúi hjá bæjarfógetanum í Reykjavík þar til hann var settur sýslumaður á Seyðisfirði 1. júlí 1894. Nýi sýslumaðurinn fékk til íbúðar eitt herbergi uppi á lofti f öðrum enda lyfjabúðar Hans Jörgens Ernst lyfsala. Hann var danskur og hafði útdeilt lyfjum til Seyðfirðinga síðan 1888. „Hafði ég þar skrifstofu mína," sagði Axel síðar, „en í einu horni herbergisins stóð rúm mitt, og var dregið hengi fyrir. Á herberginu voru tveir gluggar á gafli." Það var eitt fyrsta verk Axels í embætti að grafast fyrir um örlög vélstjórans frá Aberdeen. Hann sagði svo frá fyrstu eftirgrennslun- um sínum í frásögn sem Þórbergur Þórðarson rithöfundur skrifaði eftir honum 1928: „Skömmu eftir að ég kom til Seyð- isfjarðar, fór eg bæði út með norður- og suður-byggð fjarðarins til þess að spyrjast fyrir um þennan togara frá Aberdeen. En eg gat enga ffæðslu um hann fengið aðra en þá, að skipverjar höfðu gert sér glaðan dag, meðan þeir stóðu við á Seyðisfirði, og að einn íslendingur, kallaður Páll jökull, hefði verið með þeim." Þessar fátæklegu upplýsingar sendi Axel Tulinius síðan til Magn- úsar Stephensen í Reykjavík. Og var lítt við þær gjörandi. Fiskimenn fá lík á færi Svo var það 2. október um haustið að fiskimenn utarlega í Seyðisfirði fá Breskur togari rétt fyrir aldamótin 1900 „Menn hér á Suðurbyggðinni heyrðu óhljóð og ólæti á þessum Trawler," sagði Seyðisfjarðarblaðið Austi um MA.Dodds frá Aberdeen Eirtn hásetanna hafði aðra sögu að segja. Hann héltþví fram að ýmisiegt gruggugt væri við hvarfvéi- stjórans og hann hefði ails ekki verið hrifínn burt afbrotsjó þegar komið var framhjá Færeyjum heldur hefði hann horfíð meðan dallur- inn lá enn á Seyðis- fírði. lík á línu sína, þar undan sem heit- ir Brimnes og er norðanmegin í firðinum. Axel Tulinius segir að vísu í sinni frásögn að líkið hafi fundist seint í september en Seyð- isfjarðarblaðið Austri nefnir 2. október. Nánar segir Axel frá lík- fundinum á þessa leið: „Þá er það eitt sinn snemma nætur, að eg sit að vinnu minni í

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.