Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq

Dagblaðið Vísir - DV - 14.02.2004, Qupperneq 20

Dagblaðið Vísir - DV - 14.02.2004, Qupperneq 20
20 LAUGARDAGUR 14. FEBRÚAR 2004 Fókus DV Það hefur lengi gustað um Courtney Love, ekkju Kurt Cobain. Ef hún er ekki að gefa út plötur eða leika í kvikmynd- um finnur hún sér einhverja aðra leið til þess að ná athygli heimspressunnar, hvort sem það er að veltast ofurölvi um gólfin í beinni útsendingu sjónvarpsstöðva eða að vera með óspektir og dónaskap við líkleg og ólíkleg tækifæri. Trausti Júlíusson rifjar upp sögu einnar af skrautlegustu rokkstjörnum síðustu ára í til- efni af útkomu hennar fyrstu sólóplötu, American Sweethe- Courtney Love Enná meðal okkar þrátt fyrír sérstaklega vafasamt ár I fyrra, en háskalegt llferni hennar varð m.a. til þess að bandariska blaðið New York Times ákvað að skrifa minnigar- grein um hana til þess að hafa tiltæka ef allt færi á versta veg... art. Síðasta ár var alveg sæmilega klikkað í lffi Courtney Love. Hún var tekin föst á Heathrow-flugvelli eftir að hafa ráðist með ókvæðis- orðum að flugfreyju hjá Virgin Atl- antic flugfélaginu. Hún var lika ákærð fyrir óspektir og tilraunir til innbrots í hús sem kærastinn hennar og umboðsmaður, Jim Bar- ber, hafði á leigu. Hún var hætt komin vegna of stórs skammts af læknadópi og var ákærð fyrir að hafa pillur í fórum sínum sem hún gat ekki gert grein fyrir. Hún missti líka (a.m.k. tfmabundið) forræðið yfir dóttur sinni, Frances Bean Cobain ... En hún gerði líka plötu- samning við Virgin-útgáfuna og tók upp sína fyrstu sólóplötu, sem er nýkomin í verslanir. Það er hennar fyrsta plata síðan þriðja og síðasta plata hljómsveitarinnar Hole, Celebrity Skín, kom út árið 1998. Vandræðaunglingur og fata- fella Courtney Love, sem heitir réttu nafni Love Michelle Harrison, fæddist í San Francisco 9. júlí 1964. Hún er dóttir Hanks Harrison, sem var í Greatful Dead klíkunni, og skrifaði m.a. sögu sveitarinnar og Iindu Carroll, sem var auðugur hippi og sálfræðingur. Eftir að for- eldrar hennar skildu, þegar hún var ársgömul, breytti móðirin nafninu hennar úr Love Michelle í Courtn- ey Michelle. Courtney átti erfiða æsku og flæktist með móður sinni á milli Oregon-fylkis í Bandaríkjunum og Nýja-Sjálands. Hún var uppreisn- argjöm sem bam og var sett í heimavist fyriryandræðaböm eftir að hún stal Kiss”-bol í einni af versl- unum Woolworths-keðjunnar. Þegar hún heyrði Never Mind The Bollocks með pönkhljómsveitinni Sex Pistols undir lok áttunda ára- tugarins ákvað hún að verða tón- listarmaður. Til þess að verða sér úti um peninga til að stofiia hljóm- sveit vann hún fyrir sér sem fata- fella. Hún var í stuttan tíma með- limur í hljómsveitinni Faith No More, en hætti eftir fema tónleika. Hún stofnaöi kvennarokksveitina Sugar Babylon með Jennifer Finch, sem síðar var í L7. Sú sveit varð ekki langlíf. Næst flutti hún til Minneapolis og stofnaði ^ annað kvennaband, Babes In Toyland, ásamt Kat Bjel- land. Það samstarf gekk ekki og eftir að Kat rak Courtney--^ hélt hún áffam að vinna fyrir sér sem fatafella, m.a. í Alaska, en tókst loks að vekja á sér at- hygli árið 1986 þegar hún fékk hlutverk bestu vinkonu Nancy Spungen í pönk- ? tragedíunni Sid & Nancy. Herra og frú pönk- rokk Arið 1989 flutti Courtney til LA Hún setti auglýsingu í blaðið Recycler þar sem hún óskaði eftir fólki í hljómsveit og sagði sína helstu áhrifavalda vera Big Black, Sonic Youth og Fleet- wood Mac. Hún réð Eric Erland- son gítarleikara, Jill Emery bassaleikara og Caroline Rue trommuleikara og hljómsveitin Hole varð til. Sjálf söng Courtney og spilaði á gítar. Fyrsta Hole platan, Pretty On The Inside, var tekin upp undir stjóm Kim Gordon bassaleikara Sonic Youth. Hún kom út 1991 hjá City Slang útgáf- unni og " »09H MlM __________’m / $ fékk ágæta dóma. Hole spilaði töluvert með Nirvana og árið 1992 giftust Courtney og Kurt Cobain, sem hafði nokkrum vikum fyrr lýst því yfir í breska sjónvarpsþættinum The Word að Courtney væri „besti dráttur í heimi". Courtney og Kurt Wamská.í. | voru um 'lrokk", 1 en áöur cn langt ** var um " ‘ I liðíð fór að bera á mikilli eit- urlyfjaneyslu og óreiðu f sam- bandinu. Courtney viðurkcnndi m.a. að hafa neytl herófns ámeðan á meðgöngu dóttur þeirra Frances Bean stóð. Kurt, sem var orðinn mjög illa farinn af heróínffkn, framdi sjáifsmorð 8. aprfl 1994. Fjórurn dögum seinna kom önnur Hole-platan, Iive llirough This, út Hún seidist mjög vel og fékk frá- bæra dóma - var m.a. valin ein af bestu plötum ársins af mörgum helstu tónlistarblööunum, þ. á m. NME og Rolling Stone. Tveimur mánuðum eftir dauða Kurts dó Kristen Pfaff, þáverandi bassaieik- ari Hoie, af of stórum skammti af heróíni. í staðinn réð Courtney Melissu Auf Der Maur og á næstu mánuðum og árum spiiaði Hole stffi á tónieikaferðalögum úti um allan heim. Síðasta Hole-platan, Celebrity Skin, kom svo út 1998 og þrátt fyrir ágætar viðtökur gagn- rýnenda og plötukaupenda var Courtney ósátt við það hvemig Geffen-plötufyrirtækið sirniti sveit- inni I-Iún fór f mál og rifti samn- ingnum og hefur sfðan að tölu- verðu ieyd heigað sig baráttu gegn ósanngjömum plötuútgefendum og þeim nauðasamningum sem at- hyglisþyrstir popparar láta stund- um hafa sig út f. Vart hugað líf... Síðan Ceiebrity Skin kom út hefur f>)urtney lítið fcngist við tóniist. Það hafa verið alls konar áform uppi, en ekkert orðið ttr neinu fyrr en nú. Ilún hefur samt alltaf verið áberandi. Hún fékk mjög góða dóma fyrir leik sinn í kvikmyndínnni The People Vs. Larry Flint og hefur leikið í nokkrurn myndum síðan, m.a. FeeJing Minnesota og Man On 'ibe Moon. Mesta athygii hefur hún t samt fengið fyrir alls konar uppá- tæki. Hún rasaði t.d. algerlega út í myndatöku fyrir afroælisblað tfina- i ritsins Q. Hún fækkaði stöðugt föt- nm eftir þvf sem á myndatökuna leið, skipaðt aðstoðarfólki siriu að r „ijarlægja öll rasshárin með vax- t meðferð" og fór svo á nærbuxum t einum klæöa út í Lundtínanótuna : og lagðist fyrir bflana... Svo fór hún i með allan skarann sem fyigdi myndatökunni upp á hóteíiier- bergi og pantaöi te og súkkulaði- tertu á lfituna. Tilfellin þar sem i hún hefur oltið um í annarlegu t ástandi eru orðin svo mörg að það 5 telst ekki lengur fiéttnæmt í raun i er Courtney auðvitað langt leiddur , fíkiU í mikilii neyslu, en hún er líka vilUngur og rokkari af guðs náð. Ef r það er óhætt að taka þannig til orða... Nýiega var viðtal við Courtney í f breska vikublaðinu NME í tilefni af t útkomu nýju plötunnar. Hún gerir þar mikiÖ úr því að bandaríska r stúrblaðið New York Times hafl lát- 1 ið skrifa minningargrein um hana á sfðasta ári því ritstjóm blaðsins hafl f reiknað með að hún JJfði ekki út / árið. Hún fór í meðferð f nóvember, t eftir að hún hafði misst forræðið 2 yfir Frances Bean tímabundið t vegna óregíu, en þegar NME , hringdi í hana til að spjalla var attg- l Ijdst að afeitnmin hafði ekki skilað tUætluðum árangri þar sem hún r kvartaði helst yfir því aö það væri j hvergi hægt að fá gott kókaín leng- ur... Rökrétt framhald af tónlist Hole American Sweetheart er tekin upp f Suöur-Frakklandi, nálægt hcimili Eltons John, sem er mikiU vinur Courtney. Á meðal þeírra sem spila á plötunni eru Wayne Kramer (MC5), Scott McCloud (Girls Aga- inst Boys), Samantha Maloney (Hole/Mötíey Crue) og Kim Deal (Pixies/Brceders). Auk þess kctnur Linda Perry nokkuð við sögu, en hún semur nokkur lagamia meö Courmey. Eitt þeirra semur Qjurm- ey svo með helsta sænstarfsmanni Eltons John, Bemie Taupin. Tón- listin er i ætt við tónlist Hole, á köfl- um enn hrá og kraftrnikiL en svo em líka lög sem em aðeíns rólegii og melódískari.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.