Dagblaðið Vísir - DV - 14.02.2004, Síða 33
DV Sport
LAUGARDAGUR 14. FEBRÚAR 2004 33
Man. Utd-Man. City
Stórleikur helgarinnar. Vertíð hjá
vertum Manchesterborgar enda
verður vandfundinn sá
einstaklingur sem verður ekki á
sneplunum þegar leikurinn fer
fram. Blóðug slagsmál innan
vallar og eflaust verða þau ekki
minni eftir leik þegar
stuðningsmennirnir fara að kasta
Betra að vinna
bjór en peninga
Þeir eru eflaust fáir sem tengja
Sverri Stormsker við fótbolta og
eflaust enn færri sem vita að hann
var eitt sinn efnilegur leikmaður. Svo
LIÐIÐ MITT
bjórglösunum hver í annan.
Þetta er leikur til að sjá á
pöbbnum.
Lau. Sýn kl. 12.30
Fulham-West Ham
Það verður væntanlega minna
áfengi í blóðinu hjá stuðnings-
mönnum þessara liða þótt um
nágrannaslag sé að ræða. Fyrsta,
og væntanlega eina, tækifærið í
vetur til þess að sjá nýtt West
Ham-lið. Skemmtanagildi Hamr-
anna er þó ívið minna eftir að
Roeder hvarf af hliðarlínunni í
tuddanum góða. Lau.stöð2 kl. 15.00
Sunderland-Birmingham
„Boooorrrrriiiiinnnggg" myndi
Homer Simpson segja ef hann
fylgdist með enska boltanum og
væri spurður að því hvort liann
ætlaði að koma með á leikinn.
Það segir allt sem segja þarf.
Lau.Sýn kl. 17.30
Arsenal-Chelsea
Fautarnir í Arsenal mæta
glaumgosunum í Chelsea. Það má
með sanni segja að Arsenal-andinn
kristallist í Ashley Cole sem hefur
sagt að Arsenal ætli að vinna
Chelsea tvisvar á næstu dögum og
þar með verði Claudio Ranieri
rekinn frá Chelsea. Vel innrættur og
góður drengur þar á ferð.
Sun.Sýnkl. 12.30
Liverpool-Portsmouth
DV mælir ekki með því að fólk horfi
á þennan leik illa sofið - það gæti
endað illa. Fastlega má búast við
rólegum leik, fáum færum og engum
mörkum. Nokkrar ruddatæklingar
eru þó vel inni í myndinni og það
gæti gert það þess virði að horfa á
þennan leik sem eflaust þarf að leika
aftur þar sem hann endar með
markalausu jafntefli.
Sun. Sýn kl 16.00
BOLTINN EFTIRVINNU
Hrækti á stelpu?
efnilegur að hann var valinn besti
leikmaður 4. flokks KR. Sverrir var
ákaflega eigingjarn vinstri
kantmaður sem aldrei gaf boltann.
Þess í stað sólaði hann mikið og að
eigin sögn var hann kallaður
„saumavélin". Knattspyrnuáhuginn
hefur eilítið dvínað síðustu ár en
Sverrir fylgist þó aðeins með
boltanum.
„Ég hef alltaf verið hriflnn af Man.
Utd. Reyndar má ekki gleyma því að
þegar ég horfi á fótbolta þá er það
með öðru auganu á fimmta glasi,“
sagði Sverrir en United hefur oft
reynst honum vel. „Þegar ég hef
veðjað á leiki þá hef ég veðjað á sigur
hjá United. Ég fór sfðan að halda með
þeim því þeir unnu alltaf."
Sverrir er þó ekki að leggja peninga
undir - enda er það bannað - heldur
veðjar hann upp á bjór. „United hefur
skilað mér ófáum bjórunum. Það er
miklu betra að vinna bjór en
peninga."
George Best var fyrirmyndin
Sverrir neitaði því í fyrstu að hafa
haldið lengi með United en eftir að
blaðamaður hafði kafað djúpt ofan í
sál hans kom í ljós að hann er búinn
að halda með liðinu f tugi ára.
„Svei mér þá, en ég held það sé
bara rétt hjá þér að það hafi blundað í
mér ákveðin aðdáun á liðinu alveg frá
því George Best spilaði. Hann var
alltaf maður að mínu skapi. Best
spilaði fótbolta eins og mér fannst að
ætti að spila hann. Hann gat sólað
menn alveg út og suður,“ sagði
Sverrir, en rétt er að fram komi að DV
tók engan pening íyrir sálfræði-
þjónustuna.
„Best var líka góður drykkjumaður
og vægt til orða tekið þokkalegasti
kvennamaður og er það
reyndar enn. Hann
er aftur á móti
kominn í
þá deild
sem eng-
inn vUI vera
í en það er að
berja kon-
urnar sínar."
Bjartasta von Englands
knattspyrnunni, hinn 18
ára gamli Wayne
Rooney, er í vand-
ræðum með að
höndla frægðina
sem fylgir velgengn-
inni í knatt-
spyrnunni. Hann
hefur verið fjarri ; 0
sínu besta á vell-
inum í vetur og nú p
er hann farinn að
koma sér í vandræði
utan vallar. Hann
verður
yfirheyrður á næstunni af
lögreglunni í Manchester eftir
að stúlka ákærði hann fyrir
að kalla sig ljótum nöfnum
og hrækja á sig.
Atvikið átti sér stað
nóttina eftir leik
ÍManchester United og
Everton en Rooney
ákvað að lyfta sér upp
eftir tapið gegn United
með því keyra til
Manchester og sletta
ærlega úr klaufunum á
vinsælum skemmtistað þar í
borg.
Vitni hafa stað-
fest að
Rooney
var
Stúlkan hrækti á Wayne
„Þessar ásakanir á
hendur Wayne eru
algjörlega úr lausu lofti
gripnar og með öllu
ósannar," sagði
Paul Stretford,
umboðsmaður
Rooneys. „Það
var stúlkan
sem lét
ófriðlega
og hún
lét sig
ollum tllum notn-
um. Hann brást ekki
við þessu áreiti hennar
og þá hrækti hún á hann og var fyrir
vikið kastað út af skemmtistaðnum.
Wayne var eingöngu að skemmta
sér á löglegan hátt og var edrú.“
Trúi þvf svo hver sem vill.
Hver hrækti á
hvern?
Rooney neitar
dsökunum um
skyrpingar og
segir að stúlkan
hafi hrækt á
hann.
skemmtistaðnum í það minnsta til
þrjú um nóttina. Hann hafði það
náðugt í VlP-herberginu með
félögum sínum og segja vitnin að
stúlkan hafi verið að gera hosur
sínar grænar fyrir Rooney.
Drullaðu þér í burtu
„Stúlkan var augljóslega búin að
fá sér vel neðan í því og hún hékk
utan í Wayne. Ég held að á
endanum hafi hann fengið nóg af
henni og sagt henni að drulla sér í
burtu," sagði vitni á
skemmtistaðnum.
Lögreglan staðfesti í gær að kæra
lægi fyrir en stúlkan kærði ekki fyrr
en fjórum dögum eftir atvikið.
„Kæra hefur verið lögð fram á
hendur þekktum einstaklingi og
málið er í rannsókn," sagði í
yfirlýsingu frá lögreglunni.
Umboðsmaður Rooneys vinnur
yfirvinnu þessa dagana til þess að
hreinsa nafn skjólstæðings síns og
hann segir að Rooney haft ekki
hrækt á stelpuna - hún hafl hrækt á
hann.
Hefur þú áhuga á 5000 dollurum?
Sportbarinn Players f Kópavogi
hleypir um næstu helgi af stokkunum
stórskemmtilegum leik sem ekki
hefur áður verið spilaður hér á landi.
Leikurinn er einfaldur. Skjóttu
fótbolta í gegnum gat af 11 metra færi
og þú færð 5000 dollara eða tæplega
350 þúsund íslenskar krónur.
„Það er allt klárt og við hefjum
keppni um næstu helgi,“ sagði Oddur
Hauksson hjá Players. „Leikurinn er
sáraeinfaldur. Þú kaupir Carlsberg hjá
okkur og ferð þá í pott. Síðan em fjórir
dregnir úr pottinum hverju sinni og
þeir fá tækifæri til þess að skjóta.
Þannig að því oftar sent þú kaupir
Carlsberg því meiri líkur em á því að
þú fáir að skjóta," sagði Oddur en
gatið er 18 tommur að stærð þannig
að það er góður möguleiki á að hitta í
gegn.
„Stefnan er að vera með þennan
leik svona einu sinni í viku eða þegar
góðir leikir eru í gangi.“
Klárir í slaginn ÞeirOddur Hauksson og
Árni Björnsson hjá Players eru klárir i slaginn
og standa hér við skiltið góða sem hitta þarf
ígegnum.
Millwall-Burnley
Jæja, alltaf í boltanum, er það ekki?*'
Tranmere-Swansea
John Aldridge lék einu sinni með
Tranmere. Hann var líkur Ian Rush í
úditi og gat líka skorað.
Sheff. Utd-Colchester
Parkinson, stjóri Colchester, verður
án stórstjarnanna Craig Fagan og
Wayne Andrews. Ekki er samt öll
von úti því hinn eini sanni Paul
Tierney er klár í slaginn.
Eitt af
lykil-
atriðunum í
því að njóta
enska
boltans til
fulls er að eiga gott
sjónvarp. Það er eitt að horfa á 14“
tækið í eldhúsinu eða horfa á
risastórt breiðtjaldssjónvarp í
stofunni. Þú færð einfaldlega ekki_
það sama út úr leiknum. Við
tókum hús á tveimur mönnum
sem eru vel meðvitaðir um þessa
staðreynd og klikka ekki á
lykilatriðum.
Tækið fær fullt hús
Arnar Gunnlaugsson lék til
margra ára á Bretlandseyjum og
hann eyðir drjúgum tíma í það að
fylgjast með leikjum í enska bolt-
anum heima hjá sér. Til þess að
njóta leikjanna til fulls dugar ekkert
slor.
„Ég er með virkilega gott tæki.
Það er 32“ tæki frá Bang & Olufseiv^
sem ég keypti mér úti í Bretlandi
1999, að mig minnir," sagði Arnar.
„Það hefur reynst mér mjög vel og
uppfyllir mínar kröfur. Ég gef þessu
tæki tvímælalaust fullt hús.“
Arnar lætur sér ekki nægja að
vera með gott tæki heldur er hann
líka með gervihnattadisk
svo hann geti nánast
séð alla leiki sem
eru spilaðir á
Englandi.
„Með disknum
næ ég Sky Sports
sem sýnir ansi
marga leiki og má
segja að maður geti
fullbókað sig fyrir
framan tækið
með þessar
græjur. -dBi
Þetta er eðalgræja
Bjarki Gunnlaugsson er enginn
eftirbátur bróður síns þegar kemur
að sjónvarpsmálunum.
„Ég er með Bang & Olufsen eins
og Arnar. Við erum nú einu sinni ^
tvíburar," sagði Bjarki léttur í lund
en það er þó örlítill munur á
tækjum þeirra bræðra. „Ég er með
sömu stærð og hann en mitt er
þannig að það fellur inn í innrétt-
inguna en hans er frístandandi."
Bjarki er ekki í nokkrum vafa um
að menn verða að vera með ai-
mennilegt tæki til þess að njóta
boltans til hins ítrasta.
„Það verða að vera almennileg
gæði. Ég er virkilega ánægður með
tækið mitt - þetta er eðalgræja.
Manni líður virkilega vel uppi í sófa
að horfa á leiki í tækinu. Að sama
skapi er líka
hundleiðinlegt að
horfa á ömurlegan
leik í góðu tæki.
Hann verður
virkilega
leiðinlegur fyrir
vikið þannig að
þetta helst allt í
hendur."