Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq

Dagblaðið Vísir - DV - 14.02.2004, Qupperneq 34

Dagblaðið Vísir - DV - 14.02.2004, Qupperneq 34
Árni Gautur Arason mun standa í marki Manchester City gegn Manchester United á Old Trafford í dag þega: -þátt í því að Manchester City komst áfram í bikarnum en hann varði oft á tíðum stórkostlega gegn Tottenhai Hræoist ekk Van Fimmta umferð ensku bikarkeppninnar hefst í dag með fimm leikjum. Stórleikur dagsins er grannaslagur Manchester United og Manchester City á Old Trafford. íslenski landsliðsmarkvörðurinn Árni Gautur Arason mun að öllum líkindum standa á milli stanganna hjá Manchester City og mæta stórstjörnum Manchester United, mönnum á borð við Hollendinginn Ruud Van Nistelrooy, Ryan Giggs og Paul Scholes. Árni Gautur prísar sig væntanlega sælan að Frakkinn Louis Saha, sem hefur farið á kostum sfðan hann kom til félagsins frá Fulham, má ekki spila í leiknum í dag þar sem hann lék með Fulham gegn Cheltenham í þriðju umferð bikarkeppninnar. Það mun væntnalega mikið koma til með að mæða á Árna Gauti í leiknum enda er töluverður munur á stöðu liðanna í deildinni, Manchester United í öðru sæti og Manchester City í því sextánda. Paul Scholes Það er skammt stóra högga á milli hjá íslenska landsliðs- markverðinum Árna Gauti Arasyni þessa dagana. Það eru ekki nema nokkrar vikur síðan hann var atvinnulaus meiddur markvörður en í dag mun hann standa á milli stanganna hjá Manchester City í grannaslagnum gegn Manchester United í fimmtu umferð ensku bikarkeppninnar á Old Trafford, Leikhúsi draumanna. Býst við að byrja DV Sport ræddi við Árna Gaut í gær um leikinn gegn Manchester United og þá tilhugsun að mæta leikmönnum á borð við hollenska markahrókinn Ruud van Nistelrooy, Paul Scholes, Diego Forlan og Ryan Giggs. eru 50 þúsund eða 67 þúsund. Ef stemningin er góð þá skilar það sér til leikmannanna inni á vellinum." Hræðist þá ekki Árni Gautur er ekki að fara að mæta neinum meðaljónum í dag því í liði andstæð- inganna eru leikmenn eins og Ruud van Nistelrooy, sem hefur skorað 23 mörk í 29 leikjum fyrir Manchester United á þessu tímabili, væng- maðurinn frábæri Ryan Giggs, miðjumaðurinn Paul Scholes og fleiri Formið að batna Árni Gautur var skorinn upp við axlarmeiðslum fyrir skömmu og er þvf ekki enn kominn í toppform líkamlega. „Leikurinn gegn Tottenham var fyrsti alvöruleikur minn síðan ég spilaði gegn Mexíkó í Banda- ríkjunum í lok nóvember. Síðan fór ég í aðgerð á öxl og hef verið að byggja mig upp síðan. Það getur tekið nokkuð langan tíma og ég finn að ég er ekki ai«eg kominn í mitt :sta form. Ég hef íns vegar engar áhyggjur af því að það eigi eftir að koma mér í koll á morgun. Ég er þvert á móti „Ég veit þó að stuðn- ingsmenn okkar trúa á sigur og sætta sig ekki við neitt annað en ég held að við getum mætt nokkuð afslappaðir í þennan leik." staðráðinn í því að standa mig enda virðist staðan vera þannig hjá okkur í dag að það verður erfitt fyrir mig að spila aðra leiki en bikarleikina. Það er ekki hlaupið að því að slá David James út úr liðinu en ég get sett pressu á hann með því að standa - Ryan Giggs Diego Forlan „Eg býst fastlega við að vera í liðinu á morgun. Keegan hefur reyndar ekki gefið upp liðið en það kæmi mér óvart ef ég verð ekki í liðinu,“ sagði Árni Gautur í gær. Mikil spenna í borginni Hann sagði að það ríkti mikil spenna í borginni og hann yrði var við áhuga fólks á leiknum hvar sem hann færi. „Það ríkir mikil eftirvænting og það eru allir að tala um leikinn hvar sem ég kem. Stemningin fyrir þessum leik er alveg ótrúleg og það verður spennandi að spila fyrir fullu húsi á Old Trafford. Ég hef aldrei spilað þar áður og það verður frábært að kynnast andrúmsloftinu þar enda talið einstakt. Þetta er völlur sem mig hefur alltaf dreymt um að spila á. Ég man ekki aíveg hvort ég hef einhvern tíma spilað fyrir framan 67 þúsund áhorfendur áður, það gæti hafa gerst með Rosenborg í meistaradeildinni en það skiptir reyndar ekki svo miklu máli, held ég, hvort áhorfendurnir „Ég held að pressan sé öll á þeim í þessum leik. Þeir eru enskir í meistarar, miklu ofar1 en við í deildinni og ég held að það búist enginn raunverulega við því að við eigum möguleika gegn þessu liði á þeirra heimavelli." Árni Gautur sagðist ekki hræðast neinn þeirra þótt allir í United-liðinu væru frábærir leikmenn. „Ég hræðist ekki Ruud van Nistelrooy. Hann er frábær leik- maður en ég þarf bara að hugsa um að standa mig vel og reyna að stoppa hann með öllum tiltækum ráðum. Þetta United-lið er frábært og það er Ijóst að þeir mæta brjálaðir í þennan leik eftir tapið gegn Middlesbrough í vikunni. Sá leikur sýndi okkur að það er allt hægt en ég held samt að við þurfum að eiga algjöran toppleik til að eiga möguleika á því að slá þá út. Það hefur hins vegar sýnt sig að það er allt hægt í bikarnum og því tel ég að við eigum möguleika," sagði Arni Gautur. Pressan á þeim Árni Gautur sagði einnig að hann og félagar hans væru í þægilegri stöðu að því leytinu að það byggist enginn við því að þeir gætu unnið leikinn. „Ég held að pressan sé öll á þeim í þessum leik. Þeir eru enskir meistarar, miklu ofar en við í deildinni og ég held að það búist enginti raunverulega við því að við eigum möguleika gegn þessu liði á þeirra heimavelli. Eg veit þó að stuðningsmenn okkar trúa á sigur og sætta sig ekki við neitt annað, en ég held að við getum mætt nokkuð afslappaðir í þennan leik - ég ætla í það minnsta ekki að vera stressa mig á þessum leik heldur njóta þess að spila við þessar aðstæður." istiano Ronaldo

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.