Dagblaðið Vísir - DV - 14.02.2004, Page 36
36 LAUQARDAGUR 14. FEBRÚAR 2004
■>■ ... .......................
Sport DV
Góður endir
Tijá Haukum
Haukar báru sigurorð af
Blikum, 74-70, í Smáranum
á fimmutdagskvöldið. Það
leit þó allt út fyrir sigur
Blika því þeir höfðu fjög-
urra stiga forystu, 70-66,
þegar þrjár mínútur voru
eftir. Þá tóku Haukar sig til
og skoruðu átta síðustu stig
leiksins og tryggðu sér
sigur. Kyle Williams skoraði
25 stig fýrir Breiðablik og
Mirko Virijevic skoraði 21
stig og tók 17 fráköst.
Michael Manciel var
stigahæstur hjá Haukum
ttseð 18 stig.
Einn litríkasti knattspyrnustjóri ensku úrvalsdeildarinnar er hættur í starfi hjá
Southampton. í janúar hafði lekið út til ensku blaðanna að Gordon Strachan ætlaði
að hætta með liðið í lok tímabils en sterkur orðrómur um endurkomu Glenn
Hoddle á St Mary's átti örugglega sinn þátt í að Strachan hætti í gær.
Fyrsta tap KR á heimavelli í sjö leikjum
Páll Axel og Lewis
drógu vagninn
Sigurganga KR-inga á heimavelli í
Intersportdeildinni í körfuknattleik
var stöðvuð á fimmtudagskvöldið
þegar Grindvíkingar komu í
heimsókn í DHL-höllina á
fimmtudagskvöldið. KR-ingar, sem
höfðu unnið sex heimaleiki í röð, áttu
aldrei möguleika og töpuðu að
lokum með fjórtán stiga mun,
104-90.
KR-ingar réðu ekkert við Darrell
Lewis og Páll Axel Vilbergsson sem
skoruðu þegar þeir vildu. Grind-
víkingar leiddu allan leikinn ef
undan eru skildar fyrstu tvær
mínútur leiksins. Þeir höfðu leikinn í
hendi sér og í hvert sinn sem
KR-ingar nálguðust þá óþarflega
mikið settu þeir í gír á nýjan leik.
Eins og áður sagði áttu Páll Axel
Vilbergsson og Darrell Lewis
frábæran leik í liði Grindavíkur.
Lewis fór sérstaklega á kostum í fyrri
hálfleik en þá skoraði hann 29 stig.
Eini KR-ingurinn sem gat haldið í þá
félaga var Josh Murray en hann
skoraði 41 stig í leiknum. Murray bar
nánast einsamall uppi sóknarleik
KR-liðsins og voru aðrir leikmenn
hálf meðvitundarlausir í kringum
hann. Leikmenn eins og Magni
Hafsteinsson, Skarphéðinn Ingason
og Baldur Ólafsson voru úti á þekju
og hinn Bandaríkjamaðurinn í liði
KR, Trevor Diggs, er einfaldlega ekki
nógu góður til að réttláta veru sína í
Vesturbænum.
Grindvíkingar tefldu ffam nýjum
Bandaríkjamanni, Jackie Rodgers í
leiknum. Rodgers sýndi ágæta takta
en hann er í lélegu formi og stóð oft
á öndinni þegar hraðinn var sem
mestur. Hann styrkir liðið nokkuð
og það er ekki ólíklegt að hann klári
tímabilið með Grindvíkingum enda
hafa vandræði þeirra með erlenda
leikmenn eftir áramót ekki riðið við
einteyming.
Darrell Lewis var stigahæstur hjá
Grindavík með 38 stig og 9 fráköst,
Páll Axel Vilbergsson skoraði 29 stig,
Jackie Rodgers skoraði 12 stig og
Guðmundur Bragason skoraði 10
stig og tók 10 fráköst.
Josh Murray skoraði 41 stig og
tók 15 fráköst fýrir KR og þeir Magni
Hafsteinsson og Trevor Diggs
skoruðu 10 stig hvor. oskar@dv.is
Lewis sjóðandi heitur Darrell Lewis átti frábæran leik iliði Grindavikur gegn KR á
fimmtudaginn. Hann skoraði 38 stig og hitti úr öllum 5 þriggja stiga skotum sínum i leiknum.
Átta sigrar
íröð
Snæfell heldur áfram
sigurgöngu sinni í Inter-
sportdeildinni í körfuknatt-
leik en liðið vann sinn átt-
unda sigur í röð í deildinni
á fimmtudagskvöldið þegar
það lagði Hamar, 86-69 í
Hveragerði. Það var fyrst og
fremst frábær varnarleikur
leikmanna Snæfells sem
skóp sigurinn en liðið hafði
tíu stiga forystu í hálfleik,
42-32. Chris Dade var
stigahæstur hjá Hamri með
17 stig, Marvin Valdimars-
son skoraði 12 stig, Lárus
Jfmsson skoraði 11 stig og
Faheem Nelson skoraði 10
stig og tók 9 fráköst. Corey
Dickerson var atkvæða-
mestur hjá Snæfelli með 28
stig og 7 stoðsendingar,
Dondrell Whitmore skoraði
16 stig, Edmund Dotson
skoraði 14 stig og tók 19
fráköst og Hlynur Bærings-
son skoraði 12 stig og tók
10 fráköst. Snæfell trónir á
toppi deildarinnar með 28
stig, jafnmörg og Grindavík
en betri árangur í inn-
byrðis viðureignum
liðanna.
fállfórá
kostum
Njarðvfkingar gerðu
góða ferð í Seljaskólann í
fyrrakvöld þegar þeir lögðu
ÍR-inga að velli, 102-95.
IR-ingar höfðu yfirhöndina
allt fram í fjórða leikhluta
en þá gáfu Njarðvíkingar í
°g tryggðu sér að lokum sjö
stiga sigur og fjórða sætið í
deildinni. Maurice Ingram
var atkvæðamestur hjá ÍR
Jtáæö 27 stig og 16 fráköst,
Eirfkur Önundarson skor-
aði 20 stig og Eugene
Christopher skoraði 16 stig.
Páll Kristinsson átti frábær-
an leik í liði Njarðvíkur og
skoraði 31 stig og tók 6
fráköst. Brenton Birming-
ham skoraði 22 stig og
Friðrik Stefánsson skoraði
19 stig og 6 fráköst.
Strachan hættur
Gordon Strachan, hinn litríki framkvæmdastjóri Southampton í ensku
úrvalsdeildinni í knattspyrnu, hætti með liðið í gær og við tók
aðstoðarmaður hans, Steve Wigley. Strachan ákvað þetta í samráði við
stjórnarformann félagsins, Rupert Lowe, sem leitar nú að eftirmanni hans.
Það er svo sem ekki ný frétt að Strachan væri að hætta með liðið en það
kemur á óvart að hann skyldi ekki klára tímabilið eins og hann hafði ætlað
að gera, heldur hætta með það þremur mánuðum fyrr en áætlað var.
Hættur Gordon Strachan, hinn litriki framkvæmdastjóri Southampton i ensku úrvalsdeildinni
i knattspyrnu, hætti með liðið í gær. Reuters
Það hefur verið mikið
fjölmiðlafár í kringum framtíð fram-
kvæmdastjórastöðu Southampton
og það er ljóst að óvissan hefur ekki
haft góð áhrif á gengi liðsins sem
hefúr verið á hraðrj niðurleið í
töflunni að undanförnu.
Mikil eftirsjá
„Þetta er frábært félag með
góðan hóp af atvinnumönnum
innan sinna raða og það er því með
mikilli eftirsjá sem ég hætti í þessu
starfi en ég tek það fram að ég hætti
vegna persónulegra ásfæðna," sagði
Strachan í viðtali við heimasíðu
Southampton en þessi 47 ára Skoti
kom til liðsins frá Coventry í október
2001.
„Ég er viss um að Steve Wigley
mun standa sig vel í þessu starfi og
ég styð hans stöðuhækkun. Ég og
stjórnarmaðurinn erum sammála
um að þetta sé besta lausnin fyrir
liðið og vonandi leyfa
fjölmiðlamenn nú leikmönnum
Southampton að einbeita sér að
þeim leikjum sem eru eftir á meðan
að stjórnarmaðurinn leitar að
eftirmanni mínum,“ sagði Strachan
en fréttir af endurkomu Glenn
Hoddle á St Mary's hafa örugglega
ekki farið framhjá honum eða
öðrum sem fylgst hafa með
málefnium liðsins að undanförnu.
Fyrstu bikarúrslit í 27 ár
Gordon stjórnaði síðasta
leiknum í 0-2 tapi gegn Arsenal í
vikunni en gegn Arsenal spilaði
Southampton líklega stærsta leikinn
undir hans stjórn því Strachan kom
liðinu í bikarúrslit í fyrra í fyrsta sinn
í 27 ár. Undir hans stjórn hafnaði
liðið í áttunda sæti ensku úrvals-
deildarinnar í fyrra og 11. sæti árið á
undan sem er það besta hjá félaginu
í langan tíma. Southampton er núna
í 12. sæti deildarinnar en hefur
aðeins unnið einn af átta leikjum
sínum frá jólum og fallið úr 5. sæti
niður í það 12. á þeim tíma.
Það besta fyrir liðið
„Ég hitti Gordon og okkur fannst
báðum það vera best fyrir félagið að
hann hætti strax. Hann hefur unnið
frábært starf fyrir okkur á þessurn
tveimur og hálfa ári og við skiljum á
góðum nótunum. Skotinn var vel
liðinn og mjög vinsæll og verður
saknað af öllum þeim sem koma
nálægt félaginu. Frá því að fréttirnar
láku út að hann ætlaði að hætta með
liðið í vor hefur ástandið orðið verra
og verra með hverjum deginum og
það ástand gerði leikmönnum erfitt
fyrir,“ sagði stjórnarmaðurinn
Rupert Lowe og bætti síðan við.
„Gordon og fjölskylda hans eru alltaf
velkomin á St Mary's á meðan ég er
formaður." ooj@dv.is
tfSkotinn vnt vel íiðinn
og mjög vinsæil og
verður saknað af
tilium þeim sem koma
nalægt félaginu