Dagblaðið Vísir - DV - 14.02.2004, Qupperneq 43
■PV Fókus
LAUGARDAGUR U.FEBR0AR20Q4
Edda Andrésdóttir og Páll Magnússon eru sameinuð á skjánum að nýju. Samstarf þeirra hefur verið
ótrúlega langlíft þrátt fyrir hlé og eyður og þau virðast ætla að færa þjóðinni tíðindi dagsins nánast að^
eilífu. Páll segir helstu kosti Eddu vera ótrúlega þægilega nærveru hennar og Edda segir á móti að fas
Páls og örugg framsögn geri það að verkum að fólk treysti því sem hann segi.
Bráðum tuttugu ár eru liðin síðan
þau Páll Magnússon og Edda
Andrésdóttir birtust á sjónvarps-
skjánum í því hlutverki að segja
þjóðinni fréttir. Það var haustið 1985
á Sjónvarpinu í fréttastjóratíð Ingva
Hrafs Jónssonar, sem valdi þau tvö
sem einskonar par í fréttalesturinn.
Þetta var hluti af nýjum áherslum
Ingva í fréttastjórninni, en fyrir-
rnyndir hans voru meðal annars
sóttar til BBC í Bretlandi og vestur
um haf til sjónvarpsstöðvanna NBC
og CBS. Þær voru meðal annars að
karl og kona læsu fréttirnar og til
þessa hlutverks hér heima valdi
Ingvi þau Pál og Eddu, sem þá áttu
fyrir langan feril á fjölmiðlum. En
sjálfsagt hefur Ingva Hrafn á þessum
tíma aldrei grunað að bráðum tutt-
ugu árum síðar sætu þau enn fyrir
framan myndavélarnar og segðu
þjóðinni fréttir að kvöldi sérhvers
rúmhelgs dags vikunnar.
Erfitt að reiðast elskulegri
Eddu
„Það hafa komið allskonar hlé og
eyður í þetta samstarf okkar, sem
engu að síður ætlar að verða býsna
langlíft," sagði Páll Magnússon þeg-
ar DV ræddi við hann í vikunni.
Hann snéri aftur til starfa á Stöð 2
fyrir fáeinum vikum, eftir að hafa
um þriggja ára skeið starfað við upp-
lýsingamál hjá íslenskri erfðagrein-
ingu.
„Reyndar finnst mér þetta svo
stuttur tími að engu er líkara en ég
hafi aldrei farið héðan af Stöðinni,"
segir Páll kíminn. Hann hefur starf-
að við fjölmiðla í áratugi. Byrjaði á
Vísi um 1980 en hefur síðan komið
víða við, en lengst af verið á Stöð 2
og komið víða við þar á bæ. Frétta-
stjóri Stöðvar 2 gerðist hann þegar
stöðin var stofnuð árið 1986.
„Það var einmitt þegar ég færði
mig yfir á Stöð 2 sem ég gerði sem
frægt var tilraun tii að fá Eddu með
mér yfir,“ segir Páll. „Hún var búin
að undirrita samning við mig sem
hún síðan rifti, það var eftir að Ingva
„Hún var búin að und-
irrita samning við mig
sem hún síðan rifti,
það var eftir að Ingva
Hrafni tókst að fá
hana yfir á sitt band
um að vera áfram um
kyrrt á Ríkissjónvarp-
inu."
Hrafni tókst að fá hana yfir á sitt
band um að vera áfram um kyrrt á
Ríkissjónvarpinu. Þetta voru mér
Edda brosir „Eddu Andrésdóttur er
hinsvegar gefið nokkuð sem sem
fáir hafa og það er þessi þægilega
nærvera á sjónvarpsskjánum," seg-
ir Páll Magnússon um samverka-
konu sina, sem hann telur fréttaþul
á heimsvisu.
mikil vonbrigði og er ltklega það
skipti þegar ég hef komist næst því
að verða reiður út í Eddu, sem ann-
ars er óskaplega erfitt sakir þess
hversu elskuleg manneskja hún er
og þægileg í öllu samstarfi."
Þessi þægilega nærvera
Páll segir þessa aðalskosti ekki
bara njóta sín í daglegu samstarfi,
heldur skili þeir sér alla leið heim í
stofu til áhorfenda. „Þeir sem starfa í
sjónvarpi þurfa helst að hafa marga
kosti, ýmis meðfædda eða áunna. Til
dæmis gott útlit, góðan og skýran
talanda, vera vel með á nótunum og
svona gheti ég haldið áfram. Eddu
Andrésdóttur er hinsvegar gefið
nokkuð sem sem fáir hafa og það er
þessi þægilega nærvera á sjónvarps-
skjánum. Er alltaf velkomin á heimil-
ið þegar hún birtist fólkinu f landinu
til að flytja okkur fréttir," segir Páll.
Hann bætir við að í rauninni
komist hann í hrakningar við að út-
skýra í hverju þessir hæfileikar Eddu
felast. Þeir séu þó tvímælalaust til
þess fallnir að skipa henni í fremstu
röð fréttaþula, hvort heldur er hér á
landi eða á heimsvísu - ef því væri
að skipta.
Bæjarstjórasonur á rúntinum
Edda Andrésdóttir segist fyrst
muna eftir Páli Magnússyni sem
unglingspilti í Vestmannaeyjum, en
þar dvaldist hún oft sem barn og
unglingur hjá ömmu sinni.
„Ég man eftir þessum töffara og
bæjarstjórasyni á rúntinum, en
þetta var á þeim tíma þegar menn
nutu þeirra mannvirðinga mestra að
komast í reikning í BÚR-sjoppunni.
Að vera sýnt það traust í sjoppunni
voru þær mestu mannvirðingar sem
nokkur gat notið," segir Edda, sem
næst kveðst muna eftir Páli þegar
hún vann á Vísi. Þangað kom hann
til starfa um það leyti sem Edda var á
förum þaðan eftir átta ára starf.
„Við hreinlega mættumst í dyr-
unum, ég og þessi strákur með blá
augu sem gekk um á ritstjórninni í
„Við hreiniega mætt-
umst í dyrunum, ég
og þessi strákur með
blá augu sem gekk
um á rítstjórninni í
smekkbuxum/'
smekkbuxum," segir Edda og hlær.
Tímamót með Ingva Hrafni
Leiðir þeirra Páls áttu síðan eftir
að liggja næst saman þegar Edda
réðist til starfa á sjónvarpinu árið
1985; það er þegar Ingvi Hrafn tók
við starfi fréttastjóra af sr. Emil
..m mm
í návígi Páll Magnússon á frumbýl-
ingsárum Stöðvar 2, hér i umgjörð
þáttarins í návígi. Fréttastefna
Stöðvar 2 var mótuð afPáli, en þar
voru ráðamenn teknir á beinið i
meira návígi en áður hafði tiðkast i
islensku sjónvarpi.
Björnssyni, presti Óháða safnaðar-
ins.
„Þegar Ingvi tók við urðu afar
miklar breytingar á öllum starfshátt-
um í sjónvarpi hér á landi. Þær hefð-
ir og starfsvenjur sem mótast höfðu í
tímans rás voru brotnar niður þegar
hann tók við. Ef til vill má segja að
þarna hafi orðið tímamót í vinnslu
og framsetningu sjónvarpsfrétts^t
íslandi og að við séum enn á sömu
línu. Að minnsta kosti hafa breyting-
ar í veigamestu atriðunum ekki átt
sér stað síðan," segir Edda sem var
fréttamaður á Sjónvarpinu fram til
1989, að hún réði sig til starfa á Stöð
2. Var fyrstu árin í dagskrárgerð en
hefur verið fréttaþulur lengst af.
Staðið þar vaktina meðal annars
með Sigmundi Erni Rúnarssyni,
Karli Garðarssyni og síðast en ekki
síst Páli Magnússyni.
Trúverðugleiki og örugg
framsögn
Edda segir að þegar hún sá fyrst
til Páls Magnússonar hafi hún
ályktað sem svo að þar færi maður
sem tæki sig kannski full hátíðlega.
Fljótt hafi hún hinsvegar sannfærst
um hið gagnstæða - og hafi lært að
meta húmoristann Pál Magnússon
sem sé þess utan afar traustur og
góður félagi, sem geti verið harcji^Á,
horn að taka þegar það eigi við.
„Ég man kannski ekki eftir neinu
sérstaklega eftirminnilegu úr okkar
samstarfi, til að mynda einhverjum
þeim mistökum sem hafa sést alla
leið heim í stofu hjá fólki. En hitt get
ég sagt þér að ég fagna því að Páll er
aftur kominn í sjónvarpið og frétta-
lesturinn. Hann er frábær fréttales-
ari og hefur þess utan þetta fas og
öruggu framsögn sem gera það að
verkum að áhorfendur trúa og
treysta því sem hann segir. Trúverð-
ugleikinn skapast meðal annars
með árunum og reynslunni sem
aldrei ætti að vanmeta í starfi fjöl-
miðlafólks," segir Edda Andrésdóttir
fréttaþulur að síðustu.
sigbogi@df}íG