Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.2004, Page 4

Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.2004, Page 4
4 FIMMTUDAGUR 4. MARS 2004 Fréttir DV Líkkistu- smiðja í kaldakol Líkkistusmiðjan að Mið- ási 14 á Egilsstöðum brann í gærdag. Að sögn lögregl- unnar á Egilsstöðum barst tilkynning um brunann um tvöleytið. Erfiðlega gekk að slökkva eldinn vegna mikils hvassviðris og blossaði eld- urinn upp aftur og aftur af þeim sökum. Eldurinn kom upp f kyndiklefa sem er byggður við líkkistusmiðj- una. Þaðan barst hann með röri yfir í þakklæðningu hússins. Slökkviljðið þurfti að rffa þakið af við erfiðar aðstæður og tók því nokkurn tíma að ráða niðurlögum eldsins. Slökkviliðið hafði svo vakt við húsið fram eftir kvöldi þar sem talið var að eldur gæti blossað upp á ný. Eldsupptök eru ókunn. Þjófur dæmd- urífangelsi Karlmaður á fertugsaldri hefur verið dæmdur í 18 mánaða fangelsi fyrir fjölda innbrota og fíkniefnabrot. Innbrotin framdi maðurinn á tímabilinu frá maí til sept- ember í fyrra. Hann braust meðal annars inn í smurstöð Heklu þar sem hann stal ýmsum vamingi og inn í Heimsmyndir í Kópavogi þar sem hann stal tölvubúnaði. Hann lét greipar sópa á nokkmm heimilum og í eitt skiptið hafði hann skartgripi sem voru tveggja milljóna króna virði upp úr krafsinu. Maðurinn var vistaður á Litla Hrauni í haust og var þá tek- inn með hass. Honum er gert að greiða þremur trygginga- félögum skaðabætur að upp- hæð tæpar þrjár milljónir króna. Maðurinn á að baki langan brotaferil og hefur áður verið dæmdur í fang- elsi. Fjórir með fíkniefni Lögreglan í Hafnarfirði handtók í fyrradag fjóra einstaklinga á aldrinum milli tvítugs og þrítugs vegna meints fíkniefnamis- ferlis. í kjölfarið var lagt hald á rúmlega 850 grömm af hassi, 160 grömm af am- fetamíni, 10 grömm af kókaíni og um 400 e-töflur. Samkvæmt upp- lýsingum frá lög- reglunni var í gær- dag gerð krafa um gæsluvarðhald yfir tveimur þeirra sem handtekin voru, karlmanns og konu, en tveimur var sleppt úr haldi. Lögregl- an í Hafnarfirði segir að fylgst hafi verið með hús- næði í iðnaðarhverfi í Hafnarfirði í allnokkurn tíma og var fólkið hand- tekið í tengslum við það eftirlit. f framhaldi af hand- tökunum voru tvær húsleit- ir gerðar auk þess sem leitað var í þremur bflum. Blóö úr Vaidas Jucevicius fannst í bíl sem Grétar Sigurðarson á og Tomas Mala- kauskas hafði til umráða. Lögregla segir að Vaidasi hafi verið gefin deyfilyf. Einnig að átök kunni að hafa átt sér stað. Gæsluvarðhaldsfangarnir þrír séu nú jafnvel grunaðir um manndráp sem við liggi 12 - 16 ára fangelsi. Varðhaldið yfir þeim er framlengt um þrjár vikur. Jónas Ingi Ragnarsson Enginsvör bárust frá Jónasi Inga Ragnarssyni áður en hann gekk inn í Héraösdóm Reykjavikur i gær. Grétar Sigurðarson Þreytumerki voru á Grétari Sigurðar- syni þegar hann mætti i Héraðsdóm Reykjavikur i gær. Grétar svaraði engu þegar DV spurði hann hvort hann hefði játað. Tomas Malakauskas Litháinn Tomas Maiakauskas var sem fyrr þögull undir úlpuhettu sinni utan við Héraðsdóm i gær og virti blaðamenn ekki viðiits. DV-Myndir GVA Domara grunar dráp á Vaidasi Hver, sem sviptir annan mann lífi, skaisæta fangelsi, ekki skemur en 5 ár, eða æviiangt." Blóð úr Vaidasi Jucevicius fannst í BMW bfl Grétars Sigurðarsonar. Lögregla fullyrðir að játning liggi fyrir í málinu. Að því er lögregla segir hefur Tornas Mala- kauskas haft þennan bfl Grétars til umráða að undanförnu. í bflnum fannst einnig blóð úr Grétari. Lögregla segir blóðblettina benda til átaka. Dómari segir rökstuddan grun um að Vai- das hafi verið sviþtur lífi Ætlaði heim en dó í Kópavogi Að sögn lögreglu gáfu grunuðu mennirnir þrír Vaidasi deyfilyf í kjölfar þess að hann veiktist eftir komuna til landsins 2. febrúar. Lögregla telur ámælisvert að það skuli mennirnir hafa gert án þess að ráðfæra sig við fagmann í þeim efnum. Mennirnir hafi allir vitað að Vaidas var með amfetamínhylki í iðrum sér. Þeir hafi talið að þeir gætu losað um stíflu í meltingarvegi hans með lyf- inu. Mennirnir hafa skipst á að vakta Vaidas í veikindum. Kenning lögreglu er sú að ákveðið hafi verið að Vaidas færi aftur úr landi með flugi föstudaginn 6. febrúar. Á leiðinni til Keflavíkurflugvallar hafi Vaidas hins vegar veikst alvarlega og mennirnir snúið á heimili Tomasar í Furugrund 50. Þar hafi Vaidas heitinn andast að morgni þessa föstudags. Þremenningarnir hafi afráðið að flytja lflcið austur í Neskaupstað og koma því fyrir þar. Vitni beri um að mikill teppastrangi hafi verið í jeppanum sem þeir Jónas Ingi óku austur í land. Dómari segir rökstuddan grun um dráp Nú telur lögregla málum svo komið að menn- irnir þrír séu ekki aðeins grunaðir um ffkniefna- smygl og um að hafa látið hjá líða að korna Vaidasi til hjálpar auk þess að vanvirða lík hans heldur kunni þeir að vera sekir um manndráp. Það varði 12 til 16 ára fangelsi. Lögmenn þeirra Jónasar Inga Ragnarssonar og Grétars Sigurðarsonar kærðu strax í gær úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur um þriggja vikna fram- lengingu á gæsluvarðhaldi þremenninganna. Lög- maður Tomasar Malakauskas tók sér hins vegar frest til að ákveða sig. í úrskurði héraðsdóms segir að rökstuddur grunur sé fyrir því að mennirnir hafi gerst brot- legir við 211. grein hegningarlaga. í henni seg- ir: „Hver, sem sviptir annan mann lífi, skal sæta fangelsi, ekki skemur en 5 ár, eða ævi- langt." Sveinn Andri Sveinsson, lögmaður Jónasar Inga, segir algerlega skorta rök fyrir áframhaldandi gæsluvarðhaldi. „Málið hefur verið rannsakað mjög ít- arlega af íjölda mjög hæfra lögreglu- manna sem hafa haft drjúgan tíma til að hafa lokað hringnum þannig að sakbomingar fái ekki spillt máls- gögnum," segir Sveinn Andri. Tilkynnt var í gær að embætti ríkislögreglustjóra hefði nú form- lega tekið við forræði rannsóknar málsins af Inger Jóns- dóttur sýslumanni á Eskifirði. gar@dv.is Skápurinn í Krossinum Svarthöfða rak í rogastans þegar hann fór framúr í morgun og teygði sig í DV. Svo sem ekki í fyrsta sinn og þetta þekkja fleiri nú orðið. Á baksíð- unni var Gunnar í Krossinum að tjá sig um hjónabönd samkynhneigðra í Kaliforníu sem fara eins og eldur í sinu um allt fylkið í óþökk Bush sem er kirfilega gagnkynhneigður og vill að aðrir séu það líka. Eins og Gunnar. Merkilegast var þó að þarna sá Svarthöfði það svart á hvítu að sam- kynhneigð er Guði þóknanleg svo lengi sem hún snýst ekki upp í kyn- villu eins og Gunnar orðar það. Hommar og lesbíur eru ágætis fólk svo lengi sem það heldur sig f skápn- um og er ekki að abbast upp á aðra af sama kyni. Gunnar í Krossinum er sama sinnis og Bush Bandaríkjafor- seti um að fólk verði einfaldlega að koma böndum á hneigðir sínar. Játa Svarthöfði syndir sínar og reyna svo eftir fremsta megni að haga sér eins og almennilegt fólk sem giftir sig og kemur sér upp húsi, bfl og börnum. Hamingjan í hnotskurn þó hún breytist stundum í tóma skurn sem dreifist víða. Svarthöfði gæti svo sem kennt bæði Gunnari og Bush ýmislegt urn hamingjuna. Sjálfur gekk hann í Krossinn fyrir mörgum árum þegar svartnættið eitt beið hvert sem litið var. Þar reyndi hann að syngja sig út úr ógöngum og sótti samkomur ótt og títt. En allt kom fyrir ekki. Það var ekki fyrr en Svarthöfði kom út úr skápnum og játaði sanna kynhneigð sína að landið fór að rísa og sól að skína. Jafnvel um miðjar nætur. Þá varð lífið fyrst þess virði að því væri lifað. Og hvflíkt fjör á stundum. Það skiptir Svarthöfða í sjálfu sér engu máli hvort Gunnar í Krossinum kalli hann kynvilling því Gunnar ætti að vita sem er að kynvillingar geta lflca verið kristnir kjósi þeir það og finni með sjálfum sér. Sjálfur getur Gunnar verið trúvillingur með allt í kross og klessu í kollinum. Svarthöföi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.