Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.2004, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.2004, Blaðsíða 10
1 0 FIMMTUDAGUR 4. MARS 2004 Fréttir DV Fréttaskýring / John Kerry John Kerry og George Bush bítast um forsetastólinn í haust. Kerry hefur unnið hvern sigurinn á fætur öðrum í forkosningum Demókrata að undanförnu. Hann nýtur mikils stuðnings um þessar mundir og kannanir benda til þess að hann eigi raunverulega möguleika á að fella Bush forseta af forsetastóli. m ls® Kvennagull ngnar Bush Nú er ljóst að Demókratinn John Kerry keppir um forsetastólinn við George Bush í nóvember á þessu ári. Sigurganga Kerrys í forkosningunum hefur verið nán- ast óslitin; hann hefur haft sigur í 27 ríkjum af þrjátíu. Þetta þykir merkilegt fyrir þær sakir að fyrir tveimur mánuðum þótti Kerry ekki eiga mikla möguleika á út- nefningu. George Bush var meðal þeirra fyrstu til að óska Kerry til hamingju í fyrrakvöld. „Símtal okkar var leggja áherslu á stríðstíma sem nú ríkja og hversu repúblikanar séu best til þess fallnir að stjórna á slík- um tímum. Ég tel að kjósendur hafi sjaldan verið jafn tvískiptir og nú; stór hópur fólks þolir ekki Bush og að sama skapir þolir stór hópur ekki Demókrata," segir Stefanía. Jón Hákon Magnússon fjölmiðlaráögjafi segist hafa tekið Kerry með fyrirvara til að byrja með. „Mér Næsta verkefni Kerrys er að velja varaforsetaefni og þarþykir mörgum sem John Edwards væri heppi/egastur. hið ágætasta," sagði Kerry við stuðningsmenn sína. Forkosningar Demókrata þykja sjaldan hafa geng- ið jafnvel og er þar átt við hversu fljótt úrslitin liggja fyrir. Þar með hefur Kerry aukið svigrúm til að safna fé í kosningasjóð sinn og einnig til að undirbúa bar- áttuna sem hefst af fullum krafti í byrjun sumars. Bush er hins vegar sagður hafa þegar safnað gríðar- legu fé til baráttunnar og á morgun hefst fyrsta aug- lýsingaherferð hans í sjónvarpi, herferð sem kostar milljónir dollara. Samkvæmt skoðanakönnunum á Kerry raunhæfa möguleika á að vinna sigur í haust. Sjaldan jafntvískiptir kjósendur Stefanía Óskarsdóttir stjórnmálafræðingur segir fullvíst að kosningabaráttan verði mjög spennandi. „Kerry virðist ágætur maður og hann hefur mikla reynslu af þingstörfum. Bush á hins vegar mikla pen- inga og nýtur þess að vera forseti. Hann getur þó lent í erfiðum málum næstu mánuði sem kunna að koma niður á honum.“ Utanríkismál og efnahagsmál verða mest áber- andi, um það eru flestir sammála. „Demókratar munu benda á atvinnuleysi á meðan Bush mun Stefanía Óskars- dóttir stjórn- málafræðingur „Kerry virðist ágætur maður og hefur mikla reynslu af þingstörfum. Hann á sjálfsagt sína óvini sem koma til með að tina ýmislegt til og benda á misfellur í mál- flutningi hans. finnst hann meira spennandi í ljósi þessa gríðarlega stuðnings sem hann hefur fengið. Eg treysti því að honum takist að koma Bush og hans gengi út úr Hvíta húsinu í haust," segir Jón. Hann tekur undir með Stefaníu að utanríkismál og efnahagurinn heimafyrir verði málefnin sem barist verður um. „Ég held að Íraksstríðið og sú skelfing sem þar ríkir og svo efna- hagsmálin eigi hvort tveggja eftir að reynast Bush erfið." Einar K. Guðfinnsson þingmaður segir baráttuna framundan geta orðið tvísýna enda sýni kannanir að Kerry eigi raunverulega möguleika á að fella Bush úr forsetastóli. „Það má þó ekki gleyma því að átta mán- uðir eru til kosninga og auðvitað getur ýmislegt gerst á svo löngum tíma í pólitík. Ég vona hins vegar að kosningabaráttan verði ekki með þeim neikvæðu ummerkjum sem oft hafa tíðkast. Það er óskandi að frambjóðendum takist að keppa um þau málefni sem hæst ber; það verða auðvitað efnahagsmál og utan- ríkismál," segir Einar. Edwards þykir heppilegur Forkosningarnar framundan eru ekkert annað en formsatriði fyrir Kerry. Næsta verkefni Kerrys er að velja varaforsetaefni og þar þykir mörgum sem John Edwards væri heppilegastur. Kerry hefur þó ekki gefið neitt út um hvern hann vill sér við hlið né hefur Edwards ljáð því máls að verða vara- forsetaefni. Þess var beðið í gær að Edwards tilkynnti formlega að hann væri hættur bar- áttunni. Dick Gheney staðfesti hins vegar í gær að hann yrði varaforsetaefni Bush for- seta. „Það eru vond tíðindi enda er Cheney skuggabaldur að mínu viti. Hvað Edwards varðar þá líst mér vel á hann. Hann myndi án vafa styrkja Kerry í Suðurríkjunum auk þess sem hann er ungur og ferskur. Slíkt hjálpar Kerry sem hefur yfir sér svip- bragð þingmanns sem dvalið hefur lengi íWashington," segir Jón Hákon Magnús- son. Kerry er þaulvanur stjórnmálamaður og hefur setið í öldungadeild bandaríska þingsins frá árinu 1984. Hann er lög- fræðingur að mennt og barð- ist á sinni tíð í Víetnam þar sem hann hlaut margar orð- ur fyrir hugrekki og vasklega framgöngu. Kerry er tví- kvæntur og hefur orð á sér fyrir að hafa verið kvennagull á yngri árum. Núverandi kona hans, Teresa Heinz, er moldrík og gerði Kerry að rík- asta þingmanni öldunga- deildarinnar. arndis@dv.is Morgan Faírchild Fjöl- miðlar hafa veiið iðnir við að gera fortið John Kerry skilogþarkoma margar glxsilegor konur við sogu. Morgan Foirchild, sem gerði garð- inn frægan i Falcan Cresl átti i sambandi við Kerry á timabiii. - Guðfinnsson þingmaður „Það er Ijost að Kerry og Bush munu takast á um utanríkismál og að- dragandann að íraks- striðinu. Svo má reikna með að efnahagsmálin verði fyrirferðamikil í baráttunni. Jón Hákon Magnússon fjölmiðlaráðgjafi „Kosningarnar verða mjög spennandiog skemmtilegar. Ég treysti því að Kerry komi Bush og hans gengi út úr Hvíta hús

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.